Vikan


Vikan - 31.08.1939, Side 8

Vikan - 31.08.1939, Side 8
8 VIKAN Nr. 35, 1939 Félagssamtök í Flatahreppi. Sagan hefst á því, að í sveitina kom landsfrægur nautgripafræðingur, kallaði saman almennan hreppsfund og stofnaði Nautgripafélag Flatahrepps. Það gekk þó ekki alveg hljóðalaust, nei, maður reis þar á móti. Hreppsstjórinn, lítill, búralegur bóndi með feiknastórt, sköllótt höfuð og ekki svo litlar gáfur í því, reis á fætur að framsöguræðu lokinni og sagði: — Ég er ekki á móti búnaðarframför- um eins og allir, mér kunnugir, vita, síður en svo. Annað mál er það, að hér er komið nóg af félögum í sveitinni, það ég bezt veit. Ég hygg, að flestir, sem hér eru staddir, séu flæktir við fleiri eða færri félög, það hygg ég. Öll baka þau mönnum útgjöld, meira og minna, og hanga þó á heljarreim- inni. Þessu til stuðnings, vil ég benda á kaupfélagið, sem var í undirballans síðast- liðið ár. Strákurinn, sem er fyrir því, hann Kalli, kaupfélagsstjóranefnan, er þó víst ekki ánægður með að sjá eitt félag veslast upp, því í hittiðfyrra átti hann upptökin að því, að ungmennafélagið hérna var stofnað, sem hver strákur og stelpa er svo gengin í, til þess að eyða þar aurunum sín- um. Síðan helzt þessi lýður ekki heima um nokkra helgi. Það þykist vera að undirbúa einhverja sementslaug til að baða sig í allsbert! — Hvað ætli það geti, bláfátækt og nærri því á sveitinni? En þessum fáu aurum sínum fleygir það í einhverja sjóði, sem það þykist vera að stofna. — Og fleiri félög eru hér, stærri og smærri. Hér er kvenfélag, hestakynbótafélag og búnaðar- félag. Búnaðarfélaginu fylgi ég, það borg- ar manni fyrir túnasléttur og haughús. Ég tel nóg að vera í búnaðarfélaginu, og þeir sem vilja vera í slátursfélaginu, og gefa því uppbótina, mega það mín vegna, þó ég fyrir mitt leyti muni halda áfram að selja til Hafnarfjarðar. Nei, ég álít, að við höf- um ekkert að gera við fleiri félög. Mínar kýr eru kelfdar, það ég bezt veit, þó ekkert sé hér nautgripafélagið. Ég gef mínum tudda vel, og þeir sem leitt hafa undir hann, hafa ekki kvartað. Svo ætla ég ekki að segja meira. Það varð talsverður þys í fundarhúsinu, þegar hreppsstjórinn þagnaði. Menn vildu ýmist hafa félög eða ekki félög, félagsnaut eða einstaklingsnaut. Eldri bændur hölluð- ust almennt að skoðun hreppstjóra síns, hinir yngri mæltu með nýjunginni og rök- studdu mál sitt með tilvitnunum í merka ritlinga, sem þeir höfðu lesið. Auk þess voru þama 'margir háttsettir menn og stjórnarmeðlimir úr ýmsum hinna félag- anna og voru af þeirri ástæðu yfirleitt hlynntir félagsskap. Og að síðustu voru þeir til, þarna inni, sem þóttust hafa farið varhluta af embættisveitingum sveitarinn- Eftir öuðmund Daníelsson. ar, og eygðu nú allt í einu nýjan mögu- leika til að hækka í mannfélagsstiganum. Svo steig þá hinn landsfrægi nautgripa- fræðingur í annað sinn upp í ræðustólinn og hélt sína úrslitatölu. Það var ekki hægt að neita því, hann var afar sniðugur ræðu- maður, og rök hans voru svo þræl sláandi, að þau hlutu að sannfæra. Hann sýndi meðal annars í línuritum og nákvæmum tölum mismun þess að hafa umræddan félagsskap og hafa hann ekki. Sá saman- burður varð ekki hreppsstjóranum í vil. Það var líka auðséð á stemningunni í saln- um, að nú fór að hallast á hann. — Þegar ræðumaður þóttist vera búinn að slá öll hugsanleg og óhugsanleg andmæli í rot, þagnaði hann, settist á bekk og geispaði. Hreppsnefndaroddvitinn, sem kosinn hafði verið fundarstjóri, stóð nú á fætur. Þetta var skjálfhentur, gamall maður, ótrúlega lítill og mjór, en hann hafði á sínum tíma verið góður í hugarreikningi og glímu, enda fleiri íþróttum. — Ég sé nú ekki, góðir drengir, byrjaði hann fljótmæltur og rámur — að það sé nokkur bein þörf að vera að teygja þenn- an fund út í það óendanlega. Fyrst og fremst u-u-u er það nú illa gert við bless- aðan nautgriparæktarráðunautinn að tef ja tímann, því hann ætlar að heimsækja ná- granna okkar hér fyrir austan ána í sömu erindagjörðum áður en sól er af lofti. Ogi — ogi í öðru lagi, þá þurfa kannske ein- hver önnur af félögum þessa hrepps að grípa tækifærið og nota húsið til fundar- halds núna á eftir u-u-u til þess að ræða sín framfaramál. Ég persónulega tek enga afstöðu til þessa nautgripamáls, því aði — aði þar er ég meiri kálfur en allir aðrir. Ogi-i sannleikurinn er nú sá, að ég veit ekki mitt rjúkandi ráð. Ojá, ojá, ojá. Viljið þið þá ekki, drengir góðir, ganga til at- kvæða um það, hvort þið viljið stofna þetta félag eða ekki ? Atkvæðagreiðslan fór þannig, að góður helmingur fundarmanna sat hjá, en af þeim, sem kosningarréttar síns neyttu, var meiri hlutinn með félagsstofnuninni. Á næsta hálftíma var svo nautgriparæktarfé- lagið stofnað með um tuttugu meðlimum. Ráðunauturinn hélt með þeim stuttan fund á eftir, útbýtti hverjum félagsmanni kýr- bók og góðum leiðbeiningum, og setti hina nýkosnu þriggja manna stjóm inn í embætti sitt. Það voru allt ungir bændur, sem hana skipuðu og óvanir embættisverk- um, en engu skyldi kvíða, þeir voru nám- fúsir og höfðu óbilandi trú á sjálfum sér og málefninu. Fyrir haustið áttu þeir að vera búnir að festa kaup á þeim bezta tarfi, sem völ er á. Þá ætlaði ráðunauturinn að koma aftur og halda nautgripasýningu fyrir öll félög sýslunnar, verðlauna beztu dýrin og svo framvegis. Sömuleiðis lofaði hann félaginu 50 króna styrk á ári, fyrst um sinn, frá Búnaðarfélagi Islands til þess að standast kostnað af girðingu fyrir nautið. Því næst var fundi slitið. — Ja, þá kemur nú fyrst til Teits og Siggu að útvega bola, sagði formaður naut- griparæktarfélagsins við meðstjórnendur sína. Hann hafði kallað þá afsíðis bak við fjós fundarstaðarins til þess áð ráðslaga eitthvað um framkvæmdirnar. — O, ætli það klunni sig ekki einhvern veginn. Vitið þið ekki af einhverjum væn- um tarfi hér á bæjunum? sagði gjaldker- inn og strauk sitt rauðgula, snotra yfir- skegg til beggja hliða. Ritarinn snýtti sér og sneri sér undan, því nú ætlaði hann að leggja sitt til málanna. — Það er ekki gaman að því að vita þetta sona seint, ég segi fyrir mig, ég hefði ekki lógað vetrungskúðanum mínum í vor hefði ég vitað þetta þá. Ég hefði ekki orðið dýrari á honum en aðrir, en mér finnst, að bezt hefði verið, að okkar félagsmenn hefðu fengið að sitja fyrir þessum við- skiptum. Svo sagði hann ekki meira og sneri sér aftur að hinum tveimur. — Já, náttúrlega er það satt, sem hann segir, byrjaði gjaldkerinn á ný. — Það væri náttúrlega bezt að þurfa ekki að leita út fyrir félagið. En ég hefi nú verið að velta þessu fyrir mér og náttúrlega þarf þetta að vera vænt naut upp á sýninguna og verðlaunin að gera, en þá get ég ekki munað eftir öðrum en hreppstjóranum og kaupfélagsstjóranum, þeir eiga fallega tudda báðir tveir, en náttúrlega eru þeir ekki í félaginu. — Skítt og helvízkt! sagði formaðurinn,

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.