Vikan - 11.01.1990, Blaðsíða 52
Myndin sem prýðir nýjasta dagatal Mazda, en það er prentað í milljónum eintaka og dreifist um allan heim.
Magnús Hjörleifsson vinnur öðru sinni í Ijósmyndasamkeppni Mazda
TEXTI: ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON
Það er ekki amalegt að fó greiddar
hátt í 200 þúsund krónur fýrir eina
einustu ljósmynd. En það er einmitt
sá glaðningur sem Ijósmyndarinn
okkar, hann Magnús Hjörleifsson, fáer
á næstu dögum fyrir ljósmynd sem
hann sendi í samkeppni sem bifreiða-
verksmiðjurnar Mazda efndu til.
Myndin er ein af tólf myndum sem
prýða nýjasta dagatal fyrirtækisins.
Þetta er í annað skipti sem Magnús
sendir Mazda ljósmynd. Fyrri myndin
vann einnig til hárra peningaverðlauna, en
það var árið 1985. Þátttakan er jafnan mik-
il í þessari samkeppni enda verðlaunin
vegleg. Dómnefndin valdi úr nær átta þús-
und ljósmyndum, sem borist höfðu frá
rúmlega sextíu þjóðlöndum þar sem bif-
reiðarnar frá Mazda eru seldar.
Auk þess sem verðlaunamyndirnar eru á
dagatali Mazda hefur fyrirtækið keypt
auglýsingasíður í hinum virtu tímaritum
Newsweek og National Geographic þar
sem verðlaunamyndirnar birtast. Eftir-
sóknarverður heiður fyrir ljósmyndara.
Myndina sem vann til verðlauna tók
Magnús í slagviðri á Reykjanesi. Ekki bein-
línis heppilegasta veðrið til ljósmynda-
töku, en Magnús segist aldrei bíða eftir
góðu veðri þegar vinna þarf úti við. „Þá
glötuðust hæglega margar vinnuvikur,"
segir Magnús, en hann starfar að ljósmynd-
un sem sjálfstæður verktaki. Hefur einna
mest unnið fyrir tímarit SAM-útgáfunnar;
Vikuna, Samúel og Hús & híbýli.
Meðferðis í ljósmyndatökuna hafði
Magnús sjö metra langa slæðu sem rokið
tók vel í meðan á myndatökunni stóð.
Fyrirsætan litla heitir Silja og er dóttir
Magnúsar. Hún var einnig á fyrri verð-
launamynd Magnúsar og þá ásamt Ara
bróður sínum.
Til hamingju með árangurinn, Magnús.
Verðlaunamyndin sem Magnús átti á dagataii Mazda 1985.
UÓ5MYHDUM
SIGURSÆLL UÓSMYNDARI
50 VIKAN l.TBL. 1990