Vikan


Vikan - 05.10.1989, Síða 50

Vikan - 05.10.1989, Síða 50
BÆKUR Drottningar glæpasagnanna, Agatha Christie og Dorothy L. Sayers. um lýsingum á sögusviði og umhverfi til að skapa hrollvekjandi andrúmsloft, en heldur þóttu persónurnar ótrúverðugar. Margir höfundar tóku bækur Radcliff sér til fyrirmyndar og segja má að hún hafi mótað mjög þessa skáldsagnahefð. Ein allra frægasta hrollvekja heimsbók- menntanna, Frankenstein, kom út árið 1818. Höfúndur hennar var Mary Woll- stonecraft Shelley, þá 21 árs að aldri, síðari eiginkona skáldsins P. B. Shelley. Sagan segir að Frankenstein sé afrakstur sagna- keppni sem þau hafi háð Shelley-hjónin og vinur þeirra, skáldið Byron, þar sem hin unga Mary bar sigurorð af skáldjöfrunum. Sagan um Frankenstein hefúr margsinnis verið stæld og afbökuð, ekki síst í misgóð- um kvikmyndum. Athygli manna hefur í seinni tíð beinst mjög að sjálffi sögunni og er hún nú talin með merkilegri skáldsög- um rómantíska tímabilsins fyrir margra hluta sakir.. Eins og áður sagði fetuðu margir í fót- spor Ann Radcliff og á 18. og 19. öld komu út ógrynnin öll af gotneskum sögum og öðrum spennusögum og voru konur eink- ar afkastamiklar við þessa smíði. í sumum bóka rithöfúndanna Jane Austen, Char- lotte og Emily Bronte eru gotnesk áhrif ótvíræð. {Jane Eyre eftir Charlotte kemur við sögu dularfull höll með ógnvænlegu háalofti og örlagaþrungnu leyndarmáli og í Fýkur yfir hæðir (Wuthering Heights) eftir Emily eru dularfull hús, djöfullegir karlmenn, draugagangur og ógnvekjandi landslag. Bækur Jane Austen og Bronte- systra teljast með mestu perlum heims- bókmenntanna og þær hafa verið misk- unnarlaust stældar í tímans rás af mörg- um minni spámönnum. Um nútíma arftaka gotneskra afþreyingarsagna þarf vart að fjölyrða. Lesendur, sem gaman hafa af slík- um sögum, þekkja vafalaust nöfn eins og Daphne du Maurier, Mary Stewart, Phyllis Whitney, Victoria Holt og þannig má lengi telja. Lausleg og afar óvísindaleg athugun á kápumyndum slíkra bóka sýndi að í það minnsta þrjár af hverjum fjórum sýndu konur á flótta ffá stóru húsi eða höll og gefúr það vissa vísbendingu um efhi bók- anna. Konur, ógn og ótti er í reynd nær undantekningarlaust viðfangsefni þess 48 VIKAN 20. TBL.1989 konar bókmennta. Þótt þær hafi sjaldnast verið hátt skrifaðar í bókmenntasögunni hafa bókmenntafræðingar, einkum konur, beint athygli sinni að þeim í auknum mæli. Bækurnar segja sína sögu um stöðu og hlutskipti kvenna, um drauma þeirra og þrár. Oft liggur slíkt ekki í augum uppi þar sem hugur lesandans er rækilega mótaður af fordómum og ríkjandi viðhorfum. Piparjómfrúr og aðrar ofursnjallar konur Eiginlegar sakamálasögur, eins og við myndum nú flokka þær, eru venjulega raktar til smásagna Bandaríkjamannsins Edgars Allan Poe, Murders in the Rue Morgue (1841), The Purloined Letter (1845) og fleiri sagna en með þeim er Poe sagður hafa lagt línurnar fýrir sakamála- söguna í smáatriðum. Sakamálasögurnar spretta úr andrúmsloffi bjartsýni og vís- indahyggju 19. aldar, þegar menn trúðu því að með skynsemi og þekkingu mætti leysa öll vandamál. Hefðbundin grind þeirra er sú að glæpur er ffaminn (offast morð) og ekki er vitað hver hinn seki er. Forsagan getur verið mislöng og flókin en effirmáli glæpsins er meginefhi sögunnar, það er afhjúpun sökudólgsins. Margir liggja undir grun og málavextir eru allir hinir flóknustu. Þeir sem fást við lausn málsins eru stundum atvinnumenn, lög- reglumenn eða einkaspæjarar, en oft eru þó á ferðinni réttir og sléttir áhugamenn. (Þeir eru í raun hinar mestu óheillakrákur því hvar sem þeir eru og hvert sem þeir fara stráfellur fólk í kringum þá með hin- um dularfyllsta hætti!) En áhugamennirnir eru sómakært fólk sem ekki má vamm sitt vita og leiða mál til lykta af stakri snilld. Lög og regla bera ævinlega sigur úr býtum. Fyrsti sakamálasagnahöfúndurinn af kvenkyni var Metta Victoria Fuller Victor. Bók hennar, The Dead Letter, kom út Skemmtileg myndskreyting með gamalli spennusögu um snjalla leynilöggu- kvensu. 1867, en það er um tuttugu árum áður en Arthur Conan Doyle tekur að skrifa sög- urnar um Sherlock Holmes. Árið 1878 sendi Anna Karenina Green ffá sér bókina The Leavenworth Case sem kom henni umsvifalaust í hóp vinsælustu sakamála- sagnahöfúnda og árið 1897 sprettur úr penna hennar fyrsta kerlan sem tekur sakamál í sínar hendur, piparjómffúin Amalia Butterworth í sögunum The Affair Next Door (1897) og Lost Man’s Lane (1898). Fleiri slíkar fýlgdu í kjölfarið og er frök- en Marple án efa þeirra ffægust. Kerling- arnar eru venjulega með nefið ofan í hvers manns koppi. Þær taka vel effir því sem gerist í kringum þær og forvitni þeirra verður sakamönnunum skæð. Venjulega eru þær ekki taldar til stórræðanna en þær vita sínu viti og koma öllum í opna skjöldu með lausn málsins. Green skapaði einnig fleiri kvenpersónur í sögum sínum. Violet Strange var yngri en fföken Butterworth en ekki síður forvitin og snjöll. Konum í sakamálasögunum tók upp úr þessu að fjölga og gerðust atvinnumenn í faginu jafnt sem áhugamenn, fengu vinnu hjá Scotland Yard eða ráku einkastarfsemi. Kvenpersóna í hlutverki rannsóknarlög- reglu eða spæjara var engu að síður býsna djörf hugmynd á þessum árum. Ástæður þess að kvenpersónur þessar urðu höfúnd- um svo hugleiknar sem raun ber vitni eru helst taldar vera nýjungagirni, dramatísk tilþrif (þær koma á óvart), með því að nota kvenpersónu var hægt að beita ný- stárlegri aðferðum og síðast en ekki síst hefúr forvitnin, sem er öllum leynilöggum ómissandi, oft verið talin sérlega kven- legur eiginleiki! Kvenpersónurnar, sem bæði birtust í bókum eftir konur og karla, voru engan veginn einlitur hópur. Oftast voru þetta þó hugumstórar, dugmiklar og sjálfstæðar konur sem ekki létu sér allt fýrir brjósti brenna. Það mátti aldrei líða yfir leynilög- reglukonuna fyrr en allt var yfirstaðið. Ástæðan fyrir því að þær tóku að sér rann- sókn sakamála, hvort heldur sem áhuga- eða atvinnumenn, var þó iðulega sú að þær vildu bjarga heiðri eða skinni ein- hvers karlmanns eða annar göfugur til- gangur. Konurnar voru venjulega siðprúð- ar og reynslulitlar í kynferðismálum en off voru ástir í spilinu og sögurnar enduðu í hnappheldunni. Þegar þangað var komið varð ekki aftur snúið fyrir leynilögreglu- konuna - hjónabandið batt skilyrðislaust enda á allt slíkt brölt í bókum frá Viktoríu- tímanum og raunar langt fram á þessa öld. Þó var á því sú undantekning að konurnar máttu vera mönnum sínum innan handar við lausn mála og stóðu þeim gjarna síst að baki. Steve, eiginkona Pauls Temple í bók- um Francis Durbridge, sem við þekkjum ef til vill best úr gömlu útvarpsleikritun- um (Ráðgátan Van Dyke og fleiri), er sömuleiðis býsna klók kona sem kemst að ýmsu en Paul er þó yfirleitt sá sem allt veit og hirðir heiðurinn. Tuppence Beresford í sögum Agöthu Christie um Tommy og

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.