Vikan


Vikan - 24.01.1991, Blaðsíða 37

Vikan - 24.01.1991, Blaðsíða 37
Hún andvarpaði og fór að vinna við þýðing- arnar sem voru mest aðkallandi. En vinnan gekk treglega. Henni varð litið út um gluggann þar sem greinilega mátti sjá merki þess aö sumarið væri í nánd. Nú sat hún þarna og þráði að komast út. Hún ákvað að ferðast eitt- hvað í fríinu sínu um sumarið. Fara eitthvað og kynnast öðru fólki. Haga sér eins og annað ungt fólk. Hún hlaut að geta það. Með einhverj- um hætti varð hún að losa sig við þennan ósýnilega vegg. Alice fór til Parísar. Þangað hafði hún aldrei komið áður en Yvonne hafði sagt henni svo margt frá fæðingarbæ sínum að henni fannst næstum því eins og hún hefði sjálf átt þar heima einhvern tíma. Hún reikaði alein um breiðgöturnar. Hún mataðist alein á gistihúsinu. Hún vogaði sér ekki að setjast við eitt af litlu borðunum undir marglitu sóltjöldunum. Samt naut hún þess að vera komin þangað. Nú varð henni litið á auglýsingaskiltið. Þar var smáauglýsing um að Daniel White, enski fjallagarpurinn, ætlaði að halda fyrirlestur um Matterhorn þetta kvöld. Hann var þá í París. Hún gæti fengið að sjá hann, setið án þess aö nokkur veitti henni eftirtekt í myrkum sal og hlustað á hann. Alice keypti aðgöngumiða. Fyrirlestur með skuggamyndum. Salurinn var fullskipaður eftirvæntingarfull- um áheyrendum og nú kom hann og í fylgd með honum var ung dökkhærð stúlka með brún augu. Þetta var lagleg ung stúlka og það var auðséð að hún naut þess aö standa þarna f sviðsljósinu og brosa til fólksins niðri f salnum. Hún bauö þau velkomin og þaö fór hrollur um Aiice þegar stúlkan fór að tala frönskuna. Áhorfendur sátu furðu lostnir. Stúlkan kynnti sig sem Lillian Whittaker, einka- ritara hr. Whites. Hr. White gat því miður ekki talað frönsku, þess vegna ætlaði hún að þýða fyrirlesturinn smám saman um leið og mynd- irnar birtust á tjaldinu. - Reyna að þýða, hugs- aði Alice með sér. Hún var svo taugaóstyrk að hendur hennar voru rakar af svita. Bara að þessi stelpukjáni eyðilegði nú ekki allt saman fyrir Danny. Meira að segja Alice átti bágt með að verjast hlátri enda þótt henni lægi við gráti. Það fór kliður um salinn af niðurbældum hlátri áheyrendanna eftir því sem ambögunum fjölgaði í þýðingu Lillian Whittaker. Danny var nú nóg boðið. Svo Iftið bar á bað hann Lillian að hætta og reyndi sjálfur að útskýra myndirnar á frönsku en það varð honum ofraun og fólkið í salnum var sýni- lega farið að ókyrrast. Einhver kvað upp úr með það að fá pening- ana endurgreidda. Allt í einu varð Alice þess vör að hún stóð á miðjum ræðupallinum. Með fáum vel völdum orðum skýrði hún fyrir áheyr- endum hve langt Danny væri kominn í fyrir- lestrinum. Augnatillit Dannys bar vott um þakklæti og feginleik. Alice hélt hiklaust áfram með þýðing- una án þess að skeyta um hið marghöfða skrímsli niðri í salnum. Hún hugsaði aðeins um Danny. Loksins var þessu öllu lokið. Áheyrendurnir klöppuðu og Danny tók um hönd Alice og dró hana fram í sviðsljósið. Þeg- ar lófaklappinu loksins linnti bað hann hana að koma með sér að tjaldabaki og þar voru þau ein. Þau horfðu hvort á annað. Allt í einu tók hann hana í faðm sér og kyssti hana, löngum heitum kossi. Þótt undarlegt kunni að virðast flúði hún ekki í þetta skipti. □ STJORNUKORT Góð aðferð til sjálfsskoðunar og til að kanna orkustrauma framtíðarinnar. Erum umboðsaðilar fyrir stjörnukort Gunnlaugs Guðmundssonar ★ Persónulýsing ★ Framtíðarkort - 12 mán. ★ Framtíðarkort - 3 ár ★ Samskiptakort Kortin afgreidd samdægurs Mikið úrval af bókum um stjörnuspeki: Á íslensku: ★ Hver er ég? Hvað býr í framtíðinni? Stjörnumerkin eftir Gunnlaug Guðmundsson Ástin og stjörnumerkin Stjörnumerkin og kynlífið Bækur um hvert stjörnumerki Stjörnumerkin og áhrif þeirra Mikið úrval af bókum á ensku, meðal annars: ★ American Ephemeries ★ Planets in Houses, R. Hand ★ Planets in Youth, R. Hand ★ Planets in Transit, R. Hand ★ Planets in Composite, R. Hand ★ The Astrologer’s Handbook, Sakoian & Acker ★ Karmic Astrology I, II, III, IV, M. Schulman ★ Rising Signs, J. Avery ★ The Twelve Houses, H. Sasportas ★ Horoscope Symbols, R. Hand ★ Esoteric Astrology, A. Leo ★ Sexual Astrology, Martine ★ Moon Phases, M. Goldsmith ★ Your Secret Self, T. Marks ★ The Astrology Workbook, C.M. Póstkröfuþjónusta- Greiðslukortaþjónusta Pantanasímar: (91)62 33 36 og 62 62 65 beuR^ip Laugavegi 66 101 Reykjavík símar 623336 og 626265 2.TBL1991 VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.