Vikan


Vikan - 24.01.1991, Qupperneq 16

Vikan - 24.01.1991, Qupperneq 16
Mynd: Þorvarður Arnason. Með álfum og tröllum, Nem- endalelkhús 1987. Mynd: l'var Brynjólfsson. láta dæma sig því hér er mikið um að fólk sé sett í skúffur. Ég álít þó að enginn geti tekið sér það vald að dæma aðra manneskju. Mér finnst það hreinlega vanþroski að ætla að taka annað fólk og afgreiða það á fimm mínútum. Ég þekki marga sem verið hafa mikið úti en finnst erfitt að vera heima því þeir hafa einhverja eina ímynd hér. Þessi töffmennska hér er ekkert annað en veik- leiki. Styrkur felst í því að vera svo öruggur hið innra að slíkt Bokki i Draumi á Jónsmessunótt, Nemendaleikhúsið 1986. sé ónauðsynlegt. Því umburð- arlyndari sem maður er og því fleiri tækifæri sem maður gefur fólki því sterkari er maður sem manneskja. Það finnst mér. Það getur litað sjálfsmynd manns ef einhverjir erfiðleikar eru í nánasta umhverfi en þá er að gera sér grein fyrir að maður er að ganga i gegnum erfiðleikana með eða við hlið- ina á einhverjum en er þó sjálf- stæður einstaklingur og stend- ur sem slíkur utan við. Maður lærir á þessu að vera ekki að lifa fyrir aðra því þú sjálf ert alltaf það eina sem þú átt að og það sem þú situr uppi með.“ Eftir að tökum á Ryði lauk brá Krilla sér til Búdapest og heillaðist þar mjög af borginni sjálfri og leiklistarhefðum Ung- verja. í Búdapest dvaldi hún í hálft ár en á meðan fóru þar fram fyrstu frjálsu kosningar í marga áratugi og einnig gátu nemendur skóla í fyrsta sinn sent frá sér mótmælaskjöl gegn prófessorum sínum. Hún íhugaði í fyrstu að hefja fram- haldsnám í borginni en komst svo að því að skólinn hentaði henni ekki sem skyldi. Christ- ine spurði þá sjálfa sig hvaða nám myndi gagnast henni best í framtíðinni og varð Bar- celona fyrir valinu eins og áður segir. LÍFHÆN BORG Meðal námsgreina á Institut del teater er „korporal mirne" sem er upprunagrein lát- bragðsleiks og byggist á fag- urfræði og túlkunarmáta lík- amans. Krilla nefnir Frakkann víðfræga Marcel Marceau en skóli sem ber nafn hans er nú rekinn í París. Hvers vegna valdi hún ekki þann skóla? „Marcel marceau skóp sína eigin útgáfu af látbragðsieik og öðlaðist mikla frægð en hann var aöallega að lýsa sinum eigin raunveruleika, svo sem varðandi innilokunarkenndina í stórborginni. Ég lít því svo á að fari ég í Marcel Marceau- skólann sé ég að læra að apa eftir honum en fái ekki sjálf að túlka mína upplifun. Þess vegna er ég mjög hrifin af að læra tæknina og valdið yfir lík- amanum, sem er mikið og flókiö nám. Vitanlega langar mig til að fá að flytja texta á sviði í framtíðinni en ég er einnig að læra hluti sem koma til með að styðja það; bæði hvaö varðar tímasetningu og skýrari sviðshreyfingar." Sköllótta söngkonan, Nemendaleikhús 1988. Mynd: Ivar Brynjólfsson. 16 VIKAN 2.TBL. 1991

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.