Vikan - 13.12.1990, Blaðsíða 43
MMMMTTTGODURILMUR
Útsölustaöir: Reykjavík: Ársól, Englabörnin, Háaleitisapótek, Laugavegsapótek,
Lyfjaberg, Mikligaröur, Varðan. Hafnarfjörður: Sandra. Akureyri: Amaró, Snyrti-
stofa Nönnu. Keflavik og Njarðvfk: Gloría, Keflavíkurapótek, Smart. Blönduós:
Brekkusól, Kaupfélag Húnvetninga. Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga.
KIASSÍKsj.
Heildverslun - Sími 681710
5 tjörnuspá
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Kaflaskipti hafa orðið í lífi
þínu af einhverjum orsökum sem
ef til vill koma ekki upp á yfirborð-
ið. Þú gerðir rétt í að meta afstöðu
þína til ýmissa mála og huga vel
að fjölskyldumálunum og þó eink-
um ástarmálunum.
Nautið
20. apríl - 20. maí
Margt nýtt ber á góma um
þessar mundir og þú ert spenntari
en oft áður. Nýir vinir og ný við-
horf hafa mikil áhrif á þig og þrátt
fyrir að meðfædd stífni hefti þig
oft í lífinu fer því víðs fjarri um
þessar mundir.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Þú ert á leið upp úr heldur
erfiðum kafla í lífinu og flest virð-
ist brosa við þér. Einkamálin eru
með allra besta móti og annað
stendur til bóta. Þú ættir að nýta
þetta góða tímabil til að leggja
drög að framtíðaráætlununum.
/ÆX Krabblnn
€3? 22. júní - 22. júlí
^ Þú ert í hálfgerðri sjálf-
heldu í viðkvæmu máli. Þú gerðir
rétt í að tala meira um það við
nána vini og reyna að vera ekki
svona mikil kvika undir hörðu
skelinni. Taktu óhikað ákvörðun
ef þú ert viss um hvað þú vilt.
Ljónlð
23. júlí - 23. ágúst
Reyndu að vera bjart-
sýnni. Aldrei slíku vant eru Ijónin
nokkuð hnuggin nú. Láttu deyfð-
ina ekki ná tökum á þér. Það væri
skynsamlegt að vera mikið út á
við á næstunni án þess þó að
breyta lífsmynstrinu of mikið.
Meyjan
24. ágúst - 23. sept.
Meyjur geta vel við unað
um þessar mundir, staða stjarn-
anna gefur til kynna óvennju létta
lund og mikinn árangur af venju-
legri eljusemi meyjanna. Margt
nýstárlegt hefur gerst og létt líf
meyjanna meira en ella.
Vogin
24. sept. - 23. okt.
Þú hefur náð einhverjum
árangri og ættir að njóta þess
með fólkinu í kringum þig, það
eru ekki allir jafnhressir og þú,
eins og þú hefur áreiðanlega veitt
athygli. Rómantíkin ætti að geta
blómstrað á næstunni.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Þú hefur margt á þinni
könnu um þessar mundir og ef-
laust væri rétt að þú gerðir upp
við þig hvaö skiptir máli og hvað
ekki. Þú þarft að vera vökull í fjár-
málum ef vel á að ganga á næst-
unni.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Áhugamálin taka ívið of
langan tíma nú á kostnað annars
sem nauðsynlegt er. Þú þarft að
fara aðeins yfir sálarkirnuna og
beita þig vægum sjálfsaga. Sam-
skiptin við hitt kynið byggjast á
misskilningi um þessar mundir.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Þú þarft ekki að vera nei-
kvæður út í allt og alla, sumir eru
þér einlæglega velviljaðir, en það
er eins og þú eigir erfitt með að
samþykkja það. Þú þarft að rífa
þig lausan frá allt of innhverfum
þönkum.
Vatnsberinn
20. janúar -18. febrúar
Sjálfsálitið er með
minnsta móti nú en það þýðir lítið
að reyna að láta umhverfið halda
hið gagnstæða, það trúa því fáir.
Þú þarft að einbeita þér að því
sem þér gengur vel við og sleppa
hinu.
Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Það eru strangirtímar hjá
fiskum nú og freistandi að
guggna. Það leysir engan vanda
og fiskum er eindregið ráðlagt að
harka af sér, fresta því sem hægt
er og framkvæma hitt.
25, TBL. 1990 VIKAN 43