Vikan


Vikan - 05.10.1989, Side 38

Vikan - 05.10.1989, Side 38
KENM5LA MYNDBANDIÐ Nokkur fyrirtæki og stofnanir leigja fullkomin klippitæki þar sem þú getur ldippt myndir þínar með mikilli nákvæmni. Klipping 4. ÞÁTTUR UMSJÓN: MARTEINN SIGURGEIRSSON að sem við köllum klippingu í þáttagerð með myndbandi er að setja efnið saman upp á nýtt með því að stytta atriði, sleppa úr og færa til myndskeið. Þetta er gert með því að færa efnið yflr á annað band (kópera). í raun og veru er ekkert klippt og frum- takan verður ekki fyrir neinum skemmdum. Þegar unnið er með kvik- myndafilmu er filman sjálf klippt og er þá hægt að stytta efnið hér og þar eftir því sem við á en um myndbandið gegnir öðru máli. Ekki er unnt að breyta miklu þegar myndin er fúllklippt þar sem við getum ekki stytt sjálft myndbandið. Hins vegar má skipta um myndir á bandinu í þeim tækjum sem hafa innsetningarmöguleika, „INSERT". Þá er hægt að setja inn nýja mynd í ákveðið efni í myndavél eða tæki. Þegar mynd er klippt verða alltaf afföll á gæðum við yfirfærsluna. Klippta myndin er því ekki eins góð og frummyndin. Þetta er misjafnt eftir tækjum. í bestu tækjunum eru afföllin lítil og nánast engin í tækjum atvinnumanna sem nota önnur bönd og tæki. Gott er að klippa þegar hreyfing er innan myndflatarins. Rétt á undan stóð stúlkan kyrr, en það hefur verið klippt frá. Klippt í hreyfingu sem er í sömu stefnu og í fyrra myndskeiði. Myndskeiðin renna saman eins og smjör og áhorfand- inn upplifir atburðinn sem samfellda heild. Að skrá efni Áður en hafist er handa við klippinguna er best að skrá allt það efni sem á að klippa. Það flýtir fyrir ef hvert atriði er skráð eftir teljara tækisins. Þá gengur bet- ur að finna það hverju sinni. Gott er að skrifa niður röðina sem efnið á að vera í. Ef handrit hefúr verið gert og myndað eftir því stýrir handritið klippingunni að miklu leyti. Að tengja ÖIl myndbandstæki er hægt að tengja saman óháð kerfúm eða tegundum. Þess vegna er hægt að klippa frá video 8 kerfi yfir á VHS og öfugt. Oft er myndin tengd með sérkapli. Þá er afspilunartækið tengt í „video out“ en upptökutækið í „video in“. Annar kapall er fýrir hljóðið. Þar er afspil- unartækið tengt í „audio out“ en upptöku- tækið í „audio in“. Stundum eru þessar snúrur í sama kaplinum og getur þá þurft millistykki ef annað tækið er ekki með þannig inngang. Tvö myndbandstæki Algengt er að tengja saman tvö venjuleg heimilistæki. Sjónvarp er tengt við upp- tökutækið og þar sést myndin í afspilunar- tækinu ef rétt er tengt. Einnig sést hvernig 36 VIKAN 20. TBL 1989

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.