Vikan - 05.10.1989, Side 34
I NIÐRI VIKU
JO DEVON TÓK SAMAN FYRIR VIKUNA
Mistök að gera
klámmyndina,
segir Rob Lowe
Rob Lowe hefur viðurkennt
að klámmyndin, sem hann
gerði fyrir myndband, hafi ver-
ið mistök. Leikarinn hafði tek-
ið upp atriði með Jan Parson,
16 ára, þar sem hún lék í lesb-
ískri ástarsenu með vinkonu
sinni og síðan tók hann þátt í
leiknum með þeim á hótelher-
berginu þar sem myndbands-
upptakan fór firam. Rob, sem er
25 ára, kom fram í sjónvarps-
þættinum CBS Today sem
milljónir Bandaríkjamanna
fylgjast með. Par sagði hann að
það væri ekkert athugavert við
siðferði sitt, dómgreindin
hefði bara ekki verið í lagi.
„Ég gerði mistök og ég hef
hugrekki til að viðurkenna það
og taka afleiðingunum." Fyrir
þann glæp sinn að taka upp
kynlífssenu, þar sem stúlka
undir lögaldri kemur við sögu,
þarf hann að vinna félagsleg
störf og þar fyrir utan hefur
móðir stúlkunnar kært hann.
T
Madonna
niðuriægð
Kærastinn hennar Madonnu,
Warren Beatty, dró hana burt
úr rifrildi sem hún lenti í á
dögunum. Þessi kynæsandi
söngkona rakst á hárgreiðslu-
konuna Leesa Oliver í vinsæl-
um næturklúbbi í Los Angeles.
Þetta gerðist þegar Madonna
og Warren voru á leið út og
Madonna hrinti Leesa úr vegi
sínum. Sú varð alveg brjáluð
og skvetti drykk sínum í andlit
stjörnunnar. Konurnar tvær
stóðu síðan andspænis hvor
annarri og eftir því sem vitni
segir öskraði Madonna: „Af
hverju gerðirðu þetta, tíkin
þín?“ Þeir sem fylgdust með
bjuggust því næst við að sjá
slagsmál en þess í stað dró
Warren Madonnu grátandi og
niðurbeygða í burt.
En Leesa Oliver sagði: „Ma-
donna hrinti mér á leið sinni
út og ég sneri mér við og
skvetti drykknum mínum á
hana. Hann lenti framan í
henni og ég var alveg viss um
að hún myndi berja mig.“ Vin-
ur Leesa sagði: „Madonna lét
eins og stórstjarna og ruddist
ffarn hjá Leesa. Hún kom fram
við okkur eins og við værum
ekki til. Ég hef sjaldan séð
nokkurn jafinreiðan og Ma-
donna var eftir að Leesa
skvetti á hana. Hefði Warren
ekki dregið hana í burt hefði
þetta áreiðanlega endað með
slagsmálum. Madonna var
gráti næst því allir höfðu séð
hana niðurlægða."
34 VIKAN 20. TBL 1989
Eiginkonan óþekk
við Dudley Moore
Dudley Moore, sá hinn sami
og lék fyllibyttuna Arthur, er
að reyna að bæta hjónaband
sitt og Brogan Lane. Hinn
dvergvaxni Dudley, sem er 53
ára, keypti demantsarmband
upp á 2,7 milljónir króna
handa eiginkonunni, sem er
aðeins 29 ára. Auk þess keypti
hann tvo miða á fyrsta farrými
til Tahiti og vonaði að þetta
mætti verða til að endurvekja
ástarblossann í hjónabandinu
sem ekki hefur staðið nema í
átján mánuði.
Ljón réðst
á Jodie Foster
Ljón réðst eitt sinn á leik-
konuna Jodie Foster þegar hún
var að leika í kvikmynd.
Leikkonan, sem nýverið hlaut
óskarinn, þurfti að vera í
nokkrum atriðum með skepn-
unni sem átti að vera tamin.
Leikkonan sagði: „Við vorum
búin að vera að vinna með
ljónið allan daginn og það var
orðið mjög órólegt. Ég fór of
nálægt því og kom við makk-
ann á því. Það greip um
mjaðmirnar á mér og lyfti mér
upp, sneri mér á hlið og fór að
hrista mig. Ég varð dauð-
hrædd. Ég hélt fyrst að kominn
væri jarðskjálfti en þegar ég
leit í kringum mig sá ég að allir
hlupu burt. Þjálfarinn hrópaði
til dýrsins og skipaði því að
sleppa mér, sem það gerði, til
allrar hamingju." Förin eftir
viðureignina leyndu sér þó
ekki og örin eru enn sjáanleg.
„Þetta var ekkert mjög alvar-
iegt því þetta voru aðallega
skrámur," sagði hún. Leikkon-
an var ekki nema átta ára þegar
þetta átti sér stað og hún þurfti
að fara á spítala þar sem saum-
uð voru í hana nokkur spor en
síðan mátti hún fara heim.
Tveim vikum síðar var hún
mætt á ný til að halda áfram
með hlutverk sitt í Disney-
myndinni „Napoleon and
Samantha". „Mamma lét mig
alveg ráða þessu en ég held að
hún hafi verið ánægð með
hversu vel ég tók þessu.“
Hitchcock
móðgaðist
Melanie Grififith (Don John-
sons og sú sem lék í Working
Girl) hefur gert uppskátt hvað
gerðist þegar móðir hennar
neitaði Alfred Hitchcock þeg-
ar hann var að reyna við hana.
Þessi frægi leikstjóri hafði mik-
inn áhuga á móður Melanie,
leikkonunni Tippi Hedren. En
Tippi hafði engan áhuga á ást-
arsambandi. Hitchcock var
ekki ánægður og halda mætti
að hann hafi verið að nota at-
riði úr einhverri mynda sinna
þegar hann sendi Melanie litlu,
sem þá var sjö ára, dúkku í ör-
smárri kistu!
Dustin fær ekki að
leika James Bond
Leikarann Dustin Hoffrnan
langar mikið til að fá að leika
James Bond, 007. En hann veit
að vegna smæðar sinnar mun
hann aldrei fá þessa ósk sína
uppfyllta. Þessi smávaxna kvik-
myndastjarna er ekki nema
1,57 m á hæð en allir sem leik-
ið hafa Bond hafa verið minnst
1,85 m. Timothy Dalton er í
raun sá lágvaxnasti þeirra.
Þrátt fyrir smæðina er Dustin
ekki alveg búinn að gefa þessa
hugmynd frá sér: „Ég myndi í
alvörunni vilja leika hann.
Þetta er það hlutverk sem ég
gripi um leið og það gæfist en
enginn hefúr boðið mér það
ennþá. Ætli það sé ekki vegna
þess hvað ég er lítill. Ég myndi
leika hlutverkið frábærlega
vel. Ég yrði mjög góður
Bond!“