Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 24
TEXTI, TEIKNINGAR OG LJÓÐAPÝDING: ÞORSTEINN EGGERTSSON
STJÖRNUMERKIN
ÍKORNINN
(Átt: Norður (N), ár: 1900, 1912, 1924, 1936,
1948, 1960, 1972, 1984, 1996)
Ég er safnarinn sjálfskapaði.
Ég er hlekkur en virka sem heild.
Ég stefni upp í víðsýnar hæðir
og næ markmiðum mínum með vissu.
Lífið er mér skemmtiferð.
Hver leit
verður að enda á nýrri spurningu.
Ég er framför, könnun og innsæi.
Ég er vagga framkvæmdanna.
Ég er íkorninn.
NAUTIÐ
(Átt: Norðnorðaustur (NNA), ár: 1901, 1913,
1925, 1937, 1949, 1961, 1973, 1985, 1997)
Ég bý yfir aflinu stöðuga
sem viðheldur hringrás lífsins.
Ég stend óhagganlegt á móti
tilraunum andstæðingsins,
einbeitt og flekklaust.
Ég leitast við að þjóna ráðvendninni
og bera byrðar réttlætisins.
Ég hlýði lögmálum náttúrunnar -
þoka örlagahjólinu með þolinmæði.
Þannig vef ég örlög mín.
Ég er nautið.
TÍGRISDÝRIÐ
(Átt: Austnorðaustur (ANA), ár: 1902, 1914,
1926, 1938, 1950, 1962, 1974, 1986, 1998)
Ég er þversögnin yndislega.
Allur heimurinn er leiksvið mitt.
Ég uppljóma nýjar slóðir;
leita þess ófáanlega
og reyni það óreynda.
Ég dansa eftir tónlist lífsins
í glaðværu hömluleysi.
Komdu með mér í hringekjuakstur.
Sjáðu margbrotna litadýrðina,
flöktandi Ijósin.
Allir hylla mig, óviðjafnanlegan leikarann.
Ég er tígrisdýrið.
KÖTTURINN
(Átt: Austur (A), ár: 1903, 1915, 1927, 1939,
1951, 1963, 1975, 1987, 1999)
Ég lifi í takt við púls alheimsins.
í hljóðri einsemd minni
heyri ég hljómkviður sálarinnar.
Ég er hafinn yfir hversdagslegt
andóf og hnignun.
Ég yfirbuga með aðlögunarhæfni minni.
Ég lita orð mín
með viðkvæmum, fölum litbrigðum.
Ég er dæmigerður fyrir samræmi og innri frið.
Ég er kötturinn.
DREKINN
(Átt: Austsuðaustur (ASA), ár: 1904, 1916,
1928, 1940, 1952, 1964, 1976, 1988, 2000)
Ég er eldurinn óslökkvandi,
miðpunktur allrar orku,
hetjuleg hugdirfskan.
Ég er sannleikur og Ijós.
í sveiflu minni er máttur og dýrð.
Návist mín tvístrar dimmum skýjum.
Ég hef verið valinn
til að temja örlögin.
Ég er drekinn.
SNÁKURINN
(Átt: Suðsuðaustur (SSA), ár: 1905, 1917,
1929, 1941, 1953, 1965, 1977, 1989)
Ég bý yfir vísdómi aldanna.
Ég held lyklinum að leyndardómum lífsins.
Ég dreifi sæði mínu í frjóa mold
og fóstra það með tilgangi og festu.
Sjón mín er hnitmiðuð.
Augnaráð mitt er óhagganlegt.
Ósveigjanlegur, staðfastur og djúpur
nálgast ég á stöðugu, markvissu skriði
trausta jörðina undir mér.
Ég er snákurinn.
24 VIKAN 24. TBL.1990