Vikan - 13.12.1990, Blaðsíða 31
Skiptir það máli?
A rni Grétar Finnsson, hæstaréttarlög-
/1 maður og fyrrum bæjarfulltrúi í Hafn-
arfirði, hefur sent frá sér Ijóðabókina.
Skiptir það máli? í bókinni eru 76 frumort Ijóð, flest í bundnu eða
hálfbundnu máli. Þau eru í senn margbreytileg að efni og fram-
setningu en víða má greina ákveðinn tón sem einkennir höfund-
inn. Þetta er önnur Ijóðabók Árna Grétars en áður sendi hann frá
sér Ijóðabókina Leikur að orðum árið 1982. Eiríkur Smith list-
málari myndskreytti bókina en Skuggsjá gaf hana út.
Mannlegt viðmót
Þú ert það, sem þú öðrum miðlað getur,
og allar þínar gjafir lýsa þér
og ekkert sýnir innri mann þinn betur
en andblær hugans, sem þitt viðmót ber.
Því líkt og sólin ljós og yl þér gefur
og lífið daprast, ef hún ekki skín,
svo viðmót þitt á aðra áhrif hefur
og undir því er komin gæfa þín.
í kirkjugarðinum
Þegar ég var barn
lék ég mér oft
í kirkjugarðinum,
las mosagróin nöfn
á gráum steinum,
lá í grasi
og fann beiskan ilm
ranfangs og róta.
Kynlegur friður ríkti
og blærinn bar moldarkeim,
fiðrildi flugu af stráum,
þrestir tíndu ber af greinum
og hljóðlátar gamlar konur,
sveipaðar gráum sjölum
og svörtum kápum,
sveimuðu milli leiða,
líkt og söngvana svanir
seint á hausti.
Ár hafa liðið,
leiksviðið breyst.
Nú fer ég aldrei
í kirkjugarðinn,
nema á döprum dögum.
Sem barn átti ég aðeins
ókunn leiði.
Nú undrar mig,
hve ótt fjölgar
leiðum vina minna.
Mig furðar þó mest
í þau fáu skipti,
sem ég á erindi
í kirkjugarðinn,
að þar skuli ei lengur
gamlar konur á ferli,
aðeins jafnöldrur mínar
og einstaka nokkru eldri
og ég maður á besta aldri.
Guð minn! hvað heimurinn
breytist.
Samt eru þar enn
yndisleg börn að leik.
25. TBL.1990 VIKAN 31