Vikan - 13.12.1990, Blaðsíða 81
Hamborgarhryggur.
RIFJASTEIK MEÐ STÖKKRI PURU
Hér er aöeins verið að gefa leiðbeiningar um
hvernig hægt er aö fá puruna á rifjasteikinni til
þess að verða stökk en mörgum gengur það
ekki sérlega vel. Þess vegna gefum við ekki
upp neitt ákveðið magn af kjöti sem steikja á.
Aðferð:
Rendur eru skornar í puruna og kryddað með
salti, pipar, negul og lárviðarlaufum. Síðan er
steikin sett í ofnskúffuna sem í er vatn. Steikin
á að vera hálf á kafi í vatni. Fyrst er puran á
steikinni látin snúa niður og þannig er hún látin
vera í 20 mínútur, síðan er henni snúið við og
höfð í 30 mínútur til viðbótar í ofninum.
Rifjasteikin er borin fram með rauðvínssósu,
sykurbrúnuðum kartöflum og rauðkáli.
HAMBORGARHRYGGUR
í RÚGDEIGI
- ætlað fyrir 6
1,5 kg hamborgarhryggur,
300 g púðursykur,
3-4 msk. dijon sinnep.
Rúgdeigið:
1 kg rúgmjöl eða heilhveiti, 20 g salt,
ca 4-5 dl volgt vatn.
Aðferð:
Hryggurinn er soðinn í 10 mínútur og látinn
kólna í soðinu. Sykrinum og sinnepinu er
blandað saman og smurt á hrygginn. Rúgmjöli,
salti og vatni er blandað saman. Hnoðað og
flatt út. Hryggurinn er lagður á miðju deigsins
og pakkað inn. Skreytt með deigafgöngum.
Penslað með eggjarauðum sem þynntar hafa
verið með vatni. Bakað í ofni í 15-20 mínútur
við 180°C.
Þetta er vinsœlasta gjöfin fyrir unga fólkið
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTÚN 28, SÍMI: (91)622901 - NÆG BÍLASTÆDI
TOFRAJARNIÐ
Nú geturðu steikt
hamborgara, ristað
samloku, steikt fisk og kjöthleif
í örbylgjuofninum þínum.
íslenskar leiðbeiningar.
25. TBL. 1990 VIKAN 81