Vikan - 24.01.1991, Side 22
LÍNEY LAXDAL ÞÝDDI
Það eru not fyrir
mig eins og ég er
- segir Lena Maria Johansson sem er fötluð
Mér finnst gaman að
prjóna, sauma föt,
keyra bíl, syngja og
vera til, segir Lena Maria 21
árs. - Ég veit ekki hvernig þaö
er að hafa tvær hendur ög tvo
fætur því það var ekki mér
ætlað. Frá fæðingu hef ég
þurft að bjarga mér sjálf.
Það tók mig tvær vikur að
uppgötva hvernig ég gæti fitj-
að upp á prjóninn með tánum.
En nú get ég prjónað flest
munstur, teiknað og málað,
spilað á píanó og gítar og svo
sauma ég öll mín föt sjálf. Það
þykir vel af sér vikið þegar
þess er gætt að mig vantar að-
eins tvær hendur og einn fót.
Frábært!
Þetta er umhugsunarvert.
En það sem hefur mest áhrif á
þá sem heimsækja hana er lít-
ið veggspjald sem hún á. Á því
stendur: Drottinn er minn hirðir
og sér mér fyrir því sem mig
vanhagar um. Þessi einföldu
orð geta ómögulega passaö
við Lenu Mariu, finnst okkur.
Hún segir: Hvernig getur mig
vantað það sem ég hef aldrei
haft? Ég veit ekki hvernig það
er að hafa hendur, þess vegna
finnst mér ekki að þær hafi
verið teknar af mér. Frá fæð-
ingu hef ég lært að bjarga mér
án þeirra.
Lena Maria Johansson kom
í heiminn fyrir tuttugu og einu
ári. Hún fæddist án handa,
með annan fótinn heilan og
hinn hálfan. Þrem dögum eftir
fæðinguna fengu foreldrar
hennar loks að sjá hana.
- Læknarnir voru hræddir
við viðbrögö mömmu og
pabba. En þegar þeir sýndu
þeim mig brosti ég mínu fyrsta
brosi og foreldrar mínir
ákváðu aö halda mér. Lækn-
arnir höfðu sagt þeim að það
væri öllum fyrir bestu að ég
yrði alin upp áfósturheimili. Ég
er ekki thaliomid-barn segir
hún. Það veit enginn hvað hef-
ur komið fyrir á meðgöngunni,
það er óútskýrt enn.
Ég trúi því að Guð hafi vitað
hvað hann gerði. Mér finnst
hann hafa gefið mér einhverja
sérstaka merkingu hér í lífinu.
Ég veit nefnilega af hverju ég
lifi. Hann hefur aldrei sagt við
mig, trúið og þér munið verða
frísk. Nei, það eru not fyrir mig
eins og ég er. Þess vegna vil
ég ekki verða frísk. Það eru
margir til sem vilja hitta mig og
reyna að lækna mig en ég trúi
því að Guð lækni fólk ekki
bara til þess að því líði vel
heldur gerir hann það til þess
að það trúi á hann. Það er mun
mikilvægara fyrir mig að lifa
Ekkert grín að
eiga tvo pabba
▲ Keshla með
„alvöru
foreldrum"
sínum og
litla
bróður.
Að eiga tvo feður aðeins
tíu ára að aldri er erfitt,
segir Keshia, leikkonan
unga sem leikur Rudy í Fyrir-
myndarföður. Samt er Bill
Cosby ekki nærri þvi eins
strangur og raunverulegi
þabbi minn.
-Að eiga tvo feður sem
fylgjast með manni með rönt-
genaugum er mjög erfitt, segir
Keshia Knight Pulliam, yngsta
barnið i Fyrirmyndarföður.
Báðir vilja þeir hindra að ég
verði ofdekruð, af því ég er
minnsti þátttakandinn í þáttun-
Bill er mjög
barngóður.
22 VIKAN 2.TBL.1991