Vikan - 29.11.1990, Side 35
TVÖFALDA
BEAT-IÐ
Stefán Hilmarsson syngur með
nýrri soul- og fönkhljómsveit
Adögunum var í Reykja-
vík stofnuð ný hljóm-
sveit, hljómsveit sem
rriun hafa það að eindreginni
stefnu sinni að hefja á loft
merki taktfastrar soul- og fönk-
tónlistar á íslandi. Sveitin hef-
ur hlotið nafnið Tvöfalda
beat-ið og er skipuð þeim
Stefáni Hilmarssyni, sem sér
um söng og upphrópanir, Jóni
Ólafssyni, sem leikur á
Hammondorgel, Eiði Arnars-
syni, sem plokkar bassann,
Stefáni Hjörleifssyni, sem
handleikur gítarinn, og Ólafi
Hólm, sem situr við trommu-
Þeir félagar munu að mestu
leyti snúa sér til föðurhúsa, í
orðsins fyllstu merkingu, hvað
varðar lagaval á efnisskrá. í
því sambandi hafa einkum
nöfn eins og James Brown,
Wilson Picket og Steve Win-
wood verið nefnd til sögunnar,
ásamt mörgum fleiri sem þóttu
skara fram úr á því tímabili
þegar soul-tónlistin stóð í
blóma - tímabili þegar enginn
var maður með mönnum
nema geta farið kórrétt með
vers og viðlög laga eins og
Out of Sight, Papa’s Got a
Brand New Bag, I Got You, In
the Midnight Hour, Funky
Broadway, Show Me, Must-
ang Sally, A Man and a Half,
Respect, Heatwave og ótal
margra annarra.
Reyndar eru nú margir
þessara flytjenda ennþá í fullu
fjöri og senda reglulega frá sér
efni og mun Tvöfalda beat-ið
að sjálfsögðu gera hinu nýja
efni skil eftirföngum. Einnig er
það ætlun þeirra félaga að
gefa nýrri flytjendum á þessari
línu gaum að svo miklu leyti
sem efni standa til.
Eins og áður sagði eru
margir frumherjanna enn á
fullri ferð. Þó situr einn þeirra
(og líklega sá sem hvað dýpst
spor hefur markað í sögu
þessarar tónlistarstefnu) um
þessar mundir í fangelsi. Þaö
er foringinn sjálfur, James
Brown. Þetta þykir meðlimum
Tvöfalda beat-sins súrt í broti
og afskaplega óviðunandi.
Tvöfalda beat-ið mun því hafa
það að langtímamarkmiði sínu
að beita sér fyrir því að James
verði sleppt úr haldi þannig að
hann geti snúið sér að tónlist-
arsköpun og tónleikahaldi á
nýjan leik sem allra fyrst.
Með frelsisbyr í brjósti og
fönk-kippi í fingrum hélt Tvö-
falda beat-ið sína fyrstu tón-
leika í Púlsinum við Vitastíg. (
desember leikur síðan hljóm-
sveitin meðal annars á Gauki
á Stöng, Tveimur vinum og
Hótel íslandi.
POUR HOMMES!
JOOP!