Vikan - 18.04.1991, Síða 25
▲ „Ég blés í arnarbeinsflautuna mína í takt við
dansinn. Hljómurinn drekkti sársauka mínum og
ég gat séð hluti með huga mínum.“ Merle Left
Hand Bull í sólardansinum (Sun Dance).
Hápunktinum er náð þegar hann slítur sig lausan.
góðri uppskeru af maískorni. Á sama hátt eru
vísundar sterkt tákn hjá Sioux-indíánum en
kjötið af þeim var ein aðaluppistaðan í fæðu
þeirra, skinnin voru notuð í tipi-tjöldin, sinarnar
í bogastrengi og til sauma og svo má lengi
telja.
ÞEIR ÖNNUÐUST JÖRÐINA
Þrátt fyrir þennan blæbrigðamun í trúarat-
höfnunum var ýmislegt sameiginlegt með öll-
um þessum þjóðum. Þær litu ekki á jörðina
sem eign sína heldur að þeim hefði verið út-
► Buffalóar, eða vísundar eins og þeir kallast á
íslensku, gegna veigamiklu hlutverki i trúar-
brögðum indíána. Það er kannski ekki óeðlilegt
þar sem þær skepnur voru helsta fæða indíána.
Hér má sjá atriði úr kvikmyndinni vinsælu
Dansar við úlfa og er það Kevin Costner sem er
lengst til vinstri.
hlutað því starfi að annast um hana og að hún
myndi annast þá í staðinn. Hverri þjóð bar
skylda til með framkomu sinni að hugsa um
næstu sjö kynslóöir og ganga þannig um jörð-
ina að nægileg fæða yrði fyrir þær. Því var það
að þegar farið var út til að tína ávexti eða ann-
að það sem óx á trjám var ekki byrjað á fyrsta
trénu sem komið var að heldur á því að biðja
leyfis (æðri máttarvöld) um að mega tína. Að
fengnu leyfi var gengið að áttunda tré þar frá
og þannig hugsað um næstu sjö kynslóðir. Á
sama hátt var aldrei veitt nema það sem þurfti
til framfærslu fólksins á hverjum tíma og ekkert
látið fara til spillis við úrvinnslu bráöarinnar.
Allar þjóðirnar litu svo á að hinn mikli andi
væri í öllu sem var, ekki einungis þeim sjálfum
heldur í öllu lifandi í kring, dýrunum, trjánum,
jurtunum, steinunum og einnig í jörðinni sjálfri.
Þeir báru því virðingu fyrir umhverfinu á sama
hátt og þeir báru virðingu fyrir sjálfum sér. At-
hyglisverðast er þó að gera sér grein fyrir að
þeir mátu mest andrúmsioftið því það sá þeim
fyrir „andardrætti lífsins".
INNRÁS HVÍTA KYNSTOFNSINS
Þegar Evrópubúar fóru að streyma til austur-
strandar Bandaríkjanna fyrir tæpum fimm
hundruð árum voru þjóðir indíánanna alls óvið-
▲ Þessa mynd tók greinarhöfundur af syni
sinum, Guðlaugi Bergmann, ásamt tveim
indíánum í einni af mörgum heimsóknum
höfundar á indíánaslóðir.