Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 69
1. SÚKKULAÐIBOLLUR
Uppskrift:
75 g mjúkt smjör,
90 g púðursykur,
2 tsk. vanillusykur,
2 msk. kakó,
rommdropar,
3 dl haframjöl,
súkkulaðikorn til skrauts.
Hrærið saman smjör, sykur, vanillusykur og
kakó og bragðbætið með rommdropunum.
Hrærið síðan haframjölinu saman við. Látið
blönduna standa á köldum stað í smátíma en
hnoðið svo úr henni smákúlur sem velt er upp
úr súkkulaðikominu.
2. MARSfPANBRAUÐ
Uppskrift:
250 g möndlur,
250 g sykur,
eggjahvítur,
sérrí eða vatn,
10-12 kokkteilber,
50 g Ijóst suðusúkkulaði,
100 g hjúpsúkkulaði,
valhnetukjarnar.
Takið utan af möndlunum. Hakkið þær í
kvörn, fyrst einar sér og síðan aftur og þá með
sykrinum. Hnoðið þessu saman með svolitlu af
hálfþeyttri eggjahvítu (2 tsk.) og smávegis
sérríi eða vatni þar til deigið er orðið mjúkt.
Hnoðið nú saman við gróft hökkuð kokkteilber
og saxað súkkulaði og búið til rúllu úr deiginu.
Bræðið hjúpsúkkulaðið og smyrjið því á rúli-
una. Skreytið með valhnetukjörnunum.
3. SÚKKULAÐIKARAMELLUR
Uppskrift:
3 dl rjómi,
725 g púðursykur,
2 dl dökkt síróp,
2 msk. kakó,
1 tsk edik (7%).
Blandið saman í potti rjóma, sykri, sírópi og
kakói og látið suðuna koma upp. Setjið edikið
út í og látið karamellublönduna malla i um það
bil eina klukkustund án þess að hafa lok á pott-
inum. Kannið hvort blandan sé orðin nógu vel
soðin. Það er gert með því að láta hana drjúpa
af skeið á disk eða blað. Ef hún stirðnar er
hún hæfilega soðin. Þá er blöndunni hellt á
olíuborinn pappír og þegar hún hefur stífnað
nægilega er hún skorin í stykki. Vefjið sellófan-
pappfr utan um hverja karamellu og geymið
þær svo á köldum stað.
4. GAMALDAGS
RJÓMAKARAMELLUR
Uppskrift:
75 g smjör,
3 dl rjómi,
350 g púðursykur,
2 dl Ijóst síróp,
1/2 tsk. salt,
1/2 tsk. edik (7%),
1 1/2 dl gróft hakkaðar möndlur eða
heslihnetukjarnar.
Bræðið smjörið I potti með þykkum botni.
Setjið rjóma, sykur, síróp og salt út í og látið
blönduna sjóða en hrærið vandlega í á meðan.
Setjið edikið út í og sjóðið blönduna í um það
bil 50 mínútur og hrærið jafnt og þétt í henni.
Kannið á sama hátt og hér á undan hvort
blandan sé orðin nógu stíf. Setjið möndlur eða
hnetukjarna út í, hellið blöndunni á olíuborinn
pappír og leyfið henni að stífan. Skerið í hæfi-
lega bita.
5. SÚKKULAÐIBITAR MEÐ
KORNFLÖGUM
Uppskrift:
100 g suðusúkkulaði,
2 msk. jurtafeiti,
1 dl kornflögur,
1/2 dl rúsínur.
Blandið saman súkkulaði og jurtafeiti í skál
sem sett er yfir vatnsbað. Það verður að gæta
þess að ekki komist vatn eða gufa að súkku-
laðinu á meðan það er að bráðna. Þegar
súkkulaðið er bráðið er hrært út I það rúsínum
og kornflögum. Setjið þetta svo I lítil mislit ál-
form og hafið þau á köldum stað þar til bitarnir
eru orðnir hæfilega harðir.
6. SYKURHJÚPAÐAR MÖNDLUR
Uppskrift:
60 g möndlur,
300 g púðursykur,
100 g glykóse (fæst í lyfjabúðum),
1 1/4 dl vatn og rauður matarlitur.
Skolið og þurrkið möndlurnar. Sjóðið saman
sykur, glykóse og vatn þar til blandan er farin
að stífna. Bætið nokkrum dropum af rauðum
matrlit út í. Hellið blöndunni í skál og hrærið í
henni þar til hún er orðin köld og farin að
þykkna. Setjið nú möndlurnar út í og haldið
áfram að hræra I þar til blandan hefur þykknað
enn meira. Gætið þess að möndlurnar séu vel
huldar með sykurblöndunni. Leggiö þær á
olíuborinn pappír og látið þær biða þar til syk-
urhúðin hefur harðnað utan á þeim.
7. MJÚKAR
SÚKKULAÐIKARAMELLUR
Uppskrift:
60 g kakó,
500 g púðursykur,
1/2 dl Ijóst síróp,
2 dl rjómi,
2 msk. smjör,
2 dl hakkaðir heslihnetukjarnar,
1 msk. vanillusykur.
Sjóðið kakó, sykur, síróp og rjóma þar til
blandan er farin að stffna (um það bil hálf-
tíma.) Hrærið smjörinu saman við. Þeytið
súkkulaðiblönduna með rafmagnsþeytara í um
það bil 10 mínútur. Því næst er hnetunum og
vanillusykrinum blandað saman við. Hellið
blöndunni á olíuborinn pappír og hafið hana 2
cm þykka. Kælið og skerið í hæfilega stóra
bita.
24. TBL 1990 VIKAN 69