Vikan - 04.05.1989, Page 60
FERÐAL0C5
FLO-JO
Frh. af bls. 56
sannar tilfinningar. Og hún lét líka stjórn-
ast af tilflnningunum þegar hún faðmaði
og kyssti eiginmanninn A1 áður en hún
hljóp af stað með bandaríska þjóðfánann
um leikvanginn.
Andleg og líkamleg þjálfun
Á blaðamannafúndi efitir sigurinn út-
skýrði hún þann aga sem lægi að baki vel-
gengni sinni: „Það er aðeins eitt sem skýrir
velgengni mína — ég hef æft af miklu kappi,
betur en ég hef gert nokkru sinni áður.
Þetta er ekki síður andleg en líkamleg
þjálfun, því það verður að undirbúa sig í
öllum skilningi. Það eina sem ég lagði
áherslu á var að byrja vel og hlaupa á af-
slappaðan hátt, án þess að þurfa að hafa
áhyggjur af að slá met. Á ólympíuleikun-
um keppa menn til að vinna, ekki til að
setja met.“ Keppinautar Flo-Jo dá hana
mjög. Silfúrverðlaunahafinn í Los Angeles,
Evelyn Ashford, sem var í öðru sæti á eftir
Florence í Seoul segir: ,Aðeins karlmaður
getur hlaupið hraðar en Flo-Jo. Hraði
hennar er ótrúlegur. Endaspretturinn var
ekki mjög góður hjá mér en ég hef sætt
mig við það því ég hef átt við það vanda-
mál að stríða í 13 ár.“
Þótt Florence sé líkt við karlmann í
hlaupinu þá er hún mjög kvenleg, tilfinn-
inganæm og hefur mjög gaman af að vera
heima hjá sér.
„Samband mitt við eiginmann minn A1
er mér mjög mikilsvert. Hann skilur að við
getum ekki lifað venjulegu lífi af því að
hann er líka íþróttamaður. Eftir að hafa æft
allan daginn fæ ég fagmannlegt nudd og
við ræðum framför mína. Ég þarf mjög
mikið á því að halda að geta talað við ein-
hvem sem skilur hvað um er að ræða.“
Flo-Jo segist fara með bænirnar sínar
fýrir hvert hlaup og að örlögin hafi verið
henni hliðholl fram að þessu. Þegar rætt er
um hvað bíði hennar eftir að íþróttaferlin-
um lýkur, segir hún: „Það er margt annað
sem ég hef áhuga á. Ég yrki og ég hef þegar
skrifað 10 barnabækur um persónu sem
heitir Barry og er sífellt að koma sér í
klípu. Nú er ég að vinna að ástarsögu sem
er um tvær persónur sem verða ástfangnar
o.s.frv... Að sjálfsögðu endar allt vel...“
Hrifin af Diönu Ross
Ef Florence Griffith ætti að velja ein-
hvern til að hafa viðtal við, yrði söngkonan
Diana Ross án efa fyrir valinu. „Ég er mjög
hrifin af tónlist hennar og ekki síst boð-
skapnum í textunum. Mér finnst stórkost-
Iegt hvernig henni tekst að tjá tilfinningar
sínar, bæði ást og sorg.“
Flo-Jo viðurkennir fúslega að hún sé
ekki döpur manneskja að eðlisfari, þó seg-
ist hún hafa fengið að kynnast sorginni.
„Ég notfæri mér þessa reynslu í skrifúm
mínum,“ segir hún. Það er þó varla hægt
að segja annað en að hún sé nú á hápunkti
lífsins, með gullverðlaun í fórum sínum
og eftir að hafa lagt heiminn að fótum sér.
HOTELHEIMILI I ENGLANDI
TEXTI: SIGRÚN HARÐARDÓTTIR
IDorset héraði í Englandi hafa hjónin
Bryan og Elisabeth Ferriss endurvak-
ið gamla enska hefð, sem íslendingar
hafa m.a. kynnst í Agatha Christie
bókum, „the House Party“. Heldra fólk
bauð ósjaldan vinum og kunningjum heim
til sín á sveitasetrin, og vegna fjarlægðanna
gistu þeir á heimilinu um helgina.
Maiden Newton House í Dorset heitir
þetta nýstárlega hótel. Það hefur sex
svefnherbergi og hýsir tiu manns. Vinir og
^ölskyldur hafa því kjörin stað til þess að
GISTIHEIMILI
í FRAKKLANDI
Fyrir ferðalanga sem ætla að aka um
Frakkland í sumar er upplagt að
gista á „Logis“ eða „Auberge", sem
eru gistiheimili. Það eru meira en
5000 slík gistiheimli um allt Frakkland. Þá
er garnan að sækja heim Limousin héraðið
í hjarta Frakklands. Limousin liggur í Dor-
dogne dalnum sem einkennist af granít-
hæðum og kastaníuskógum, stöðuvötnum
og árgiljum. í smáþorpunum eru hefð-
bundnar hátíðir og útimarkaðir, en
Limoges, höfuðborg héraðsins er þekkt
fýrir postulín. Gisting á „Logis" er mjög
ódýr, og nóg er að skoða á hestbaki, á
hjóli eða á göngu, og gaman að renna fyrir
fisk.
njóta samvistar í fallegu umhverfi. Máltíð-
arnar, þar á meðal fjórréttaður kvöldmatur
á degi hverjum, eru lagðar „en famille" á
stóra borðstofuborðið, rétt eins og væri
um stóra fjölskyldu að ræða. Drykkina fær
maður sér sjálftir, og gestum er frjálst að
nota bókaherbergið, flygilinn, leikina og
hljómplöturnar á staðnum. Héraðið býður
auk þess upp á fjölda tækifæra til útivistar.
Verðið er 550 pund á dag fyrir allt húsið
og þá er allt innifalið nema hádegisverður
og drykkir. Þeir sem áhuga hafa geta feng-
ið fleiri upplýsingar hjá Ferris hjónunum í
síma (0)300-20336.
58 VIKAN 9. TBL. 1989