Vikan - 13.07.1939, Blaðsíða 6
6
VIK A N
Nr. 28, 1939
George lirent og Olivia de Haviland i kvikrayndinni „Vængir t'lotans“. Myndin fjallar um nýjustu
framfarir og viðbúnað flughers ameríska sjóliðsins. Flugíþróttin nýtur geysilegra vinsælda í Ame-
ríku, og nú er það markmið flestra drengja þar í landi að verða flugmenn, þegar þeir verða stórir.
Yœngir
flotcans.
Nýjasta hernaðarkvikmynd
Bandaríkjamanna.
Kvikmyndatökumenn í Ameríku eru fljótir að
átta sig á því, hvað fólk vill sjá og heyra.
Þeir hafa heldur ekki látið standa á því að gera
hverja kvikmyndina á fætur annari um vörn
John Payne, ný kvikmyndahetja.
Ameríku, ef til styrjaldar dragi. Eins og gefur að
skilja hefir yfirstjórn hers og flota ekki legið á
liði sínu um að rétta kvikmyndatökumönnunum
hjálparhönd til að gera myndirnar vel úr garði,
því í Bandarikjunum er engin herskylda, heldur
aðeins sjálfboðaliðar, og því um að gera að vekja
áhuga æskufólks fyrir hernaði sem fagurri íþrótt.
Til þessa eru hernaðarkvikmyndirnar sérlega vel
fallnar, og ekki sízt á allra siðustu tímum, þegar
hvarvetna dregur ófriðarbliku á loft. Nýjasta
myndin i þessari hernaðarkvikmyndaframleiðslu
er „Vængir flotans“, og er hún að efni til gerð
yfir hernaðarflugvélar ameríska sjóliðsins og tek-
in að mestu á flugæfingarstöðum herskipaflotans
í Pensacola, Florida og St. Diego í Californíu.
Við töku myndarinnar hafði félagið sjö hundruð
Böð af hemaðarflugvélum ameríska flotans, eins og þær eru sýndar í myndinni „Vængir flotans“. Myndatökufélagið fekk til umráða 700 slíkar flug-
vélar frá hernum, til að vekja athygli á starfsemi hans, og hversu mætti treysta honum, ef til styrjaldar kæmi, og til að glæða hernaðaranda æskunnar.