Vikan - 24.01.1991, Blaðsíða 24
TEXTI OG MYNDIR: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON
VIKAN í
LOS ANGELES
John Sebastian. Nafniö er
kannski ekki eins frægt
og nöfn eins og George
Bush, Páll páfi eöa Gorbat-
sjov. Þegar fram líða stundi er
þó ekki ólíklegt aö nafn Se-
bastians hljómi þegar rætt
verður um mennina sem héldu
lífi í jarðarkúlunni okkar. Mað-
urinn, sem hefur byggt upp
stórveldi með sölu á hár- og
snyrtivörunum Sebastian, nýtir
nú krafta fyrirtækis síns til að
bæta umhverfið og koma okk-
ur á rétt spor fyrir 21. öldina.
Vikan hitti hann að máli i Los
Angeles í Bandaríkjunum.
Ekki myndu margir með
jafnmikið viðskiptavit og John
Sebastian leggja milljónir í
umhverfisvernd og áróður.
Frekar legðu peninganna
menn arð sinn í hlutabréf eða
fasteignir, gæfu umhverfinu,
sem þeir arðræna, langt nef.
Einmitt þessum hugsunar-
hætti hefur Sebastian barist
gegn í ræðu og riti, auk þess
að stofna samtök til að koma í
veg fyrir eyðingu Amason
regnskóganna í Brasilíu. Nú
gera menn sér Ijóst að ef regn-
skógarnir f heiminum hverfa
John Sebastian i höfuðstöðvum
Sebastian fyrirtækisins í Los
Angeies sem Vikan sótti heim.
llilÉfc
Lífsneistinn má ekki
slokkna fyrir gróðavon
- segir Bandaríkjamaðurinn John Sebastian sem
nýtir snyrtivöruveldi sitttil
áróðurs fyrir umhverfisvernd
eyðist líf jarðarinnar smám
saman því mikið súrefni
myndast í skógunum. Umfang
regnskóga hefur minnkað úr
14% f 6% vegna ofnýtingar
mannskepnunnar á auðæfum
þeirra. Fáir peningamenn eru
tilbúnir aö gefa þessu auga í
hita augnabliksins, gróðinn
skiptir meira máli en framtíðin.
En Sebastian er andstæður
póll.
24 VIKAN 2. TBL. 1991
Snyrtifræðingurlnn Tamara, sem farðað hefur all-
margar stjörnur Hollywood, farðar Elínu Reynisdóttur
með nýjustu Trucco litunum frá Sebastian. Snyrtivörur
Sebastians fást í æ fleiri iöndum. Hér á íslandi er
umboðið i höndum Kristu í Kringlunni.