Vikan - 28.12.1989, Blaðsíða 41
Austur-Þjóðverjar í biðröð við pósthús í Vestur-Berlín til að taka á móti 100 vestur þýskum mörkum frá v-þýska ríkinu.
Austur-Þjóðverjamir voru heillaðir af vestur-þýskum stöðutáknum.
Peir notðu vakandi auga með öllu, en
leyfðu sér þó að bregða á leik. Landar
þeirra í vestri reyndu að fá þá með í
veisluhöldin í tilefni af opnun landa-
mæranna og færðu þeim kampavín og
bjór.
Þennan gráa nóvemberdag gengum við
fram á fólk hundruðum saman með hamar
og meitil að vopni við að höggva göt á
þetta hataða mannvirki. Flestir virtust vera
Berlínarbúar en aðrir komu langt að til að
taka þátt í þessari fjöldahreyfmgu. Ungur
Ameríkani mundaði nýkeyptan slaghamar
af stærri gerðinni og sagðist hafa komið
alla leið frá Los Angeles til að fá tækifæri til
að upplifa þetta. Ég sá ekki betur en að all-
ir þjóðfélagshópar ættu hér sína fulltrúa.
Sumir fengu verkfæri að láni til að höggva
sér út stein sem minjagrip.
Hinhverjir voru fljótir að átta sig á að-
stæðunum og tæpri viku síðar sáum við
fyrsta sölumanninn við Brandenborgar-
hliðið með brot úr múrnum. Brotin kost-
uðu frá tveimur vestur-þýskum mörkum
og upp í tuttugu eftir stærð. Steinar úr
Berlínarmúrnum seljast nú þegar á háu
verði í New York en þeir verða að vera
með grafflti-málningu á til að hafa eitt-
hvert söfhunargildi.
Eins og alls staðar þar sem margir koma
saman blómstrar viðskiptalífið. Við Brand-
enborgarhliðið, þar sem þúsundir söfnuð-
ust saman fyrstu dagana, var góður mark-
aður fyrir pylsur, bjór, heitt vín og sér-
stimpluð ffímerki, enda myndaðist stórt
markaðstorg á einni nóttu.
Brandenborgarhliðið að austanverðu.
Brandenborgarhiiðið hefúr sérstaka
þýðingu í hugum Berlínarbúa. Upphaflega
var það eitt af átján borgarhliðum og var
byggt 1734. Um miðjan nóvember síðast-
liðinn var hér mikil stemmning. Það var
mikið rætt meðal fólksins hvenær landa-
mærin yrðu opnuð á þessum stað en múr-
inn stendur þvert yflr hina glæsilegu
breiðgötu, Strasse des 17. juni, framan við
hliðið. Stóru fféttastofurnar voru með
beinar útsendingar héðan og mannfjöld-
inn beið eftir því að eitthvað gerðist. Aust-
ur-þýskir landamæraverðir og vestur-þýsk
lögregla höfðu vakandi auga með öllu en
allt fór ffiðsamlega fram. Frh. næstu opnu
Brandenborgarhliðið að vestanverðu.
Hér safhaðist saman mannfjöldi og
krafðist þess að múrinn yrði roflim á
þessum ffæga stað.
26. TBL.1989 VIKAN 39