Vikan - 29.11.1990, Blaðsíða 72
MISLITT MARSÍPANSÆLGÆTI
Mislit marsípanlögin tolla vel saman ef þau eru
pensluö meö vatni áður en þau eru lögö
saman.
Uppskrift:
250 g marsípan,
kakó,
rauður og grænn matarlitur.
(Aðra liti má einnig nota ef vill.)
Skiptið marsípanstykkinu í fjóra hluta. Einn
hlutinn á að vera í sínum upprunalega lit, ann-
ar er litaður rauður, sá þriðji grænn og sá fjórði
brúnn með kakóinu. Gætið þess að setja ekki
nema einn og einn dropa í einu af matarlitnum
saman við marsípanið. Annars getur það orðið
of lint og líka of dökkt.
Nú eru allir hlutarnir flattir út í hæfilega þykkt
og hvert lagið lagt ofan á annað, grænt, brúnt,
hvít og rautt. Gleymið ekki að þensla með
vatni svo stykkin haldist betur saman. Þrýstið
létt á um leið og hvert lagið er lagt ofan á
annað. Loks eru skornir út hæfilega stórir bitar
og marsípansælgætið er tilbúið.
Best er að geyma þetta munngæti í lokuðu
íláti á köldum stað.
KÓKOSKÚLUR
Þessar kúlur eru bragðgóðar og svo er gaman
að bíta í sundur hnetukjarnana sem leynast
innan í þeim.
Uppskrift:
100 g smjör, helst ósalt,
150 g sykur,
1 msk. skyndikaffi,
2 msk. kakó,
1 tsk. vanillusykur,
100 g heslihnetukjarnar,
100 g kókosmjöl.
Hrærið saman smjör og sykur. Bætið kaffi-
duftinu út í og sömuleiðis kakóinu. Bragðbætið
með vanillusykrinum. Hakkið hnetukjarnana
gróft og hrærið þeim saman við og eins miklu
af kókosmjöli og hægt er að látatolla í deiginu.
Hnoðið litlar kúlur sem að lokum er velt upp úr
kókosmjöli. Setjið kúlurnar í pappírsform.
ROMMKÚLUR
Konfektið verður betra ef notað er í það ekta
romm en sé notast við rommdropa verður að
gæta þess að láta ekki of mikið af þeim í einu.
Þeir eru sterkir og geta eyðilagt framleiðsluna
ef ekki er farið aö öllu með gát.
Uppskrift:
50 g kúrennur,
3 msk. romm,
100 g suðusúkkulaði,
50 g jurtafeiti,
100 g sykur,
súkkulaðikorn.
Látið kúrennurnar liggja í 2-3 tíma í romm-
inu. Ef ekki er hægt að fá kúrennur má notast
viö gróft saxaðar rúsínur. Bræðið súkkulaðið,
jurtafeitina og sykurinn saman við vægan hita.
Hrærið kúrennunum og romminu út í, smátt og
smátt. Takið pottinn af plötunni og látið blönd-
una kólna áður en henni er hellt í álformin eða
búnar eru til úr henni litlar kúlur. Kúlunum má
velta upp úr súkkulaðikornum og einnig má
strá súkkulaðikornum yfir sælgætið þegar það
er komið í formin.
72 VIKAN 24. TBL.1990