Vikan - 29.11.1990, Page 40
ÍSLENSK ROKKTÓNLIST
VITLAUSIR MENN
Á VITLAUSUM STAÐ
Á RÉTTUM TÍMA
Eftir langa mæðu er íslensk rokk-
tónlist að verða að einhverju sem
talandi er um. Ástæðan er sú að
loksins er komið nógu mikið af
nógu geggjuðum mönnum sem
láta sér detta það í hug að eyða
tíma, peningum og orku í þann
yfirmáta ópraktíska hlut að spila
rokktónlist. Niðurstöður vett-
vangsrannsóknar birtast hér á
eftir.
HINN KANTURINN Á
ROKKGEIRANUM
íslensk rokktónlist hefur verið í
mikilli uppsveiflu undanfarið og
virðist ætla að halda áfram þá
leiðina sem fær mann næstum til
að garga af gleði. Þó hefur ein og
ein hljómsveit verið á róli gegnum
tíðina þannig að þetta hefur ekki
verið alger eyðimörk fram að
þessu. Bootlegs er vafalaust
þekktasta rokkhljómsveitin f
þyngri kantinum hér á landi enda
búin að starfa í rúm fjögur ár, hef-
ur sent frá sér plötu og er með
aðra á leiðinni. Þeir í Bootlegs
spila svokallað „Thrash Metal"
eins og alþjóð ætti að vita og eru
algjörir frurcjjsvöðlar á því sviði
hérlendis. Ég er reyndar frekar
hissa á að fleiri slíkar hljómsveitir
skuli ekki vera búnar að koma sér
á framfæri því þessi tónlistarteg-
und á sér öflugan aðdáendahóp.
Svo maður færi sig frá Boot-
legs og í hinn kantinn á rokkgeir-
anum þá er þar Exist sem búin er
að starfa í allnokkurn tíma og hef-
ur innanborðs menn sem eru
búnir að vera í þessum bransa í
sautján ár eins og segir í kvæð-
inu. Frá músíkbænum Keflavík §
kemur hljómsveitin Pandóra sem $
reyndar hefur, eins og Exist, kom- m
ið afurðum sínum á framfæri Q
bæði á plasti og myndbandi. n.
Meira er svo væntanlegt frá þeim o
í náinni framtíð. £
Af nýjustu hljómsveitunum má ^
nefna Sororicide sem er líklega «
fyrsta „Death Metal“ hljómsveitin 3
á íslandi, Nabblastrengi sem unnu
sfðustu músfktilraunir, Hydra
sem lenti í öðru sæti f hljóm-
sveitakeppni í Húnaveri í sumar,
Edrú sem er skipuð ungum og
efnilegum strákum úr Hafnarfirði
en mætti gjarnan vera með meira
frumsamið efni. Svo er það Bone-
yard sem hefur komið hvað mest
40 VIKAN 24. TBL. 1990
Bootlegs er vafalaust þekktasta hljómsveitin í þyngri kantinum.
á óvart af þessum nýju hljóm-
sveitum og er kannski sprengjan
sem íslenskt rokk þarf á að halda
til að komast á verulegan skrið.
Til að kynna mér þessa bombu
nánar og fá innanbúðarálit á tón-
listarl ífinu á íslandi fékk ég hljóm-
sveitarmeðlimi í eilítið spjall eitt
þónokkuð gott föstudagskvöld.
Boneyard er í dag skipuð þeim
Halli Ingolfssyni trommuleikara
með meiru, Sigurði Gíslasyni
sem sér alfarið um gítarleik,
bassann plokkar eða lemur Guð-
mundur Þ. Sigurðsson og hinn
handóði könnuður Viihjálmur
Friðriksson sér um söng og önn-
ur búkhljóð. Þeir hafa allir spilað í
hinum ýmsu hljómsveitum áður,
bæði hér heima og erlendis, og
eru því ekki alveg blautir bak við
eyrun.
BEINT FRÁ
HJARTANU
Stofnendur hljómsveitarinnar,
Siggi og Gummi, komu sér sam-
an um að upphafið hefði verið
það að þeir tveir, ásamt Guð-
mundi Bjarna gítarleikara (hann
hefur nú hætt), hafi ákveðið að
koma saman bandi. Þeir höfðu
mikinn áhuga á að fá Hall til liðs
við sig en hann var þá trommu-
leikari í Ham. Þeir gerðu honum
því tilboð sem Hallur segist hafa
hugleitt, rétt svona lauslega, eða
allt þar til Siggi gerði sér ferð