Vikan - 24.01.1991, Page 8
Diddú og maður hennar, Þorkell Jóelsson, ásamt dætrunum Salóme og Valdísi.
LJÓSM.: BINNI
ir, sem kölluð er Diddú, breytist úr venjulegu
stúlkunni, sem fær sér annað veifið súkkulaði-
sopa, í Gildu, einkadóttur Rigolettos. Það ligg-
ur við að skær sópranröddin hljómi um salinn
líkt og í óperunni og í minningunni bregður
fyrir mynd af Diddú þar sem hún er klöppuð
fram á sviðið í lok frumsýningar, fyrst meö hin-
um aðalsöngvurunum og loks ein og sér. Og
það var eins og hún yrði hálffeimin af öllum
fagnaðarlátunum.
„Mér fannst þetta óþægilegt. Ég fór að gráta
þegar ég var kölluö ein fram, ég varð eitthvað
svo lítil innan í mér við þetta. En maður verður
að læra að taka á móti þessu. Ég var svolítið
tætt að lokinni frumsýningu, ég vildi helst fara
út í horn og loka mig af. Það verður svo mikið
spennufall. Við vitum ekkert hvernig til tekst
fyrr en á augnabliki frumsýningarinnar. Frum-
sýningarlokin eru svipuð því að eiga barn eða
upplifa álíkatímamót. Það eru engartvær sýn-
ingar eins og það veit enginn fyrirfram hvernig
til tekst. Og oftast verða sýningarnar betri eftir
því sem þeim fjölgar. Þetta starf er gefandi og
göfugt og þrungiö eftirvæntingu og spennu."
- Verður spennan aldrei óbærileg?
„Nei,“ svarar hún hlæjandi, „maður reynir
að hafa stjórn á henni."
- Er Gilda ekki draumahlutverk sópran-
söngkonu?
„Jú, ætli það ekki. Ég hafði æft hlutverkið hjá
leiðbeinanda mínum á Italíu, Rinu Malatrasi,
fyrir nokkrum árum. Við unnum nokkur hlut-
verk frá tæknilegu sjónarmiði og það hjálpaði
í klóm flagarans. Diddú og Garðar Corts í
hlutverkum sínum.
mér mikið til að móta röddina eins og hún er
núna. Það tekur langan tíma fyrir röddina að
aðlagast nótunum og tekur í raun nokkur ár að
móta hvert hlutverk því undirmeðvitundin þarf
að fá tækifæri til að vinna það, bæði varðandi
raddbeitingu og persónusköpun. Eftir að ég
kynntist þessu hlutverki á Ítalíu var það ofar-
lega á óskalistanum og því ákvað ég að glíma
við það þegar ég var beðin um það tveimur
mánuðum fyrir frumsýningu - þó að þetta væri
stuttur undirbúningstími. En ég hafði ekki tíma
til að syngja það fyrir Rinu, leiöbeinandann
minn, og það fannst henni miður þvf hún vill fá
aö fylgjast með því sem ég er að gera.“
- Þú ert sem sagt ekki útskrifuð?
„Nei, óperusöngvarar eru aldrei útskrifaðir.
Við þurfum alltaf að hafa leiðbeinanda sem
fylgist með okkur því við getum komið okkur
upp ýmsum kækjum sem við tökum ekki eftir
fyrr en okkur er bent á þá. En þó ég hafi farið
tæknilega í gegnum hlutverkið hef ég aldrei
séð Rigoletto á sviði, ekki hlustað á plötu eða
horft á myndband af óperunni. Ég vildi frekar
hlusta á sjálfa mig og reyna aö finna mína
eigin persónulegu leið varðandi röddina og
persónusköpunina."
- Hvernig manneskja er Gilda?
„Gilda er gersemi. Hún er eina góöa mann-
eskjan í þessari óperu. Hún er heilsteypt og
heilög. Hún er saklaus og veit ekkert um
grimmd heimsins, veit ekki einu sinni við hvaö
faðir hennar starfar. Óperan gerist á 16. öld
þegar aðallinn réð öllu. Gilda er alin upp í
8 VIKAN 2. TBL. 1991