Vikan


Vikan - 05.10.1989, Qupperneq 9

Vikan - 05.10.1989, Qupperneq 9
LEIKLI5T ekki beitt þeim til að byrja með því ég kunni þau ekki. En meðal þess sem ég starfaði að á þessu tímabili voru leikþættir um íslenska lifnaðarhætti áður fyrr, sem ég gerði í samvinnu við Árna Björnsson þjóð- háttafræðing. Þessir þættir voru fyrst sýnd- ir uppi í Árbæ en síðan í sjónvarpinu. Með- an ég var hér sannfærðist ég enn um að staða íslenskrar Ieiklistar er mjög góð. ís- lenskir leikarar hafa margir hverjir góða þjálfun og geysimikla breidd en hins vegar gæti ég ímyndað mér að það mætti hræra svolítið upp í leikstjórninni. Ég held það yrði hollt að fá hingað nokkra verulega góða erlenda leikstjóra í röð — til að ýta við mannskapnum." Mikilvægasta hlutverkið Eftir íslandsdvölina hefur Borgar verið í lausamennsku hjá Lilla Teatern og sat þar ennfremur í stjórn um tíma. Eitthvað hef- ur hann líka fengist við skriftir en vill sem minnst tala um það...ennþá. Segist ekki vilja vera með hótanir. Fyrir um það bil tveimur árum kom svo Vikivakaverkefnið til sögunnar. „Atli Heimir Sveinsson tónskáld, sem var nýbúinn að fá sam- þykkta hugmynd um að gera Vikivaka Gunnars Gunnarssonar að sjónvarps- óperu, fékk þá strax í lið með sér Finnann Hannu Heikinheimo sem Ieikstjóra verksins. Hannu óskaði síðan eftir að fá mig sér til aðstoðar þar eð ég væri flestum hnútum kunnugur á íslandi. Undirbúning- ur hefur svo staðið yfir meira og minna síðan því þetta er viðamikið verk en auk þess var því frestað um eitt ár. Þetta er feikilega skemmtilegt verkefhi, fjölbreytt og lærdómsríkt. Ég mun einnig leika eitt af hlutverkunum í óperunni, haus Grettis hins sterka Ásmundssonar — með rödd Garðars Cortes. Og einmitt það kveikti hjá mér þá hugmynd að lesa Grettissögu fýrir sænsku rásina í finnska útvarpinu. En tal- andi um hlutverk þá er mikilvægasta hlut- verk mitt síðustu fjögur árin pabbahlut- verkið. Við eignuðumst nefhilega dóttur, Silju Maríu, í janúar 1985. í því hlutverki hef ég enga samkeppni og algjöran trúnað." Nýjasta afrek Borgars á leiksviðinu er hins vegar hlutverk gæslumannsins í sýn- ingu Lilla Teatern, Leikliús Nikita gæslu- manns, en það verk er byggt á smásögu Antons Tjechovs, Deild 6. Þetta leikrit, sem var frumsýnt síðastliðinn vetur, fékk ffábæra dóma og var sýningin verðlaunuð sem sú besta á leiklistarhátíð í Finnlandi nú í ágúst. Undirritaðri kom það ekki á óvart eftir að hafa séð og hrifist af þessari mögnuðu sýningu síðastliðið vor. „í þessu verki lék ég í fyrsta sinn á finnsku og þegar ég er spurður hvort það sé ekki erfitt þá er mitt klassíska svar: Ég á ekki í neinum erf- iðleikum, aftur á móti hef ég heyrt á það minnst að það hafi skapað einhverja erfið- leika hjá áhorfendum... Leikstjóri sýningar- innar er rússneskur gyðingur og var þetta fýrsta leikstjórnarverk hans utan Sovétríkj- anna. Mér er engin launung á því að mað- urinn var ákaflega þreytandi og erfiður í umgengni. Við komumst aðeins þrisvar í gegnum allt verkið fyrir frumsýningu, að meðtöldum samlestri og aðalæfingu, en ár- angurinn varð engu að síður stórkostieg- ur. Og það er að sjálfsögðu snilld leikstjór- ans að þakka. Sýningunni verður haldið gangandi enn um sinn því nú á næstunni förum við í leikferð til Parísar og Stokkhólms. Við höfum þegar sýnt í Dan- mörku og Noregi og fyrirhugað er að fara víðar um Evrópu á þessu leikári." En hvað verður með Borgar Garðarsson í framtíðinni? Er hann alfarið sestur að í Finnlandi? ,Ja, nei, ætli það. Ég vona að ég eigi eftir nokkra skrautlega kafla í viðbót í lífinu og þá er aldrei að vita hvar maður á eftir að bera niður. Á hinn bóginn er stóri kosturinn við að vera „freelance" sá að maður getur flutt sig um set - meira að segja alla leið til fslands." Myndimar tvær hér fyrir ofan sýna Borgar Garðarsson í hlutverki gæslumanns í sýningu Lilla Teatem, Leikhús Nikita gæslumanns. Það verk er nú sýnt við miklar vinsældir. „Einn aðalsjarminn við leikstíl Lilla Teatem fyrr og síðar er að þar er lögð áhersla á að segja alvarlega hluti á mjög gamansam- an hátt,“ segir Borgar. 20. TBL 1989 VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.