Vikan - 11.01.1990, Blaðsíða 23
VIKAM I ROM
JÓLAC5ETRAUMm
•........ ‘
Borðhald þessa ungabams er ekki gæfu-
legt. Mörg bamanna þama hafa flæking-
amir keypt í Júgóslavíu.
Það þykir ekki tiltökumál að böm sötri
bjór, hvað þá að foreldrar kyngi sterkum
drykkjum fyrir framan afkvæmin.
vagnarnir eru vel loftræstir, það gera gluf-
ur og ónýt samskeyti.
Stuttu síðar gjörðist sá atburður í bæn-
um að maður nokkur, sem flakkarabörn
rændu, brást illa við, greip í hnakkadramb
barnanna og fór með þau á næstu lög-
reglustöð. Þar „brotnuðu börnin niður“ og
sögðu sögu sína. Þau voru ekki afkvæmi
foreldra sinna heldur börn sem flakkararn-
ir kaupa af fátæku bændafólki í Júgóslavíu.
Eina skólagangan sem þau fá er kennsla í
betli og þjófnaði. Sögðust þau vera barin
mikið og illa af fósturforeldrum sínum ef
þau kæmu ekki heim með að minnsta kosti
hundrað þúsund lírur eftir daginn.
Börnin eru yfirleitt þrjú saman, það
stærsta heldur á pappastykki sem það legg-
ur lárétt upp við fórnarlambið og á meðan
barnið volar „vegna kærleika guðs á öllu
mannkyni, gefðu mér hundrað lírur til að
borða fyrir, mamma mín er á spítala og
pabbi minn er dáinn“, þá starfa hendur
hinna barnanna í skjóli pappaspjaldsins í
vösum og veski viðkomandi. Hugmyndin á
bak við pappann er ennfremur sú að á
hann á að vera skrifaður langur texti sem
heldur athygli hins rænda á meðan hann
er rændur, en vegna skorts á menntafólki
er spjaldið yfirleitt autt.
Þetta varð til þess að um fjörutíu konur
úr kampinum undir Marconibrúnni voru
handteknar og fengu húsaskjól hjá ítölsk-
um yfirvöldum í um mánaðartíma. Mansal
og þjófnaðir brjóta í bága við ítölsk lög.
Litli ljóshærði geðveili drengurinn var þá
svona ólíkur höfðingjanum föður sínum
og móðurinni, báðum dökkum yfirlitum,
vegna þess að hann var ekki skyldur þeim
heldur eitt þessara keyptu barna.
Á endanum var ekkert gert í málinu.
Konurnar sneru aftur heim undir brúna.
Það komu aldrei kamrar, vatnslagnir eða
raflínur í kampinn því sorphrúgurnar voru
ekki fjarlægðar heldur stækkuðu og þrosk-
uðust. Þremur mánuðum síðar gáfust
borgaryfirvöld upp og ráku flakkarana
burtu. Síðan komu jarðýtur og vörubílar
og síðast var fljótsbakkinn girtur af.
En Róm er enn full af þessu förufófld.
Konurnar sitja á götunum og betla með
ungbarn í kjöltunni, rólfæru börnin vinna
við þjófnað og betl. Mennirnir sitja heima
og bíða eftir þjónustu.
Blessuð börnin, verður fólki á að hugsa,
skítug, fátæk, ömurlega fýrir þeim komið.
Eða konurnar, neyðast til að sitja á kaldri
götunni og höfða til samúðar annarra.
Þetta er rangt. ítölsk yfirvöld hafa gert
meira fyrir þetta fólk en sitt eigið. Eða r.s.
reynt að gera það. Kennarar hafa verið
sendir í búðirnar til barnanna því ein-
hvern veginn var ekki hægt að ætlast til að
þau gengju í venjulega skóla. En nemend-
urnir voru aldrei viðlátnir. Karlmönnun-
um hefur verið boðin vinna en af fjöl-
mörgum orsökum gátu þeir ekki stundað
hana.
Samt aka þeir allir á BMW, sjaldgæfiri
bílategund hér í plássi. Konurnar kaupa
aðeins það besta og dýrasta í matinn og
það veit ég þannig að ég verslaði í sama
kaufifélagi og þær. Því hætti ég sökum þess
að allar myndirnar, sem ljósmyndadreng-
urinn lofaði, létu aldrei sjá sig og þegar
hótanir höfðu verið ítrekaðar dáldið við
mig áleit ég heppilegra af heilsufarsástæð-
um að skipta um kaufifélag.
Nokkru síðar fluttum við og njótum nú
þeirra forréttinda að búa í næsta nágrenni
við alvörusígauna. Innfæddir nötra í brók-
inni af ótta við þetta fólk. Það er óþarfi,
svo lengi sem maður gerir ekkert á hluta
þess, því það er mikill munur á flökkufólk-
inu og sígaunum.
Flökkufólkið má þekkja á druslunum
sem konur og börn ganga í, á skítnum sem
á sér langa sögu að baki og blindir menn
geta vinsað það úr á lyktinni. Sígaunarnir
eru fallega klæddir, konurnar allar í síðum,
litskrúðugum kjólum eins og í bókunum,
hárið greitt og þau eru hrein. Sígauni betl-
ar aldrei. Konurnar bjóðast til að spá fyrir
manni gegn hæfilegri þóknun og mennirn-
ir vinna. Þeir eru með hrossarækt hérna
handan hraðbrautarinnar og stunda útlán.
Á peningum, ekki hrossum.
Og þeir aka ekki á BMW. Þeir aka á alls
kyns, nema höfðinginn. Hann á eina Rolls
Royceinn sem hefur ekið í gegnum þetta
hverfi. □
50 plötur til
vinningshafa
Þátttaka yngri lesenda Vikunnar í jóla-
getrauninni var mjög góð og kann blaðið
þeim bestu þakkir fyrir áhugann. Fimm-
tíu verðlaun voru veitt fyrir réttar úr-
lausnir og voru það hljómplötur firá
Steinum hf. Voru þær sendar vinnings-
höfum fyrir jól. Rétt svör voru: 1. Egypta-
land, 2. Indland, 3. Mexíkó, 4. Grænland,
5. Sviss, 6. Kína, 7. Spánn og 8. Noregur.
• Halldóra Jóhanna Arnarsdóttir, Fjarðar-
stræti 55, ísafirði. • Gígja Símonardóttir,
Hjarðarholti 6, Akranesi. • Hanna Karlsdóttir,
Heiðarbraut, Húsavík. • Kristín H. Andrés-
dóttir, Hlégerði 12, Kópavogi. • Linda Stef-
ánsdóttir, Mýrarholti 6a, Ólafsvík. • Anný H.
Bjarnadóttir, Brekkutanga 38, Mosfellsbæ. •
Þorbjörg og Árni Gunnarsbörn, Brúarholti 2,
Ólafsvík. • Helgi Hrafn Reimarsson, Heið-
vangi 24, Hafharfirði. • Halldóra Sverrisdótt-
ir, Oddeyrargötu 120, Akureyri. • Víðir Sig-
urðsson, Blöndubakka 5, Reykjavík. • Þórar-
inn Hlynur Arnarson, Nestúni 21, Hellu. • Ey-
þór Rúnar Þórarinsson, Bæ 1, Hrútafirði. •
Erla og Eydís Jónsdætur, Kvíabala 4, Drangs-
nesi. • Elísabet G. Foss, Pósthússtræti 13,
Reykjavík. • Guðrún Þorsteinsdóttir, Spóa-
rima 6, Selfossi. • Kristjána Magnúsdóttir,
Fjarðarseli 4, Reykjavík. • Viktoría Karlsdótt-
ir, Miðgarði 7, Neskaupstað. • Helga Birna
Stefánsdóttir, Austurströnd 8, Seltjarnarnesi.
• Kristín Viggósdóttir, Aðalstræti 7, Patreks-
firði. • Daníel Wiliiamsson, Garðsenda 9,
Reykjavík. • Ingibjörg Ólafsdóttir, Sundstræti
37, ísafirði. • Sigríður Ósk Jónsdóttir, Gren-
igrund 13, Akranesi. • Pétur H. Kristjánsson,
Langahlíð 8, Akureyri. • Ómar Freyr Sigur-
bjömsson, Suðurgötu 28, Akranesi. • Petra
Vilhjálmsdóttir, Miðvangi 12, Hafharfirði. •
Daníel Gestur Tryggvason, Gerðavöllum 9,
Grindavík. • Sigurður G. Gíslason, Heiðar-
hrauni 52, Grindavík. • íris Linda Árnadóttir,
Auðarstræti 9, Reykjavík. • Bjarney Sigurðar-
dóttir, Sólheimum, Króksfjarðarnesi. • Guð-
laugur Eyjólfsson, Suðurvör 11, Grindavík. •
Anna R. Halldórsdóttir, Lyngbrekku 13, Kóp-
avogi. • EUert Hlöðversson, Háteigi 9, Kefl-
avík. • Eiður Fannar Erlendsson, Heiðarbraut
9, Sandgerði. • Guðmundur Pálsson, Sæbóli
18, Grundarfirði. • Ragnheiður I. Ragnars-
dóttir, Traðarstíg 4, Bolungarvík. • Hanna
Regína Jónsdóttir, Yrsufelli 15, Reykjavík. •
Valdís Þorsteinsdóttir, Brekkugötu 1, Hrísey.
• Margrét B. Jónsdóttir, Seljalandsvegi 36,
ísafirði. • Laufey S. Þormóðsdóttir, Borgarg-
erði 6, Reykjavík. • Guðlaug S. Ragnarsdóttir,
Kveldúlfsgötu 20, Borgarnesi. • Ýmir og Orri
Finnbogasynir, Öldugötu 51, Reykjavík. •
Ósk Ásgeirsdóttir, Akurgerði 1, Kópaskeri. •
Björg Eyþórsdóttir, Hörgshlíð 4, Reykjavík. •
Ásbjörg Magnúsdóttir, Klausturhvammi 12,
Hafnarfirði. • Birgir Jónsson, Ásvegi 28,
Breiðdalsvík. • Jóhanna Kolbeinsdóttir,
Skarðshlíð 28d, Akureyri. • Ólafur Páll Ein-
arsson, Furuhjalla 9, Kópavogi. • Fríða Hrönn
Halldórsdóttir, Túngötu 25, Vestmannaeyj-
um. • Unnur Valborg Hilmarsdóttir, Álakvísl
40, Reykjavík. • Elísabet Arnardóttir, Skag-
firðingabraut 35, Sauðárkróki.
l.TBL.1990 VIKAN 23