Vikan - 18.04.1991, Síða 19
ÁSTA KR. RAGNARSDÓTTIR NÁMSRÁÐGJAFI
„M gerist ekkerf ef fólk er
eldd tilbúið o) leita leiða"
Hvað ætlarðu að
veröa þegar þú verð-
ur stór? er stundum
sagt við börn og fæst eiga í
erfiðleikum með að svara
þessari stóru spurningu. Þeg-
ar árin líða virðist þó erfiðara
að svara henni enda kemst
fólk að því þegar það eldist að
þetta er heilmikið mál, til dæm-
is að finna út hvaða nám á að
leggja stund á því það hefur
vissulega áhrif á framtíðina.
Margir standa nú í þeim
sporum að þá langar til að
læra eitthvað. Margra kosta er
völ og erfitt getur verið að
ákveða sig eða bara velja
eitthvað yfirleitt.
Við Háskóla (slands starfa
nú fimm námsráðgjafar sem
hafa meðal annars þann starfa
að hjálpa fólki við námsval. Til
að forvitnast aðeins meira um
störf þeirra fór blaðamaður á
fund eins námsráðgjafans,
Ástu Kr. Ragnarsdóttur. Hún
hefur starfað sem námsráð-
gjafi við Háskólann síðan
1981.
Það liggur kannski beinast
við að byrja á því að spyrja um
starf námsráðgjafa. ( hverju
felst það?
„Það má eiginlega skipta
starfinu gróflega í tvo hluta.
Annars vegar er námsvals-
þátturinn sem er um það bil
helmingur af starfinu og svo er
það stuðningur meðan á nám-
inu stendur. Hann getur verið
margs konar, allt frá því hvern-
ig þú opnar bók og lest hana
til þess hvernig þú eyðir degin-
um og vikunum. Einnig veitum
við þjónustu í sambandi við
félagsleg réttindi svo og sál-
fræðiþjónustu, þannig að þetta
starf er mjög viðamikið."
„ÞÚ KAUPIR EKKI f
BÚÐ HVER ÞÚ ERT NÉ
HVAÐ ÞÚ VILT VERÐA“
„Til okkar koma margir sem
hafa ekki hugmynd um hvað
þeir vilja læra eða hvað þeir
eigi að velja og við reynum að
gera okkar ýtrasta til að hjálpa
því fólki. Það er gert með við-
tölum þar sem farið er nokkuð
ítarlega út í einstaklinginn. Við
athugum hvað hann hefur
gert til þessa og hvernig hon-
um hefur vegnað. Hefur hann
verið ánægður, hvað gerir
hann ánægðan o.s.frv.
Það verður svo að taka mið
af viðhorfum og gildum því
slíkt er eitthvað sem þróast
með fólki og við verðum að
huga að. Fólk er mismunandi
að upplagi og sumir þurfa að
láta Ijós sitt skína meira en
aðrir og það þarf ekkert að
vera neikvætt. Þess vegna
skiptir miklu máli, þegar við
reynum að finna út hvað ein-
staklingurinn á að gera, að
hann sé einlægur í viðtölum
og hreinskilinn því annars er
erfitt að finna út hvaö hann
raunverulega vill. Ekki má
heldur misskilja það þannig að
einstaklingar komi til okkar og
við segjum hvað þeir eigi að
gera heldur erum við að að-
stoða fólkið við að finna út
sjálft hvað það vill læra. Það
gerist ekkert ef fólk er ekki til-
búið að leita leiða.
Ef erfiðlega gengur að finna
út úr þessu með viðtölum
erum við meö stoðgögn, könn-
un sem veitir margvíslegar
upplýsingar um áhugasvið.
Við höfum notað hana í þrjú til
fjögur ár. Það er óhætt að
segja að fólk sé mjög ginn-
keypt fyrir þessu og margir
vilja gangast undir svona
könnun. Við metum með við-
tölum hvort þess gerist þörf
því það er alls ekki alltaf, fyrir
utan það að það leysir ekki all-
an vandann að fara í svona
próf. Þú kaupir ekki í búð hver
þú ert né hvað þú vilt verða.
Þeim hefur fjölgað gífurlega
sem til okkar leita. Það bætast
hundruð við árlega. Enn sem
komið er eru konur í meiri-
hluta, það má finna marktæk-
an mun og það virðist eins og
þær séu fúsari til að leita sér
aðstoðar."
„LITLAR UPPLYSINGAR
UM ÞÖRF
VINNUMARKAÐARINS"
Er eitthvað farið eftir möguleik-
um eftir nám við val á náms-
grein?
„Við höfum, enn sem komið
er, mjög haldlitlar upplýsingar
um þörf vinnumarkaðarins þó
þær séu einhverjar og það er
mjög hæpið að velja sam-
kvæmt framtfðarspám. Það
væri þó gott að hafa góðar
upplýsingar um þörf vinnu-
markaðarins. Það á þó við um
allt nám að ef fólk tileinkar sér
ákveðið nám og er búið að afla
sér grunnþekkingar á það að
geta sett sig inn í mörg störf.“
Hversu miklu máli skiptir
hagnýti þátturinn að þínu
mati?
„Hagnýti þátturinn skiptir
miklu máli fyrir marga og
kannski spáir fólk stundum
einum of mikið í hann en ég
segi að það sé ekki nóg að
geta framfleytt sér ef maður er
ekki ánægður með þaö sem
maður er að gera. Þannig að
það er ekki nóg að hugsa um
hagnýta þáttinn þegar náms-
grein er valin heldur verður
hver og einn líka að hugsa um
hvað veitir honum ánægju.
Þetta tvennt helst í hendur."
„SKIPULAGT NÁM
NÝTIST BETUR“
Ef við snúum okkur aðeins
nánar að hinum stóra þættin-
um í ykkar starfi, stuðningi við
nemendur meðan á námi
stendur, hvernig fer hann
fram?
„Hann er mjög margþættur.
Við förum yfir það með nem-
andanum hvaöa aöferðir eru
líklegastar til að skila árangri f
sambandi við námið, hvernig
hann nýtir best krafta sína við
námið og hvernig hann skipu-
leggur tímann.
Það er góð leið fyrir nem-
endur aö skoða sjálfa sig í
heild, skoða hvaða þættir það
eru sem hafa truflandi áhrif.
Þetta eru oft utanaðkomandi
þættir svo sem fjárhagur, fjöl-
skylduaðstæður og fleira.
Nemendur fá tækifæri til að
ræða þessa hluti, sem annars
koma oft ekki upp á yfirborðið,
og við hjálpum til við að finna
úrræði sem oft reynist ekki
mikið mál þegar byrjaö er að
taka á því.
Það skiptir líka gífurlegu
máli að skipuleggja nám sitt
vel. Það er mjög gott að gera
áætlun fyrir hverja viku og fara
eftir henni. Þá verður þetta
smám saman að venju og
verður ekkert mál. Það skilar
sér fljótt ef maður tileinkar sér
stöðug og góð vinnubrögð.
Þaö geta allir tileinkað sér þau
og námið nýtist mun beturfyrir
vikið.
Mér finnst mikil vakning
meðal ungs fólks núna að
virkja krafta sína markvisst til
að nýta námið sem best. Nú
finnur maður glöggt fyrir því að
fólk vill ekki bara berast með
straumnum heldurvill það tak-
ast á við hlutina. Fólk er farið
að líta á háskólanám sem
sína vinnu og þá skiptir miklu
máli að skipuleggja námið vel.
Það skilar sér seinna. Það
þýðir ekki að ætla sér bara að
setjast niður fyrir próf og læra
allt námsefni vetrarins. Sumir
komast upp með það og ná
prófum en það situr ekki mikið
eftir hjá því fólki heldur fer
þetta mestallt inn í skamm-
tímaminnið. Hlutirnir fara ekki
inn í langtímaminnið fyrr en
menn hafa öðlast skilning á
viðfangsefnunum og náð að
tjá sig um þau.“
8. TBL.1991 VIKAN 19
TEXTI: GYÐA DRÖFN TRYGGVADÓTTIR / LJÓSM.: BRAGI Þ. JÓSEFSSON