Vikan - 28.12.1989, Qupperneq 4
EFNI5YFIRLIT
Setning og umbrot:
Sam-setning
Útlitsteikning:
Brynjar Ragnarsson og
Ólafur Guðlaugsson
Þórarinn Jón Magnússon
28. DESEMBER 1989
26. TBL. 51.ÁRG.
VERÐ KR. 280
VIKAN kostar kr. 198 eintakið í
áskrift. Askriftargjaldið er innheimt
fjórum sinnum á ári, sex blöð í senn.
Athygli skal vakin á því að greiða
má áskriftina með EURO eða VISA
og er það raunar æskilegasti
greiðslumátinn. Aðrir fá senda
gíróseðla. VIKAN kemur út aðra
hverja viku. Tekið er á móti
áskriftarbeiðnum í síma 83122.
Útgefandi:
Sam-útgáfan
Framkvæmdastjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Auglýsingastjóri:
Flerdís Karlsdóttir
Ritstjórar og ábm.:
Þórarinn Jón Magnússon
Bryndís Kristjánsdóttir
Aðstoðarframkvæmdastjóri:
Pétur Steinn Guðmundsson
Höfundar efnis í þessu tölublaði:
Þórdís Bachmann
Bryndís Kristjánsdóttir
Margit Sandemo
Bjarni Árnason
Guðný Magnúsdóttir
Guðmundur Sigurfreyr Jónasson
Ævar R. Kvaran
Þórarinn Jón Magnússon
Jón Gunnarsson
William Newman
Þorsteinn Erlingsson
Kristinn Jónsson
Arnþór Hreinsson
Rósa Ingólfsdóttir
Gísli Olafsson
Guðjón Baldvinsson
Þórdís E. Ágústsdóttir
Myndir í þessu tölublaði:
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Magnús Hjörleifsson
Páll Kjartansson
Jón Gunnarsson
Ólafur Guðlaugsson
Reinhold Richter
Þórdís E. Ágústsdóttir
o.m.fl.
Dulræn málefni heilla lands-
menn fremur en margt annað.
Enda er það svo að ekkert ís-
lenskt tímarit selst í stærra upp-
lagi en einmitt það tölublað Vik-
unnar sem flytur völvuspána.
Tuttugu þúsund eintök eru
prentuð af blaðinu. Er nema von
að keppinautar Vikunnar skuli
vera eilítið súrir og sumir hverjir
ekki geta stillt sig um að hnýta í
völvuna - og gerast sporgöngu-
menn!
Að þessu sinni lætur Vikan
sér ekki nægja að birta spá
völvunnar heldur er helming
síðufjölda blaðsins varið undir
hliðstætt efni. í hverju tölublaði
Vikunnar birtist ein eða fleiri
greinar um dulræn fyrirbrigði og
hafa einkum þrír greinahöfund-
ar skipst á að skrifa þær greinar
að undanförnu. Það eru þau
Ævar R. Kvaran, Guðmundur
Sigurfreyr Jónasson og norska
skáldkonan Margit Sandemo,
höfundur bókaflokksins vinsæla
um ísfólkið.
En lítum nú á efnisyfirlit
þessa metsölurits:
7 Völvan spáir því að á fyrstu
mánuðum næsta árs verði ýms-
ir atburðir til að auka enn á
óánægju íslensku þegnanna og
óróleika frá því sem nú er. Þar
má nefna ástand í sjávarútvegi,
nýtt hneyksli hjá stjórnarliðum,
víg f heimahúsi, verkföll og
eldgos.
14 Steingeitarmerkið er tekið
til athugunar í þessu tölublaði.
18 Stjörnuspáin þín fyrir allt
árið er í þessu blaði.
Filmuvinna, prentun, bókband:
Oddi hf.
22 Margit Sandemo skrifar
sína þriðju grein fyrir Vikuna og
4 VIKAN 26. TBL.1989
tekur nú til umfjöllunar nornir og
galdrameistara.
24 Þórunn Maggý Guðmunds-
dóttir, miðill hjá Sálarrannsókn-
arfélagi (slands, hefur frá barns-
aldri haft margvíslega dulræna
hæfileika sem hún ræðir um í
viðtali við Vikuna.
27 Hjátrú á sér aldagamlar
rætur og er oftast sprottin af
„heimsku" forfeðranna.
28 Særingamenn, líknargald-
ur og sálarlyf eru til umfjöllunar í
síðari grein Guðmundar Sigur-
freys Jónassonar um seið.
34 Skáldið Krists er yfirskrift
greinar Ævars R. Kvaran um
séra Hallgrím Pétursson
37 Úrslit f samkeppni ís-
lenskra nema í fatahönnun,
sem Vikan og Smirnoff gengust
fyrir, hafa verið tilkynnt og segj-
um við frá þeim í þessu blaði.
38 Berlínarmúrinn er fallinn.
íslenskur námsmaður, Jón
Gunnarsson, var á vettvangi
fyrir Vikuna þegar hinn sögulegi
atburður átti sér stað og lýsir
í máli og myndum því sem
gerðist.
41 Martröðin heitir spennandi
smásaga eftir William Newman.
Kona söguhetjunnar og litla
dóttir þeirra voru horfnar og
hann var ekki viss um hvort þær
hefðu yfirgefið heimilið af frjáls-
um vilja. Hvað átti hann að
gera?
44 Ónæmiskerfið er flókið
fyrirbrigði. Hvers vegna fáum
við flensu að meðaltali fjórum
sinnum á ári með allt þetta varn-
arkerfi starfandi?
46 Kvikmyndirnar sem mesta
athygli vöktu á árinu 1989.
48 Síamstvíburar eiga skiljan-
lega við óteljandi erfiðleika að
etja. í þessu blaði er skýrt frá
bandarískum systrum, sem
þekkja hina sönnu lifsgleði þótt
þær séu samvaxnar.
52 Fataöfgar geta kostað
mannslíf eins og kemur fram í
grein um fatakaup bandarískra
unglinga.
54 Megrun er áreiðanlega
næst á dagskrá hjá mörgum
manninum eftir öll veisluhöldin
um hátíðirnar. Til er aðferð sem
er sögð afar árangursrík og
skýrt er frá í þessu blaði.
57 Fyrirsætustörf eru ofarlega
í huga margra ungra stúlkna.
Vikan segir frá einni þeirri
vinsælustu í dag vestan hafs.
58 Nám erlendis freistar
margra. I þessu tölublaði er
nám í kvikmyndagerð til um-
fjöllunar.
60 Krossgátan.
61 Pósturinn.
62 Myndasögur.
64 Rósa Ingólfsdóttir tekur að
þessu sinni fyrir í pistli sínum
fundargleði landsmanna.
65 Létt krossgáta og stjörnu-
spá næstu tveggja vikna.
66 Sjónvarpsmyndaflokkur
gerður eftir hinni sívinsælu sögu
Umhverfis jörðina á 80 dögum
er á dagskrá Stöðvar 2 á fyrstu
dögum nýs áratugar.