Vikan - 18.04.1991, Blaðsíða 50
„Er allt í lagi með þig, vina?“ spurði kven-
rödd og Sara hristi höfuðið í blindni.
„Sara? Sara\“
Þú getur ekki falið þig... fyrir Jekyll og
Hyde, hugsaði hún samhengislaust. Sjálflýs-
andi gríman virtist hanga sjúkiega fyrir augum
hennar i myrkri skemmtanasvæðisins meðan
hún flýtti sér framhjá hringekjunni. Hún rak öxl-
ina í Ijósastaur, riðaði, þreif í hann og kastaði
upp. Það virtist koma alla leið neðan úr hælum
hennar, maginn gekk í krampaflogum eins og
sjúkur, sleipur hnefi. Hún reyndi eftir megni að
slaka á.
Lyktin ereins og af candyflossi, hugsaði hún
og stundi, kastaði upp aftur, svo aftur. Blettir
dönsuðu fyrir augum hennar. í síðasta sinn
kom lítið annað en slím og loft.
„Ó, hjálpi mér,“ sagði hún veiklulega og hélt
sér í Ijósastaurinn svo hún dytti ekki. Einhvers
staðar fyrir aftan hana var Johnny að kalla í
hana en hún gat ekki svarað strax, langaði
ekki til þess. Maginn var að róast aðeins og
hana langaði að standa þarna í myrkrinu
andartak og óska sjálfri sér til hamingju með
að vera á lífi - að hafa lifað af hátíðarkvöldið.
„Sara? Sara\“
Hún skyrpti tvisvar til að hreinsa munninn ör-
lítið.
„Hérna, Johnny."
Hann kom kringum hringekjuna með gifs-
hestana frosna í miðju stökki. Hún sá að hann
hélt annars hugar á þykkum seðlavöndli.
„Er allt í lagi núna?“
„Nei, en ég er betri. Ég kastaði upp.“
„Ó. Ó, Guð. Við skulum koma heim.“ Hann
tók mjúklega um handlegg hennar.
„Þú hefur fengið peningana þína.“
Hann leit á samanvöðlaða seðlana og setti
þá síðan í buxnavasann annars hugar. „Já.
Eitthvað af þeim eða þá alla, ég veit það ekki.
Sá þrekvaxni taldi þá.“
Sara tók vasaklút úr tösku sinni og þurrkaði
sér um munninn með honum. Vatnsglas,
hugsaði hún, ég myndi selja sál mína fyrir
vatnsglas.
„Þér ætti ekki að standa á sama,“ sagði hún.
„Þetta eru miklir peningar."
„Fundið fé færir með sér ógæfu," sagði
hann myrkur á svip. „Eitt máltækja móður
minnar. Hún var með þau í milljónatali. Og
henni er meinilla við fjárhættuspil."
„Baptisti í húð og hár,“ sagði Sara og titraði
síðan krampakennt.
„Er allt í lagi með þig?“ spurði hann um-
hyggjusamur.
„Mér er ískalt," sagði hún. „Þegar við kom-
um inn í bílinn vil ég fá miðstööina á fullt
og ... ó, Guð, ég þarf að kasta upp aftur."
Hún sneri sér frá honum, kúgaðist og stundi.
Hún slagaði. Hann hélt henni mjúklega en
ákveðið. „Geturðu gengið að bílnum?"
„Já, ég hef það ágætt núna.“ En hana verkj-
aði í höfuðið, hún var með vont bragð i
munninum og vöðvarnir í bakinu og maganum
virtust allir úr lagi gengnir, teygðir og sárir.
Þau gengu hægt niður eftir skemmtana-
svæðinu saman, dröttuðust gegnum sagið,
fóru framhjá tjöldum sem búið var að loka og
ganga frá fyrir nóttina. Skuggi rann upp að
þeim aftan frá og Johnny leit snögglega aftur
fyrir sig, gerði sér máski grein fyrir því hve
mikla peninga hann var með í vasanum.
Það var annar unglinganna - um það bil
fimmtán ára gamall. Hann brosti feimnislega til
þeirra. „Vonandi líður þér betur,“ sagði hann
við Söru. „Þetta eru áreiðanlega pylsurnar.
Það er algengt að þær séu skemmdar."
„Minnstu ekki á það,“ sagði Sara.
„Þarftu hjálp við að koma henní að bílnum?"
spurði hann Johnny.
„Nei, takk. Við björgum okkur.“
„Allt í lagi. Ég verð hvort sem er að drífa
mig.“ En hann hikaði andartaki lengur, feimn-
islegt brosið breikkaði i glott. „Mér finnst frá-
bært að sjá þennan náunga tapa.“
Hann tölti burt inn í myrkrið.
Litli, hvíti skutbíllinn hennar Söru var eini
bíllinn sem eftir var á myrkvuðu bílastæðinu;
hann kúrði sig undir Ijósi eins og vansæll, yfir-
gefinn hvolpur. Johnny opnaði farþegadyrnar
fyrir Söru og hún settist varlega inn. Hann sett-
ist undir stýri og setti bílinn í gang.
„Miðstöðin hitnar á nokkrum mínútum,"
sagði hann.
„Það skiptir engu máli. Mér er orðið heitt
núna.“
Hann leit á hana og sá svitann perla andlit
hennar. „Við ættum kannski að rúlla þér yfir á
slysavarðstofuna á sjúkrahúsinu í Austur-
Maine,“ sagði hann. „Ef þetta er salmonella
gæti það verið alvarlegt."
„Nei, þetta er allt í lagi. Ég vil bara komast
heim og fara að sofa. Ég ætla rétt að vakna til
þess að tilkynna mig veika í skólanum og fara
svo aftur að sofa.“
„Ekki vera að hafa fyrir því að vakna. Ég
skal láta vita að þú sért veik, Sara.“
Hún leit þakklát á hann. „Myndirðu vilja
það?“
„Vissulega."
Þau stefndu í átt að aðalhraðbrautinni.
„Því miður get ég ekki komið með þér
heím,“ sagði Sara. „Mér þykir það verulega
miður."
„Það er ekki þér að kenna."
„Víst. Ég borðaði skemmdu pylsuna. Sara
óheppna."
„Ég elska þig, Sara,“ sagði Johnny. Þá var
það sagt, ekki hægt að afturkalla það, það
hékk á milli þeirra í bílnum og beið þess að
einhver gerði eitthvað við það.
Hún gerði það sem hún gat. „Þakka þér fyrir,
Johnny."
Þau óku áfram í þægilegri þögn.
FRAMHALD í NÆSTU VIKU
SIGRÚN & MARGRÉT
Frh. af bls. 9
sem ég hef talað við hafa fundið eitthvað sem
þeir þekktu í verkinu."
- Nú stendur til að fara með sýninguna út á
land eða hvað?
„Já, það er draumurinn að gera það. Svona
leikferðir eru óhemju mikil vinna, kosta taisvert
og gera endalausar kröfur um aðlögun, sveigj-
anleika og skjót viðbrögð. En þær eru líka gef-
andi og mér finnst svo gaman að fá tækifæri til
að leika fyrir sem fjölbreyttastan hóp áhorf-
enda. Engir tveir eru alveg eins. Aldrei.“
- Svo við vendum okkar kvæði í kross,
svona rétt í lokin, ætlaðirðu alltaf að verða leik-
ari?
„Nei, almáttugur, það var alger tilviljun. Ég
fór óvart í áhugamannaleikfélag og þarfékk ég
þessa bakteríu sem ég hef aldrei losnað við.
Ég er svo haldin af leikhúsi að mér finnst
leikhús, með stórum stöfum, allt sem því til-
heyrir, alltaf jafnstórkostlegt. Og ef ég gæti val-
ið aftur myndi ég ekki hika; ég veldi leikhús.
Það er svo ótrúlega mikið af yndislegu fólki í
leikhúsinu, skapandi, gefandi og hlýju fólki.
Samvinnan verður líka svo náin að þú kynnist
engu slíku annars staðar.“
- Hvað um hina margfrægu, jafnvel ill-
ræmdu, leikhúsafbrýðisemi? Ekki getur hún
verið svona gefandi - eða er hún kannski bara
þjóðsaga?
„Þetta er náttúrlega á sinn hátt gömul klisja
en auðvitað er samkeppni og auðvitað kemur
upp afbrýði. Það hlýtur að vera eðlilegt þegar
kannski tíu leikkonur þrá allar að fá tækifæri til
að leika eitthvert hlutverk sem aðeins ein getur
á endanum fengið. Væri það ekki lifandi dauði
að yppta bara öxlum og vera alveg sama?
Leikara er ekki sama um sín tækifæri til túlkun-
ar, leikara er ekki sama um sína möguleika til
sköpunar og tjáningar. Ég held varla að leikari,
sem væri þannig innréttaður, gæti verið metn-
aöarfullur i sínu starfi! En leikhúsið er stundum
einn ólgupottur og ég kann því vel. Ég vil hafa
lífsmark. Leikhús þar sem engin afbrýði er,
engin samkeppni, er bara stofnun; gelt fyrir-
bæri.“
- Einhver hvíslaði að mér að leikarar væru
í hnotskurn þannig að þeir kysstust mikið,
brostu og töluðu fallega hver framan í annan
og bitu svo á barkann á næsta andartaki?
„Nú, ég ræð auðvitað ekki við það hvað fólk
segir úti í bæ en það er alveg satt að oft eru
sögð stór orð, bæði lof og last í hita augna-
bliksins. Leikhús er lifandi; í leikhúsi er stöðug
gerjun. Ef þetta líf vantaði, ólguna, þá væri
þetta bara eins og sendibílastöö. Hver á
næsta túr? Leikari, sem langar ekki sárt til að
glíma við hlutverk, hefur bara ekkert í leikhúsi
að gera. Sé honum alveg sama þá á hann þar
ekkert erindi.“
- En þú sjálf, hefurðu persónulega orðið
fyrir barðinu á afbrýðisemi, jafnvel baktali í
samkeppninni um hlutverk?
„Eins og ég sagði hérna áðan hef ég verið
afskaplega heppin. Ég hef fengið tækifæri til
að leika mörg stór og eftirsótt hlutverk, tæki-
færi til að vinna náið með því yndislegasta fólki
sem hægt er að hugsa sér. Og aldrei, aldrei
myndi ég skipta á leikhúsinu fyrir neinn annan
vinnustað. Það segir alla söguna - er það
ekki?“
Margrét Helga rís á fætur og fyrir hugskots-
sjónir líða myndir af henni í hverju hlutverkinu
á fætur öðru; hlutverkum þar sem trúnaðar-
sambandið við salinn varð svo náið að áhorf-
andi á aftasta bekk var ekki lengur viss um
hvort hann horfði á leikrit eða tók þátt í því.
Það er mögnuð tilfinning að fara meö úr leik-
húsi. Leikkonan sjálf veit minnst af þessum
hugrenningum þegar hún tínir saman bolla,
kaffikönnu og diska og býðst til að skutla
blaðamanni bæjarleið. En sá hefði þegið, eins
og sjálfsagt margir aðrir, að sitja enn langa
stund og njóta frásagnar hennar af leikhúsinu
og lífinu þar, sem hún setur ofar öllu öðru.
50 VIKAN 8. TBL.1991