Vikan - 28.12.1989, Síða 59
HVER
ER
ÞESSI
STÚLKA?
TEXTI: ÞÓRDlS BACHMANN
Claudia Schiffer er nýj-
asta stjarnan á módel-
himninum en þessi
þýska stúlka var uppgötvuð á
diskóteki.
Eftir að nýjasta auglýsinga-
herferð Guess? fýrirtækisins
fór að sjást í blöðum er fólk
farið að spyrja: Hver er þessi
stúlka? Claudia er ótrúlega lík
Birgittu Bardot á unga aldri.
180 sm og stútmunnur hafa
skotið Claudiu upp á stjörnu-
himininn í módelbransanum
með eldingarhraða. Katie Ford
hjá Ford-módelum segir að
hún geti unnið sér inn 700
þúsund dollara á fýrsta árinu
sínu hjá Ford.
Claudia Schiffer, nýjasta
stjarnan á módelhimninum,
hefur birst í auglýsingum
fyrir stórfyrirtækin Guess?
og Revlon. Einnig á fosíðum
stórblaða eins og Elle.
TlTemost ynfor^gHab|gvyomen
Claudia var nemi í smábæ í
Þýskalandi þegar hún var
„uppgötvuð" á diskóteki í
Dússeldorf. Hún hafði farið
þangað til að skemmta sér og
dansa. Á diskótekinu kom til
hennar Frakki og sagði við
hana: Þú ert mjög falleg. Viltu
verða módel?
Claudia hélt bara áfram að
dansa. „Hann gafst ekki upp.
Ég sagði honum að láta mig
vera. Þá fór hann og talaði við
vini mína.“
Að lokum lét hún hann fá
símanúmer foreldra sinna í
þeirri von að það myndi hræða
hann á brott. f stað þess
hringdi hann í þau næsta dag,
kynnti sig sem Michael Levat-
on, eiganda Metropolitan,
módelskrifstofu í París og
bauð þeim í mat. Foreldrar
Claudiu óku til Dússeldorf og
töluðu lengi við Levaton.
Eftir hvatningu frá foreldr-
um sínum fór Claudia nú að
fljúga til Parísar um helgar og í
skólafríum. Hún komst á for-
síðu franska Elle og í Revlon-
auglýsingu. „Þegar skólanum
lauk var ég sannfærð," segir
hún.
Þá var það að Ellen Von
Unwerth, annar Þjóðverji í
París, hitti Claudiu. Hún tók af
henni myndir og sá hve
Claudiu svipaði til Birgittu
Bardot. Hún benti síðan
Guess? bræðrum á Claudiu.
Þeir höfðu verið ásakaðir um
sexisma í auglýsingum sínum
og vonuðust nú til þess að fólk
hætti að ásaka þá ef kvenljós-
myndari tæki myndir þeirra.
Þess í stað ollu myndirnar af
Claudiu enn meira umtali en
fyrri auglýsingaherferðir
Guess? Nú er nýbúið að taka
aðra auglýsingaseríu með
Claudiu á ftalíu og myndirnar
sýna „Birgittu Bardot í fríi“.
Claudia er sjálf á stöðugu
ferðalagi. Á næstunni fer hún
til Saint Tropez en þar ætlar
Mademoisefle að mynda hana
sem — getið þið hverja! - Birg-
ittu Bardot.
„Ég hef áhuga á mismunandi
menningu," segir Claudia. „En
ég er ekki svo viss um tísku-
menninguna. Þetta fólk lifir í
öðrum heimi. Mig langar tif að
vera sama stúlkan áfram.“
Og hún á ekki við að hún
vilji vera Birgitta Bardot, bætir
hún við með mikilli tilfinn-
ingu. „Ég dáist að henni. Ég
vildi að ég gæti fengið að hitta
hana. En ég er ekki að reyna að
vera eins og hún. Það fer í
taugarnar á mér þegar sagt er:
’Hún er Bardot.’ Ég vil ekki
vera Bardot. Ég er Claudia
Schiffer."
26. TBL.1989 VIKAN 57