Vikan - 28.12.1989, Qupperneq 66
Fundasýki landsmanna
Nú er svo komið að
enginn telst eigin-
lega maður með
mönnum nema
hann sé á fundi! Hafið þið tek-
ið eftir þessu? Og það skrítn-
asta við þetta allt saman er að
það eru nánast allir meira og
minna á fundi — sama á hvaða
tíma sólarhringsins maður
hringir...ég segi nú ekki að sagt
sé að viðkomandi sé á fundi
klukkan fjögur um nótt! Þá
hlyti það nú að vera einhvers
konar fundur sem manni
hreiniega kemur ekki
við...hvers eðlis sem hann er,
skárri væri það nú líka dóna-
skapurinn að fara að spyrja að
því — fólk má nú eiga sitt
einkalíf í friði. Svo veit maður
aldrei nema viðkomandi láti
hlera símann hjá sér, það er
víst að færast í vöxt að fólk
geri slíkt. Þeir hjá Símanum
hafa víst ekki undan að sinna
þessari nýju þjónustu.
Nú, ég heyrði því fleygt ekki
alls fyrir löngu að það væri
bara komið í tísku að láta hlera
símann hjá sér, það væri
eitthvað svo voldugt yfir því.
Það væru víst aðallega þeir
sem væru að drepast úr minni-
máttarkennd og þyrftu því að
láta líta svo út sem þeir væru
alveg ofboðslega eftirsóttir og
spennandi. Hjá þessu fólki
liggja víst líka flestir símsvar-
arnir sem núna eru svo mikið í
tísku og sagt er að það hittist
einnig svo furðulega á að þetta
sama fólk séu einmitt aðilarnir
sem alltaf eru á fundum, það sé
bara ekki nokkur einasta leið
að ná í þetta fófk.
Ég veit til dæmis um mann
sem lenti í því pínlega ástandi
að hringja óvart eftir klukkan
tvö um nótt í konu eina sem
tók að sér aukaverkefni í tölvu-
forritun...ekki það að maður-
inn sé svo mikill dóni að hann
viti ekki að það er helber
dónaskapur að hringja í hús
eftir klukkan tíu á kvöld-
in...nei, nei, hann hringdi ein-
faldlega af því að hann var á
fundi og gáði ekki að því hvað
tímanum leið, fundasýkin var
svo gífurleg. Konan, sem var
ein af þessum manneskjum
sem ég var að segja ykkur frá
áðan, þeim sem eru í hópi
þeirra með minnimáttar-
kenndina og er alveg gasalegá
athyglisjúk, hún náttúrlega
blómstraði þarna í símanum
klukkan tvö um nótt...je
minn, hellti sér yfir manninn
með öllu því orðaflóði sem í-
myndunaraflið bauð henni þá
stundina og hótaði að láta lög-
regluna vita ef hann léti sér
svo mikið sem koma til hugar
að hringja aftur í hana á þess-
um ónáttúrulega tíma! Hún
sagðist nú aldeilis vera í alveg
gulltryggðri vernd hjá þeim
sveinum á Símanum og nú
myndu þeir hreinlega gefa
henni upp hvaðan hann
hringdi og þá væru hæg heima-
tökin fýrir yfirvöld þessa lands
að taka hann í karphúsið!
Aumingja manninum varð
svo mikið um þessa afgreiðslu
að upp frá þessu veigraði hann
sér við því að vera mikið á
fundum. Hann var allt í einu
farinn að versla ískyggilega
mikið við Kornmarkaðinn og
þótti eitthvað fölur og tekinn í
framan, það var víst ristillinn
og þar að auki þótti fólki afar
skrítið að maðurinn var orðinn
símalaus, taldi hann óþarf-
an...aldeilis alveg magnað!
Hann Gústi sem vegna starfs
síns þurfti manna helst að nota
síma!
Svona getur fundasýki til
dæmis farið með margan góð-
an efhiviðinn. Eitt þekktasta
fyrirbærið er þegar fólk lætur
jakkann eða kápuna hanga á
stólbakinu eða skilur eftir hálf-
kláraða ritgerð á borðinu og
við hliðina liggur svo miði sem
á stendur: „Er á fundi, kem eft-
ir 2 klst.“ Þvílíkt bull og vit-
leysa! Þá er bara verið að sóla
sig í einhverjum sólarlampan-
um, kíkja í búðir eða stelast til
að drekka kaffisopa með vin-
konunni einhvers staðar á
huggulegum stað!
Það þykir sem sagt afskap-
lega mikilvægt um þessar
mundir að vera á fundum!
Meira að segja börn og ungl-
ingar eru komin inn í dæmið.
Þegar þau koma heim úr
skólanum er ekki nokkur leið
að halda þeim innandyra nema
svo sem eins og hálftíma því
það er fúndur klukkan þetta og
klukkan hitt hjá hinum og
þessum og ekki vitað nema
fundurinn standi til klukkan
tíu eða ellefu í kvöld, þannig
að best sé að vera ekkert að
hafa áhyggjur af því að halda
matnum heitum! Og svo þegar
halla fer í miðnætti hittist fjöl-
skyldan eins og fyrir tilviljun á
baðherberginu, þar sem allir —
eins og í leiðslu — teygja hönd-
ina í áttina að tannburstastatíf-
inu...nei, en gaman að sjá þig.
Get ég fengið far með þér í
fyrramálið? Ég þarf nefhilega
að fara á fund klukkan níu og
hvað segirðu Steini, ertu að
rjúka út núna þegar kominn er
háttatími? Það getur ekki verið
að nokkurt einasta fyrritæki sé
með fund svona seint...!
Fundir hér og fundir þar,
fundir þar og alls staðar stend-
ur einhvers staðar. Þannig er
það með blessaða þjóðina um
þessar mundir, fundasýkin er
komin út í vitleysu!
64 VIKAN 26. TBL1989