Vikan - 13.12.1990, Blaðsíða 66
HVER VILL EKK1HAFAYFIR
4000 KR. LAUN ÁTÍMANN?
RÁÐ TIL AÐ AUKA BARRHELDNI RAUÐGRENIJÓLATRJÁA:
Rauðgreni sem jólatré er óneitan-
lega fegurst þeirra trjáa sem á jóla-
trjáamarkaði eru. Það er þéttvaxiö,
barrmikið og lyktarmikið. Mikið hef-
ur þó skort á barrheldni rauðgrenis-
ins til þessa og hafa menn reynt ýmis ráð til að
auka hana en sjaldan haft erindi sem erfiði.
Ástæður þess að rauðgrenið fellir barr er
vatnsskortur. Þegar rauðgreni er höggvið lok-
ast viðarsellur í stofninum og vatnsflæði upp
stofninn stöðvast að mestu. Nú hafa menn
dottið niður á aðferð til að opna vatnsæðarnar
í stofninum. Er þá farið að eins og hér segir:
Eftir að búið er að taka rauðgrenið i hús,
þíða það hægt og rólega og saga neðstu
greinakransana af til að hægt sé að koma
trénu í jólatrésfótinn er söguð um það bil 5 cm
sneið neðan af stofninum til að fá frískt sár.
Stofnendinn er síðan settur í sjóðandi vatn
(hraðsuðuketil eða pott) og haldið þar í nálægt
10 mínútur. Gott er að reyra neðstu greinarnar
upp að stofninum til að betur sjáist hvað verið
er að gera. Við að sjóða neðstu 5-10 cm
stofnsins kemur mikið af loftbólum út úr stofn-
inum og vatnsleiðandi æðar opnast. Ekki er
þörf á að vatnið bullsjóði allan tímann.
Eftir þessa meðferð er tréð strax sett í fót
með vatni í. Árangur meðhöndlunarinnar er
síðan háöur því að tréð skorti aldrei vatn. Það
þarf 3-7 lítra af vatni yfir jólin (háð stærð trés-
ins og hita í híbýlum). Gott er að láta fulla gos-
flösku standa á hvolfi við hlið trésins í fætinum
og tappast þá af henni eftir því sem tréð sýgur
í sig vatnið. Flaskan er fest með vír við stofn
trésins. Tréð þarf mest vatn fyrstu dagana og
klárast 2-3 gosflöskur á sólarhring fyrstu dag-
ana en síðan hægir á. Með því að hafa slíkar
gegnsæjar flöskur má betur fylgjast með hvort
tréð skortir vatn.
Þetta umstang ætti ekki að taka nema 15-
20 mínútur en með því á að vera hægt að
spara sér talsverða peninga því rauðgreni er
ódýrasta jólatréð á markaðnum:
1. Jóiatréð má aldrei taka beint inn i stofu-
hita úr miklu frosti. Ef frost er, þegar
taka á tréð inn, verður að láta það þiðna
hægt og helst í raka, t.d. leggja það í kalt
vatn í baðkeri.
2. Eftir að tréð hefur jafnað sig inni og tími
er kominn tii að setja það í vatnsfót, þarf
oft að fjarlægja nokkrar greinar neðst af
stofni og snyrta hann.
3. Saga skal um 5 cm sneið neðan af stofn-
inum. Leggið neðstu greinarnar upp
með stofninum og tyllið bandi utan um
þær.
4. Tálgið börkinn af stofninum 10 cm frá
stúfnum. Stingið þessum 10 cm stofns-
ins niður í sjóðandi vatn í um það bil 10
mínútur.
5. Gangið frá trénu í vatnsfæti strax að
suðu iokinni. Fóturinn má aldrei tæmast
af vatni, annars geta loftbólur komist í
vökvaæðar stofnsins og valdið ótíma-
bærum dauða trésins.
66 VIKAN 25.TBL. 1990