Vikan - 24.01.1991, Blaðsíða 27
Hœgri skórinn og Hemmi króna
Kœri draumráðandi!
í nótt dreymdi mig tvo
drauma sem ég mundi vel
þegar ég vaknaði og mér
fannst þeir báðir athyglisverðir.
Fyrri draumurinn var sem hér
segir: Mér fannst ég deila íbúð
með stúlku sem ég vann með. í
veruleikanum andar köldu á
milli okkar. í draumnum fór
ágœtiega á með okkur. Við
vorum báðar sammála um að
hafa reglulega fínt hjá okkur og
gluggamir urðu endilega að
vera oþnir. Ég var í miklum
vandrœðum með skóna mína,
Þeir voru brúnir og reimaðir
gðtuskór, nema það að þeir
voru frekar mikið slitnir,
sérstaklega hœgri skórinn.
Hœgri sólinn var allur trosnaður
og nánast í sundur um miðju. Ég
man að ég reyndi að lagfœra
þetta með því að troða tuskum
og dagblóðum í skóinn en það
stoðaði ekki neitt. Þrátt fyrir
ástand skónna minna fannst
mér vera afar bjart og einhvern
veginn eins og svalt yflr
draumnum (eða kannski
tilverunni í draumnum), Mér
fannst eins og á milli mín og
stúlkunnar vœri allt í góðu
nema við vorum eins og svolítið
feimnar hvor við aðra.
Þá er það seinni draumurinn.
(Þar kemur Hemmi króna við
sógu. Ég er Reytyíkingur og
man eftir honum þegar ég var
unglingur. Mér leist nú ekkert of
vel á karlinn þá, þó ég viti núna
að hann var sauðmeinlaus og
vildi engum illt. Kannski var
hann bara á undan sinni
samtíð, fyrsti pönkarinn eða
eitthvað þvíumlíkt.)
Mér fannst eins og ég og
dóttir mín vœrum á gðngu
einhvers staðar í Þingholfunum.
Við komum að hornhúsi og
gengum upp brattar trðppur
og inn um dyr. Hurðin var
eldgðmul tvðföld (vœngjahurð),
grœnmáluð. Þegar inn kom sá
ég að við vorum staddar á
einhvers konar fornsðlu, Ég var
að kaupa lín, rúmföt og þess
háttar, sem afgreiðslumaðurinn
sýndi mér af mikilli samviskusemi
(þar var kominn Hemmi króna,
sjálfur). Línið og rúmfötin, sem
ég keypti, var altt saman afar
fallegt, með blúndum og
svoleiðis (samt sást að þetta var
gamalt), Ég vildi líka kaupa lak
með blúndum sem passaði á
rúmið mitt (það er 140 sm og
sjálfsagt erfttt að fá fínt lak á
þannig rúm). Þá kom
afgreiðslumaðurinn (Hemmi
króna) með afar fallegt lak, allt
lagt blúndum á jöðrunum og
keypti ég það. (Samt varð ég
aldrei vðr við neina þeninga í
draumnum.) Síðan drukkum við
saman te (ég drekk afar
sjaldan te) og mér fannst
einhvern veginn eins og fólki
þœttí ekki gott að ég vœri að
drekka te með þessum manni
en ég kœrði mig kollótta um
það. Mér leið líka vel yflr
þessum draumi, það var
reyndar ekki eins bjart yfir og í
fyrri draumnum en allt mjðg
hlýlegt og gamait að sjá.
Mér þœtti virkilega vœnt um
að fá forvitni minni svalað
varðandi þessa drauma.
Bestu þakkir.
Síó
Að lokum tvœr sþurningar:
Oft dreymir mig eitthvað,
stundum man ég það vel en
stundum bara óljóst, en svo
nokkrum vikum eða mánuðum
seinna upplifl ég sömu atburði
og þegar það gerist finnst mér
eins og ég sé að upþlifa
eitthvað sem ég hef áður gert,
Flestir segja að það sé ekki
fyrir góðu að dreyma ketti eða
kettiinga en ég vil meina að fyrir
mig boði það gott, það er
vegna þess að ég hef mikla ást
á köttum, reyndar flestöllum
dýrum yfirleitt.
RÁÐNING
Draumur þinn sýnir að óvin-
áttan milli þínog stúlkunnar sé
þér að einhverju leyti áhyggju-
efni og að þú vildir gjarnan að
opnun ætti sér stað og að gott
væri að hleypa fersku lofti inn í
samskipti ykkar. Miggrunarað
þið hafið einhvern tíma á fyrra
æviskeiði átt samskipti. í
draumnum eruð þið enn á við-
kvæmu stigi, þvi sem fylgir oft
sættum eftir misklíð. Hægri
skórinn tengist framkvæmd og
frumkvæði en hann er ekki
heill. Þú vildir e.t.v. geta tekið
einhver raunveruleg skref í átt
að sáttum en skortir eitthvað til
þess. En þér finnst einnig að
þú sért ekki heil meðan óvin-
áttan sem þú átt sístan þátt í
ríkir milli ykkar.
Þar sem þú ert aðilinn sem
vill sættir mæli ég með því að
þú notir nokkrar mínútur á
kvöldin áður en þú ferð að
sofa til þess að sjá fyrir þér
ykkur báðar standa hlið við
hlið, baðaðar í Ijósi. Ljósinu
fylgir hlýja og þú hugsar þér
þessa hlýju koma frá Kristi og
inn í hjörtu ykkar beggja.
Þú munt síðan finna það
þegar ekki er lengur þörf á
þessari litlu æfingu.
Seinni draumurinn sýnir þig
leggja grunn að lífi þínu með
virðingu fyrir fortíðinni og þeim
arfi sem þar liggur. Þar er að
finna fegurð og umhyggju fyrir
smáatriðum þeim sem veita
fegurð inn í lífið, hversu erfitt
eða snautt af ríkidæmi sem
það er. Lakið úr fortíðinni
passará rúmið í nútíðinni eins
og gildismat á það sem skiptir
máli. Draumurinn sýnir að for-
tíð og nútíð geti „lagst á eina
sæng". Gamlir fordómar þínir
hverfa og eftir eru sættir og
samlyndi. Þó eru gamlar raddir
inni i þér sjálfri (fólki þykir ekki
gott að þú drekkir te með
Hemma) sem enn vilja ráða
einhverju og sem þú réttilega
lætur ekki hafa áhrifá þig. Til-
finningin sem fylgir draumnum
þínum sýnir þér friðinn sem þú
öðlast við að sætta nútíð við
fortíð.
Þú sendir mér tvær fullyrð-
ingar sem þú kallar spurning-
ar. Það er stundum virkilega
erfitt að framkalla spurningu.
Spurning er samt mikilvægt
tæki fyrir viljann til þess að
þroskast. Prófaðu að stíga
skrefið til fulls, það gæti breytt
lífi þínu.
Þú imprar hér á hæfileikan-
um sem íslendingar hafa löng-
um haft, að dreyma fyrir dag-
látum. Þetta fyrirbæri vekur
heillandi spurningar um hvað
tíminn sé. Er timinn, eins og
við þekkjum hann, aðeins af-
leiðing afþví að við erum í lík-
amanum? Ef við förum út úr
líkamanum á nóttunni og ferð-
umst um andlegu sviðin, er
tíminn þar enginn? Sjáum við
þar atburði „fortíðar", „nútíð-
ar“ og „framtíðar" alla jafnt?
Eða rennur tíminn þar aftur á
bak sem „framtíðin" kæmi til
móts við okkur í stað þess að
vera alltaf einu augnabliki á
undan okkur? Ef framtíð okkar
er þegar skráð í andlegum
veruleika, hvar kemur þá frjáls
vilji einstaklingsins við sögu?
Skilaboð drauma okkar
koma fram í algildum
myndum, en líka í einstakl-
ingsbundnum myndum. Hægt
er að veita myndunum inn á
brautir sem auðveldara getur
verið að skilja, með því að
lesa sér til um algildar
draumamyndir sem sálfræðin
eða jafnvel goðafræðin gefa.
En það sem þér líkar eða mis-
líkar í vöku hefur að sjálf-
sögðu endurspeglun í draum-
unum. Vandinn liggur í því að
stundum plötum við okkursjflf
í þeim efnum.
2. TBL 1991 VIKAN 27