Vikan


Vikan - 18.04.1991, Síða 24

Vikan - 18.04.1991, Síða 24
m TEXTI: GUÐRÚN BERGMANN í kjölfar þeirrar athygli sem kvikmyndin Dansar viö úlfa (Dances with Wolves) hefur dregið aö sér hefur kviknað áhugi hjá mörgum á því að fræðast meira um indíána Norður-Ameríku og þá ef til vill sérstaklega Sioux-indíánana, um lifnaðarhætti þeirra og heimspeki, svo og baráttu þeirra fyrir auknum réttindum í landinu sem þeir „áttu“ þegar hvíti mað- urinn kom. Vikan fór þess á leit við Guðrúnu Bergmann að hún ritaði grein fyrir blaðið er varpaði Ijósi á líf og sögu indíána, en Guðrún hefur kynnt sér það mál allrækilega og farið margar ferðir vestur um haf í heimsókn í indíánabyggðir. // FJÖLDI ÞJÓÐA Taliö er aö viö komu hvíta mannsins til Amer- íku fyrir um fimm hundruö árum hafi búiö um níu hundruð og fimmtíu þjóöir indíána í Norö- ur-Ameríku, í noröurhluta Mexíkó og í Kan- ada. Sé litið á hversu geysistórt landsvæöi þeir byggöu þá er ekkert óeðlilegt viö það að ekki hafi alltaf ríkt friður á milli þessara þjóöa er þar bjuggu. Til samanburöar má skoöa Evrópu þess tíma sem þó er miklu minna landsvæði og þau stríö milli þjóða sem þar voru háö og hafa verið háö meö reglulegu millibili á hverri öld. Ein meginástæöa þess að indíánarnir börö- ust innbyrðis var sú áð þeir voru aö verja veiði- lendur sinar eöa sækja inn á nýjar. Þjóðirnar liföu fábrotnu lífi og þó akuryrkja væri einnig stunduð hjá flestum þeirra reiddu þær sig mik- iö á veiðina. Þar aö auki lifðu flestar þjóöirnar eftir þeirri meginreglu aö væri eitthvað gert á þeirra hlut bæri þeim skylda til aö hefna fyrir þaö. Því var þaö svo að hæfust átök milli þjóöa var erfitt aö Ijúka þeim, nema til kæmu friöar- hugsandi höföingjar. HEIMSPEKI INDÍÁNA Flestar þjóöir indíánanna viröast hafa haft sina útskýringu á því hvernig heimsmynd þeirra varð til. Margar þessara útskýringa eru líkar en þó er um blæbrigðamun aö ræöa. Heims- myndin virðist aö hluta hafa aðlagað sig því hvar þeir bjuggu og hvaöa hlutir höföu mest áhrif á lífsafkomu þeirra. Þannig hefur mais- kornið mikla þýðingu í trúarbrögðum Zuni, Hopi, Navajo og fleiri þjóða á sama svæöi, sem byggöu aö miklu leyti lífsafkomu sína á

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.