Vikan - 13.12.1990, Blaðsíða 82
RJÚPUR MEÐ RAUÐVÍNS-
BÆ7TRI BLÁBERJASÓSU
J ólahlaðborð
Rjúpur í bláberja- og rauðvínssósu.
2 rjúpur, 50 g bláber (á þessum ársttma má
að sjálfsögðu nota bláber úr dós ef þau eru
ekki til í frystikistunni frá því farið var í
berjamóinn í sumar), 1/2 bolli rauðvín,
1 bolli rjúpnasoð, 30 g smjör, salt og pipar,
1 fínt saxaður laukur.
Aðferð:
Rjúpurnar eru brúnaðar á pönnu og steiktar í
ofni í 10 mínútur við 180°C. Á meðan er
laukurinn gjáður á pönnu og rauðvínið soðið
niður í síróp. Þá er soðinu baett saman við og
þetta hvort tveggja soðið niður um helming. Nú
er berjunum bætt saman við og soðið áfram í
3 mínútur. Smjörinu er bætt i sósuna og krydd-
að með salti og pipar eftir smekk.
STEIKT UNGHÆNA MEÐ HVÍTLAUK
- áætlað fyrir 4-6
Hráefni:
Unghæna, ca 1,5 kg, 2 heilir hvítlaukar,
4 sjarlottulaukar, 0,5 dl ólífuolía,
4 dl hvítvín, 3-4 greinar fersk salvía eða
1 msk. þurrkuð (sage), 1 tsk. þurrt timian,
8 bökunarkartöflur, skrældar og skornar í
mjög þunnar sneiðar, 1 dós grænar baunir,
salt og pipar.
Aðferð:
Hænan er þerruð og krydduð með salti, pipar
og nudduð með ólífuoliunni. Annar hvítlaukur-
inn tekinn í geira og skrældur, hinn er tekinn í
geira en látinn halda sér í hýðinu. Kartöflurnar
eru djúpsteiktar í sneiðum og þerraðar. Eldfast
mót er penslað með ólifuolíu og skrældum
hvítlauksrifjum núið innan í það. Kartöflurnar
settar í eldfasta mótið, hvítlauknum blandað
saman við þær ásamt söxuðum sjarlottulaukn-
um. Kryddað með salti og pipar, sage og
timian. Síðan er hænan lögð ofan á og sett í
vel heitan ofn, ca 200 gráður, í 10 mínútur og
síðan lækkað niður í 180 gráður í 20 minútur.
Síðan eldað við 150 gráður í 60-70 mínútur í
viðbót, fer eftir aldri fuglsins og stærð. Athugið
að ekki á að loka eldfasta mótinu. Þegar 40
mínútur eru eftir af eldunartímanum er hvítvín-
inu hellt yfir fuglinn og þegar 10-15 mínútur
eru eftir er safanum hellt af grænu baununum
og þær settar yfir kartöflurnar í forminu. Ef
menn vilja bera eitthvað með réttinum henta
gulrætur eða spergilkál, annars stendur hann
fullkomlega fyrir sínu eins og hann er.
[ þennan rétt er i stað unghænu hægt að nota
stóran kjúkling og einnig má sem best mat-
reiða lambalæri á þennan hátt.
82 VIKAN 25. TBL 1990