Vikan


Vikan - 05.10.1989, Síða 12

Vikan - 05.10.1989, Síða 12
DULFRÆÐI af eigin raun. Mig langar til að byrja á því sem kallað hefur verið draugar eða aftur- göngur. Þúsundir slíkra sagna eru til í heiminum en það er ekki meiningin að segja þær hér. Þessi greinasyrpa fjallar ein- ungis um það sem ég hef sjálf upplifað og hugrenningar mínar því viðkomandi. Sjálf tel ég að hér sé um að ræða ákveðna teg- und orku. Þeir sem ganga aftur hafa oftast fengið mjög sérstakan dauðdaga eða hafa átt eitthvað eftir ógert hér á jörð. Ég held að þær kraftmiklu tilfmningar, sem þeir skildu eftir sig á dauðastundinni, verði eft- ir á staðnum sem orka, eins konar bylgju- hreyfmg sem liggur eftir í loftinu. Þeir sem eru næmir finna þessar bylgjur eða kraft. Einhver ykkar hafa kannski fúndið fyrir ónotatilfinningu, kuldahrolli eða öðru við- líka þegar þið haflð farið framhjá einhverj- um stað eða komið inn í herbergi eða hús. Stundum er þessi tilfmning svo sterk að manni er naumast vært á staðnum eða inni í herberginu og þeir sem eru sérstaklega næmir sjá það sem raunverulega gerðist. Dóttir yðar er skyggn Ég sá fyrstu affurgönguna sem ég man eftir þegar ég var átta ára gömul. Þetta var vorkvöld og ég kom hjólandi eftir vegin- um. Þetta var áður en bílar urðu algengir og vegurinn var fáfarinn. Þá tók ég skyndi- lega eftir manni sem hékk í snöru ofan úr tré við veginn. Ég hjólaði heim eins hratt og ég gat og sagði móður minni frá því sem ég hafði séð. Hún flýtti sér til ná- granna okkar til að fá hjálp en hann brosti bara sorgmæddur og sagði: „Dóttir yðar er skyggn. Á síðustu öld var hér vinnumaður sem hengdi sig í þessu tré og hann gengur aftur á dauðadægri sínu á hverju ári og þeir sem eru skyggnir geta þá séð hann.“ Næsta atvik þessu líkt gerðist þremur árum seinna. Það var seint um kvöld að hausti til að ég gekk í gegnum kirkjugarð- inn við dómkirkjuna í Strángnás. Ég var hrædd við kirkjugarðinn en gekk samt sem áður þvert yfir hann. Þegar ég var komin á móts við kirkjuna og stóð í skugganum af henni heyrði ég þyt og þrusk í laufi við gröf þar skammt frá. Ég leit í áttina að gröf- inni og sá þá veru sem bograði eða kraup bak við legsteininn. Áður en veran hvarf hafði ég séð höfuð, herðar og handleggi greinilega. „Nú, já, einhver af vinum mín- um hefúr greinilega ætlað að hræða mig,“ hugsaði ég með sjálfri mér og hljóp í áttina að gröfmni. En þar var ekki sálu að sjá og enginn hefði getað hlaupið burtu því gröf- in stóð ein og sér á opnu svæði. Þetta var eflaust mjög gömul gröf því letrið á leg- steininum var nánast útmáð. Alla tíð síðan þetta gerðist hafa sýnir fylgt mér. Gamall hestvagn á fúllri ferð með dynjandi hófaskellum þótt hvorki nokkur hestur væri sjáanlegur né ekill; þessa sýn hafði bróðir minn líka séð hálfú ári fyrr en hann þorði ekki að tala um hana fyrr en ég var búin að segja firá reynslu mini. Eitt sinn sá ég aldurhnigna konu í glugga á gömlu húsi sem enginn hafði búið í í mörg ár. Nýfallinn snjór var á jörðu og engin spor að sjá. Þessi gamla kona var sögð ganga aftur til að vitja pen- inganna sinna sem hún hafði falið á stað sem enginn vissi um. Ein mjög sérstök vera hefur fýlgt mér í gegnum árin en um hana ætla ég að fjalla í annarri grein því þar er ekki um draug að ræða. Aðrar verur og draugar, sem ég hef séð, hafa verið ógreinilegri og því ræði ég ekki frekar um þá hér. ÍEg sá fyrstu afturgönguna sem ég man eftir þegar ég var átta ára gömul... Þá tók ég skyndilega eftir manni sem hékk I snöru ofan úr tré við veginn... En verður maður hræddur þegar maður sér draug eða eitthvað annað óþekkt? Ekki fyrst í stað. Þegar maður sér sýnina lítur hún fúllkomlega eðlilega út. Maður hugsar einfaldlega ekki út í það fyrr en effir á að eitthvað geti verið athugavert við það sem maður sá. ,Ja, hver skollinn, þar sá ég draug eina ferðina enn,“ hugsar maður og verður ef til vill ögn skelkaður en um leið svolítið upp með sér. Nú er ég stödd á þessari mögnuðu eyju Eitt það óhugnanlegasta sem ég hef upp- lifað gerðist á eyjunni Barbados. Alla tíð síðan ég var barn hef ég lesið um og heyrt talað um „líkkisturnar á Barbados" eða „Chase-hvelflnguna" sem er ein þekktasta og dularfyllsta ráðgáta heims. Mörg þús- und manns, með landstjóra eyjanna í broddi fylkingar, urðu vitni að því sem gerðist. í nóvember árið 1986 sigldi ég ásamt manni mínum um Karíbahaflð og þá stigum við á land á Barbados. Það braust út á mér kaldur sviti. Nú var ég stödd á þessari mögnuðu eyju og gæti ekkl látið hjá líða að skoða Chase-hvelfinguna. En það hefði ég þó aldrei átt að gera. Fyrst langar mig til að segja ykkur draugasöguna sjálfa. Sagan gerist í byrjun 19. aldar í litla kirkjugarðinum við sóknar- kirkjuna í Christchurch. Þar var að finna grafhvelflngu sem hafði verið sprengd inn í fjallið og þegar marmaradyrnar voru lok- aðar var algerlega útilokað að komast þangað inn. Hvelfingin var byggð fyrir Walrond-fjölskylduna sem var mjög auðug og átti stórar og miklar plantekrur. Sá síð- asti af Walrond-ættinni sem var grafinn þar var Thomasina Goddard. Það var árið 1807. Grafhvelfingin var síðan seld Chase-fjöl- skyldunni, sem líka var rík plantekrufjöl- skylda og hafði meðal annars þræla í þjón- ustu sinni. Fjölskyldan varð fyrir miklum áföllum þegar tvær barnungar dætur hjón- anna létust, önnur árið 1808 og hin árið 1812. Kistum þeirra beggja var komið fyr- ir í hvelfingunni. Sama árið og sú seinni dó lést faðir þeirra, Thomas Chase, og hann var líka jarðaður þar. Þegar hvelfingin var opnuð stóðu klstur stúlknanna á hvolfi upp við einn vegginn. Allt annað var óhreyft og enginn hafði getað komist þangað inn. Árið 1816 átti að grafa fjarskyldan ætt- ingja Chase-fjölskyldunnar inni í hvelfing- unni og affur komu menn að kistunum á tvist og bast og kistan, sem Thomas Chase lá í og var svo þung að átta menn hafði þurft til að bera hana, stóð upp á endann í einu horni hvelfingarinnar. Ein trékistan var mölbrotin og líkið lá á gólfinu. Aðeins tveimur mánuðum seinna átti enn að koma einni kistu fyrir í hvelfing- unni. í þetta sinn hafði múgur og marg- menni safnast saman fyrir utan því fréttin um óróleikann í grafhvelfingunni hafði borist út. Aðkoman var eins og menn höfðu búist við, allar kisturnar nema ein höfðu færst úr stað. Á þessum árum var Combermere lá- varður landstjóri á Barbados. Hann fékk áhuga á þessum atburðum og var sjálfur viðstaddur margar nákvæmar rannsóknir á grafhvelfingunni. Það var rannsakað hvort vatn hefði getað komist inn og fært kist- urnar úr stað. Það var talið útilokað. Líka var talið óhugsandi að um jarðskjálfta hefði verið að ræða því allt var með kyrr- um kjörum í grafhvelfingunum við hliðina. Ekki var heldur mögulegt að nokkur mað- ur hefði getað komist inn í hvelfinguna því hún var svo rammlega byggð að helst mátti líkja henni við virki. Þann 7. júlí 1819 var síðasti meðlimur Chase-ættarinnar lagður til hinstu hvíldar í hvelfingunni. Þetta var Thomasina Chase. Eina ferðina enn höfðu kisturnar flust til og í þetta sinn var aðkoman óvenju slæm. Landstjórinn var viðstaddur og áður en hvelfingunni var lokað aftur lét hann bæði strá hvítum sandi á gólf hennar og teikna afstöðumynd (sem enn er til) af öllum kistunum. Síðan innsiglaði hann hvelfing- una með sínu eigin innsigli. Níu mánuðum síðar gaf hann fýrirskipun um að grafhvelf- inguna skyldi opna aftur til þess að athuga hvort við nokkru hefði verið hreyft. Mörg þúsund manns urðu nú vitni að því sem gerst hafði. í fyrstu gekk erfiðlega að opna dyrnar inn í hvelfinguna. Einhver fýrir- staða var fyrir innan. Að lokum tókst þó að hnika þungri marmarahellunni frá dyra- opinu. Það var ein af hinum ógnarþungu blýkistum sem hafði staðið upp við hurð- ina. Sandurinn á gólfinu var óhreyfður en kisturnar lágu á tvist og bast í hvelfingunni og ein hafði færst þvert yfir gólfið. Aðeins ein kista var óhreyfð. Gamla litla og morkna trékistan, sem Thomasina Godd- ard lá í, stóð óhreyfð á sínum stað í einu horninu. Landstjórinn gaf nú fyrirskipun um að 12 VIKAN 20. TBL. 1989

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.