Vikan - 13.12.1990, Blaðsíða 48
TEXTI OG LJÓSMYNDIR: PORSTEINN ERLINGSSON
VAR EKKISEIN AÐ
KAUPAVIKUNA
- OGVANN
Hjónin Pálína Jensdóttir,
starfsmaður gæsluvall-
ar, og Þorkell Jóhann-
esson, bæjarverkstjóri á ísa-
firði, voru ein af þeim heppnu
þegar Vikan dró út lúxusferð til
Reykjavíkur á vegum Vikunn-
ar, Flugleiða og Hótel íslands.
Hjónin eru bæði um þrítugt,
fædd og uppalin á Vestfjörð-
unum og eru nú búsett á ísa-
firði.
„Það var mikil heppni að við
skyldum vinna þessa yndis-
legu ferð,“ segir Pálína. „Við
erum ekki áskrifendur Vikunn-
ar en kaupum hana oft. Þaö
var vinkona mín sem sagöi
mér frá því að þessi útdráttur
stæði til í blaðinu og ég var því
ekki sein á mér að kaupa það
og senda horn einnar síðunn-
ar til ritstjórnarinnar eins og til
var ætlast.
Skömmu síðar hringdi rit-
stjóri Vikunnar i mig og óskaði
mér til hamingju með sigurinn.
Ég var hins vegar hin skrýtn-
asta í símanum og spurði hver
væri eiginlega að gera at í
mér. Ég gerði mér þó fljótlega
Ijóst að um veruleika var aö
ræða. Þetta var í sumar en við
ákváðum að njóta vinningsins
nú í nóvember."
Flugleiðir buðu vinnings-
höfunum flug til og frá Reykja-
vík. Þar beið þeirra glæsilegur
bílaleigubíll frá Bílaleigu Flug-
leiða, Toyota Tercel með al-
drifi, fullur af eldsneyti. Einnig
beið þeirra uppbúið rúm á Hót-
el Loftleiðum. Þar er aö finna
flest þau þægindi sem tilheyra
vel búnu hóteli. Ekki eru veit-
ingarnar af lakara taginu, þar
sem meðal annars Lónið,
hinn nýlegi glæsilegi veitinga-
staður hótelsins, býður upp á
það besta sem gerist.
„Við komum til bæjarins á
föstudagsmorgni og tókum þá
við bílnum, sem okkur fannst
ekki af lakara taginu," segir
Þorkell. „Helst vildum við ekk-
ert þurfa að skila honum."
„Eftir aö við höfðum komið
okkur fyrir á hótelinu fórum við
Pálfna Jensdóttir og maður hennar, Þorkell Jóhannesson,
bæjarverkstjóri á ísafirði, komin til Reykjavikur.
að heimsækja systur mína,“
segir Pálína, „og síðan
skoðuðum við okkur um í
verslunum höfuðborgarinnar. í
aðra heimsókn var síðan hald-
ið og kvöldið meðal annars
notað til að fara í afmæli föður
Þorkels, sem við hefðum alls
ekki komist í ef við hefðum
ekki unnið þessa ferð. Þaðan
fórum við síðan í enn fleiri
heimsóknir til ættingja, vina og
kunningjafólks en af því eigum
við mikið hér. Margt fólk af
heimaslóðunum er statt hér af
ýmsum ástæðum, í námi,
tímabundinni vinnu eða hrein-
lega búsett hérna. Mjög langt
var síðan við höfðum séð
margt af þessu fólki.“
„Laugardagsmorguninn
notuðum við til þess að sofa
Frh. á næstu opnu
Hjónin með bílinn, sem þau tímdu varla að sklla, fyrir utan Hótel Loftleiðir.
48 VIKAN 25. TBL. 1990