Vikan - 24.01.1991, Blaðsíða 4
24. JANÚAR 1991
2. TBL. 53. ÁRG.
VERÐ KR. 295
Vikan kostar í áskrift kr. 224
eintakið ef greitt er með gíró
en kr. 191 ef greitt er með VISA.
Áskriftargjaldið er innheimt fjórum
sinnum á ári, sex blöð í senn.
Athygli skal vakin á því að greiða
má áskriftina með EURO eða VISA
og er það raunar æskilegasti
greiðslumátinn.
Aðrir fá senda giróseðla.
VIKAN kemur út aðra hverja viku.
Tekið er á móti áskriftarbeiðnum í
síma 91-83122.
Útgefandi: Sam-útgáfan.
Framkvæmdastjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Ritstjóri og ábm.:
Þórarinn Jón Magnússon
Auglýsingastjóri:
Helga Benediktsdóttir
Höfundar efnis í þessu tölublaði:
Valgerður Jónsdóttir
Þórdís Bachmann
Þorsteinn Eggertsson
Þórarinn Jón Magnússon
Þorsteinn Erlingsson
Helga Möller
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Lína Rut Karlsdóttir
Hrafnhildur Wilde
Ómar Friðleifsson
Gísli Ólafsson
Guðjón Baldvinsson
Jóna Rúna Kvaran
Líney Laxdal
Arnþór Hreinsson
Myndir í þessu tölublaði:
Magnús Hjörleifsson
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Bragi Þ. Jósefsson
Hildur Axelsdóttir
Sigurður Stefán Jónsson
Ólafur Guðlaugsson
Young-Tae Choi
Binni, ÞJM o.m.fl.
Útlitsteikning:
Þórarinn Jón Magnússon
og Auglýsingastofa
Brynjars Ragnarssonar
Setning og umbrot
Sam-setning
Filmuvinna, prentun, bókband:
Oddi hf.
ASKRIFTARSÍMI
83122
Skrifstofustjórinn fann strák í
birgðageymslunni vera að
slæpast.
„Hvað færðu mikið i kaup á
viku?“ spurði hann stráksa.
„Tvö hundruð kall,“ svaraði
strákurinn.
Skrifstofustjórinn tók tvö
hundruð krónur úr veskinu sínu
og lét strákinn hafa með þess-
um orðum:
„Hafðu þetta og láttu svo ekki
sjá þig hér nokkurn tíma aftur.“
Strákur gekk út. Skrifstofu-
stjórinn sagði þá við forstjórann:
„Hve lengi hefur þessi letingi
unnið hér?“
„Hann vinnur ekki hér," sagði
forstjórinn, „hann var bara að
koma með kassa.“
Faðirinn: Fávís maður getur
spurt fleiri spurninga en vitur
maður getur svarað.
Sonurinn: Það var þá þess
vegna sem ég féll á prófinu!
Þið ættuð aldrei að leggja trún-
að á það sem sþákona segir ef
hún hættir að spá til að hlusta á
veðurfréttirnar.
Heilsufarið í bænum? Jú, það
er sko fínt. Við urðum að
skjóta farandsala til að geta
vfgt kirkjugarðinn.
Á barnum:
- Afgreiðið þið konur hér?
- Nei, því miður, menn verða
að koma með þær sjálfir.
Til minnis
Maður á að læra að þekkja
sjálfan sig - og vera svo við-
búinn því að verða fyrir von-
brigðum.
Þó margir haldi annað er Venus
alls ekki eins fullkomin og af er
látið. Andlitið til dæmis. Það er
allt á skakk og skjön. En verra er
það með fótinn. Annar fóturinn
er nefnilega tveimur sentímetr-
um styttri en hinn, svo hin fagra
Venus hefði ef til vill þurft að fá
sér innlegg í skóinn.
Hafin er framleiðsla bíla sem
ganga fyrir alkóhóli, eins og
allir vita. Nú bíður maður
spenntur eftir glæsikerrunum
sem ganga fyrir kampavfni,
Fíötum sem brenna ódýrasta
rauðvíninu og svo fá ensku
kráargestirnir sér áreiðanlega
bíla sem fara allra sinna ferða
á bjór.
Það er þetta með bílana sem
aka um á alkóhóli. Hvenær fara
bensínstöðvarnar að bjóða bíl-
unum í hanastél?
Kanar eru eina þjóð veraldar
sem leggur á sig þriggja tíma
ökuferð til að komast út að
hlaupa.
Sagt um svínið:
„Hundurinn lítur upp til þín,
kötturinn lítur niður á þig, en
svínið horfir beint í augun á
manni. Ég kann vel við svínl"
Winslon Churchill
- Ætlarðu að vera við jarðar-
för Halla?
- Nei, hvers vegna skyldi ég
gera það? Ekki verður hann
við mína jarðarför.
Það var við jarðarför. Einn af
imbum bæjarins stóð við hliðina
á elsta manninum og spurði
hann hvað hann væri gamall:
„0, ég er nú níutíu og fimm ára
síðan í haust," svaraði sá gamli.
„Nú, já, þá tekur því ekki fyrir
þig að fara heim.“
3A.GI
VIKAN MEÐ VASADAG-
BÓKINNIVAR RIFIN ÚT
- seldist víða upp á fáeinum klukkustundum
Sú nýjung, sem Vikan
bryddaði upp á sfðast, að
láta vasadagbók með
stjörnuspá fyrir allt árið
1991 fylgja blaðinu féll væg-
ast sagt í góðan jarðveg.
Fjölmargir sölustaðir seldu
hálfsmánaðar upplag sitt á
faeinum klukkustundum.
Dreifing Vikunnar hófst á
fimmtudagsmorgni og strax
síðar um daginn var farið að
afgreiða viðbótarsendingar til
sölustaða. Margir kláruðu við-
bótarsendinguna strax á
næsta sólarhring og pöntuðu
meira. Á mánudeginum var
svo upplagið gjörsamlega á
þrotum hjá útgáfunni. Fyrir-
fram var vitað að viðbrögðin
við þessari nýjung yrðu góð og
þvf var prentað ríflegt upplag.
Salan fór þó fram úr björtustu
vonum.
Ekki var ráðist f kostnaðar-
sama endurprentun þó enn
væru tíu dagar til útkomu
næsta tölublaðs. En Ijóst er að
upplagið verður ríflegra að ári.
4 VIKAN 2. TBL. 1991