Vikan - 13.12.1990, Blaðsíða 28
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON
„Þetta er ekki hœgt
íslenska alfrœðiorðabókin komin út
Af og til hafa komið út
fjölfræðibækur og sér-
hæfð uppflettirit hér á
landi. HVAR HVER HVAÐ?
kom út í þrjú ár skömmu eftir
stríð, Aldirnar eru til á mörgum
heimilum og sömuleiðis bóka-
flokkurinn Landið þitt, fsland.
Sérstök starfsstéttamanntöl
eru gefin út af og til, svo sem
Iðnaðarmannatal á Suðurnesj-
um, Kennaratal á íslandi og
svo framvegis en nú er loksins
komin út fullkomin íslensk al-
fræðiorðabók.
Verkið hefur verið í smíðum
síðastliðin þrjú ár og á annað
hundrað íslenskir sérfræðing-
ar hafa lagt hönd á plóginn. Ef
öll störf þeirra við bókina eru
lögð saman er útkoman um
150 ár af vinnu. Sá þáttur
bókarinnar sem fæstir hugsa
út í, umbrotið, eða hvernig
hver blaðsíða kemur endan-
lega til með að líta út, tók til
dæmis hátt í fimm mánuði í
vinnslu. Verkið er Ifka búið að
kosta sitt f peningum; meira
Ritstjórarnir Sigríður og Dóra Hafsteinsdóttir hafa staðið í ströngu undanfarin
misseri en nú hafa þær loksins uppskorið ávöxt erfiðisins. uúsm: binni
en 200 milljónir þegar upp var
staðið.
Bókin er hátt í 1900 síður í
þrem bindum. [ henni eru um
35 þúsund uppflettiorð. Þar að
auki eru í henni tvö þúsund
lykilorð og 4500 Ijósmyndir,
teikningar, kort og töflur. Sá
sem er svo bjartsýnn aö ætla
aö eyða að meðaltali einni
mínútu í hvert uppsláttaratriði
verksins þarf til þess heila
fjóra vinnumánuði. Til að auð-
velda notendum bókarinnar að
finna sjaldgæf orð og nýyrði
var gripið til þess ráðs að birta
samsvarandi orð (lykilorð)
sem eru notuð í öðrum
málum, aðallega dönsku og
ensku, í hliðardálki og vísa
þaðan [ íslensku orðin.
Næstum þriðjungur bókar-
innar tengist íslensku efni en
Bókin er hátt í 1900
síður í þrem bindum.
í henni eru um 35 þúsund
uppfletfiorð. Þar að auki
eru í henni tvö þúsund
lykilorð og 4500 Ijósmynd■
ir, teikningar, kortog töflur.
i
kklilPSroitfc
A1 Lf m DI
C IRÐABOKJ]
37000
oo
L
é
oc
>
5
ö
oc
53
Ö
3-
•m oG $ ÖRLYGUR
28 VIKAN 25. TBL.1990