Vikan - 13.12.1990, Blaðsíða 9
SIGRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR SEGIR FRÁ
BANDARIKIN
Á bikíní við
jólakoriaskriftir
Margir íslendingar hafa
komiö til Bandaríkj-
anna og enn fleiri
fengiö einhvers konar mynd af
lífinu og tilverunni þar í gegn-
um sjónvarp og kvikmyndir.
Svo eru nú líka einhverjir ís-
lendingar sem búa þar eöa
hafa búið þar, en hvernig ætli
sé fyrir íslendinga að halda jól
í Bandaríkjunum? Blaðamað-
ur Vikunnar hafði samband við
Sigríði Sigurjónsdóttur til að
forvitnast um málið. Hún er í
doktorsnámi í málvísindum og
hefur búið ásamt manni
sínum, Eiríki Steingrímssyni,
sem er í doktorsnámi í líf-
fræði, í Los Angeles í fjögur ár
og haldið þar þrenn jól.
- Hvaða munur finnst þér
vera á jólahaldi á íslandi og í
Bandaríkjunum?
„Það byrjar allt miklu fyrr úti
en hérna heima. Það koma
jólakort og jólaskraut í búðirn-
ar löngu fyrr, jafnvel í október. 5
Skreytingar á götum og í búö- a
um eru komnar miklu fyrr. Svo «
eru allir búnir að setja upp jóla- 3
tré hjá sérfyrir „Thanksgiving"
eða þakkargjörðarhátíðina
sem er síðustu helgina í nóv-
ember. Þakkargjörðarhátíðin
er í raun mun viðameiri hátíð
heldur en jólin því hún stendur
yfir í fjóra daga, fimmtudag,
föstudag, laugardag og sunnu-
dag. Þá kemur stórfjölskyldan
saman, amman, afinn, foreldr-
arnir og öll systkini. Fólk flýgur
þá um þver og endilöng
Bandaríkin til að vera með fjöl-
skyldu sinni. Þetta er sem sagt
mik.il fjölskylduhátíð og á
fimmtudeginum er venjulega
Sigríður Sigurjónsdóttir.
borðaður kalkún meö sérstakri
fyllingu, sem er mjög góður
matur.
Fólk setur upp jólatréð fyrir
þakkargjörðarhátíðina og tek-
ur það yfirleitt niður á jóladag
eöa annan í jólum því jólin eru
bara einn dagur hjá þeim, bara
25. desember. Þá kemur
kjarnafjölskyldan saman og
tekur upp pakkana um morg-
uninn, borðar saman góðan
mat og eyðir deginum saman.
Það er þó alltaf gefið frí í skól-
um yfir jólin, oftast í svona
þrjár vikur."
- En hvaðan kemur þessi
siður að halda þakkargjörðar-
hátíð?
„Þakkargjörðarhátíðin er
fyrst og fremst matar- og fjöl-
skylduhátíð þar sem allir koma
Frh. á næstu opnu
JILSANDER
Feeling Man