Vikan


Vikan - 11.01.1990, Blaðsíða 33

Vikan - 11.01.1990, Blaðsíða 33
TEXTI: ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON ▲ Stuttbuxnasamfestingur. Nunnuhetta, gammósíur og háir sokkar og hanskar. ► Kufl með hettu tekinn saman í hliðum með belti. Krosssaumaður að framan. Skrautband á neðri hluta. á bláum ís r Islensku nemarnir fjórir í fatahönnun, sem báru sigur úr bítum í hönnunarsamkeppni Vikunnar og Smirnoff á íslandi og sagt var frá í síðasta tölublaði, hafa síðustu vikur keppst við að sauma föt þau er verðlaunateikningarnar sýndu. Fötin þurfa að vera tilbúin fyrir 29. janúar, en þá fer fram keppni norrænna nema í fatahönnun í Helsinki. Þaðan fer svo einn nemi frá hverju Norðurlandanna til Lundúna þar sem úrslitakeppnin 1990 fer fram. Nema fjórir sem unnu til verðlauna hér heima heita Þórunn Jónsdóttir, Valgerður Melstað, Rósa Jónsdóttir og Valgerður Schopka. Tvær fyrrnefndu stúlkurnar eru við nám í Róm, en hinar tvær í París. öllum er stúlkunum boðið til Helsinki til að vera viðstaddar þegar úrslitin þar verða tilkynnt. Arna Kristjánsdóttir fatahönnuður og fulltrúi Vikunnar í þeirri þriggja manna dómnefnd sem réði úrslitum í keþpninni hér á landi mun einnig eiga sæti í dómnefndinni I Finnlandi. Franska tískukynningarfyrirtækið Promostyl lagði línurnar fyrir keppendurna varðandi þemað, en það snýst um höfuðskepnurnarfjórar; vatn, vind, jörð og eld. Hér í opnunni birtum við teikningar Þórunnar Jónsdóttur, sem færðu henni fyrstu verðlaun í forkeppninni hér heima. Yfirskrift hennar er: Nunnur á bláum ís.Jeynd og Ijós tilbrigði. Og þemað er vatn í föstu formi. Þórunn notar ullarefni í þykkara lagi í band við prjónaefni í gammósíur, sokka og annað þess háttar. Litirnir sem hún valdi eru í köldum tón. Einskonar tilbrigði við bláan frumlit. Þórunn hélttil náms í fatahönnun við Esmod í Róm eftir eins árs nám f Iðnskólanum í Reykjavík. Hún er nú að Ijúka fjórða og síðasta árinu við Esmod og hefur þegar skilað inn lokaverkefni sínu. l.TBL. 1990 VIKAN 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.