Vikan - 04.05.1989, Blaðsíða 39
LEIKLI5T
Bæði Hlhlökkun og kvíði
- segja leikaraefnin í útskriffarhópi Leiklistarskólans
TEXTI: GUÐNÝ DÓRA GESTSDÓTTIR
MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Lokaverkefni Nemendaleikhúss-
ins að þessu sinni heitir „Hund-
heppinn“ og er eftir Ólaf Hauk Sím-
onarson. Þetta er þriðja verkið sem
þessi hópur stendur að. Alls eru
nemendur Nemendaleikhússins átta
talsins, 5 stelpur og 3 strákar. Þau
Bára Magnúsdóttir, Christine Carr,
Elva Ósk Ólafsdóttir, Helga Braga
Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson,
Sigurþór Albert Heimisson, Steinn
Ármann Magnússon og Steinunn
Ólafsdóttir.
Við hittumst öll í eldhúsinu í Lindarbæ
þegar æfingar stóðu yfir á verkinu. Þessum
verðandi leikurum lá mikið á hjarta. Allir
höfðu mikið til málanna að leggja.
— Um hvað fjallar leikritið?
„Það er um ungan mann, Ara að nafni.
Við fylgjumst með honum frá 9 ára aldri.
Þetta er eiginlega dæmigerður íslending-
ur. Hann byrjar á föstu, trúlofast, fer í sagn-
ffæði í Háskólanum byrjar að vinna á út-
varpsstöð, vinnur í pabbafyrirtæki. í gegn-
um lífshlaup Ara fáum við grátbroslegar og
jafhvel kaldhæðnislegar myndir af samfé-
lagi okkar nú. Þema verksins er eiginlega:
Þekktu sjálfan þig.“
— Er leikritið skrifað sérstaklega íyrir
þennan hóp?
„Kannski ekki sérstaklega fyrir okkur, en
fyrir átta leikara. Hlutverkin eru t.a.m. ekki
öll jafn stór. Það er í rauninni erfitt að
skrifa leikrit beinlínis fyrir hvern og einn
nemanda. Það sem skiptir máli er að
leikritið sé gott og þá eru allir sáttir jafnvel
þó hlutverkin séu misstór."
— Nú tekur alvara lífsins við í vor, þegar
þið útskrifist og hvað tekur þá við?
„Það er náttúrlega númer eitt að kaupa
sér bíl og farsíma því við komum til með
að hafa svo mikið að gera. Sífelldur þeyt-
ingur niður í útvarp, upp á Stöð 2, leik-
stýra í Menntaskólanum og svo taka nátt-
úrlega rullurnar í leikhúsunum sinn tíma.“
Þetta fannst þeim hlægilegt því kaldur
veruleikinn er langt ffá því að vera svona.
Þau halda áfram: „Nei, ætli við verðum
ekki atvinnulaus næstu árin eins og svo
margir sem lokið hafa leiklistarnámi." Þá
sagði einhver: „Nú, þá fer maður bara í
bakarann, er eitthvað að því?“
— En hvernig leggst þetta í ykkur í al-
vöru?
„Það er náttúrlega viss kvíði í okkur, en
einhver tilhlökkun líka. Það má eiginlega
segja að við stöndum á krossgötum, en vit-
um bara ekki í hvaða átt við komum til
með að fara. Óvissan er óþægileg. Auðvit-
að langar okkur öll til að leika sem mest.
Við verðum bara að halda í vonina um að
einhver vilji okkur. Það er sorglegt að vita
til þess að það er mikið af fantagóðum
leikurum sem ganga um atvinnulausir. Það
sem við verðum að gera er að sækja um í
leikhúsunum og láta leikstjóra vita af
okkur; að við séum til. Við erum nefnilega
öll alveg rosalega góðir leikarar," segja þau
hlæjandi.
— Hvað er góður leikari?
„Góður leikari?" Þau hugsa sig um.
„Hann þarf að hafa til að bera ákveðna
hógværð, góða hlustun og yfirsýn. Eitt-
hvert streymi. Hann þarf líka að vera mót-
tækilegur og tilbúinn að bæta sífellt við
sig. Hann verður að gæta þess að staðna
ekki. Það er nefhilega viss hætta á því þeg-
ar fólk lendir í því að fá ekkert að gera. Að-
stæður geta orðið þannig. Góður Ieikari
verður líka að búa yfir tækni. Tæknin
þroskar mann og gerir mann hæfari til að
fást við hlutina."
— En hvað haldið þið að ráði því hverjir
fá vinnu og hverjir ekki?
„Leikstjórar hafa mikið um það að segja.
Þeir velja fólk sem þeim líst vel á og sem
þeir treysta. Það fer oft eftir útliti. Þeir
leita að einhverri típu, en ekki mann-
eskju." Hópurinn var greinilega ekki alveg
sáttur við þessar starfsaðferðir leikstjóra.
Einhver sagði: ,Já, maður er orðinn ansi
leiður á þessari „Ungffú ísland típu“. Til-
hneigingin er sú að leikarar festast í
ákveðnum karakterum t.d. töffaranum eða
í grínaranum. Þannig að það getur verið
mjög erfitt að rífa sig út úr þeirri írnynd."
Þeim var mikið niðri fyrir og skoðanir
voru skiptar á þessu máli. .Auðvitað eru
leikstjórar misjafhir, við getum ekki dæmt
alla línuna."
Nú þurffu þau að rjúka því æfing var að
hefjast. Sjálfsagt hefðum við getað spjallað
miklu lengur saman, en skyldan kallar.
Leikstjóri lokaverkefnis Nemenda-
leikhússins er Pétur Einarsson, Ólafur Örn
Thoroddsen sér um alla tæknivinnu, Guð-
rún Sigríður Haraldsdóttir sér um leik-
mynd og búninga og aðstoðarmaður
hennar er Þórunn Sveinsdóttir. Auk þess
aðstoða annar og þriðji bekkur Leiklistar-
skólans við uppfærslu sýningarinnar. □