Vikan


Vikan - 18.04.1991, Side 66

Vikan - 18.04.1991, Side 66
TEXTI: PORSTEINN EGGERTSSON BÖRN LEGGJA UNDIR SIG MNGHÚS OG MENNINGARSTOFNANIR A LISTAHÁTfÐ ÆSKUNNAR Afyrstu áratugum næstu aldar munu börn dags- ins í dag erfa landið og kannski hefur æska íslands aldrei verið glæsilegri en ein- mitt nú. Það er því tímabært og vel það að í ár, á síðustu dögum vetrar og fyrstu sumar- dögum, verður Listahátíð æskunnar haldin í fyrsta sinn. Listahátíð, sem aðallega er sniðin fyrir fullorðna, hefurver- ið haldin annað hvert ár á ís- landi síðan 1970 en nú er komið að börnunum. Hug- myndin er sú að Listahátíð æskunnar verði haldin annað hvert ár og þá þau árin sem hin listahátíðin er ekki haldin. Það er af nógu að taka þar sem börnin eru annars vegar. Þau búa yfir ýmsu sem margt fullorðið fólk hefur tapað niður eða gleymt, svo sem óheftu hugmyndaflugi, dómgreind einlægninnar og síbreytilegri lífssýn. Á listahátíð þeirra verður boðið upp á leiklist og Ijóð, söng og dans, myndlist og tónlist, sögur og uppákom- ur af ýmsu tagi. Hátíðin stend- ur í níu daga og fer fram á hundrað stöðum víðs vegar um höfuðborgina, auk þess sem börnum verður boðið í heimsókn til þekktra lista- manna af ýmsu tagi og geta meðal annars fengið leiðbein- ingar f ýmsum greinum lista og bókmennta. Hátíðin verður opnuð klukk- an 14 í Borgarleikhúsinu laug- ardaginn 20. apríl og þar verða sýnd atriði úr öllum list- greinum og kostar hundrað krónur inn, bæði fyrir börn og fullorðna. Sama dag klukkan 15 verður opnuð myndlistar- sýning nemenda úr grunnskól- um Reykjavíkur í Listasafni Islands, myndlistarsýning reykvískrar æsku í Gerðu- bergi klukkan 16 og myndlist- arsýning nemenda úr leik- og grunnskólum Reykjavíkur í Hlaðvarpanum klukkan 16.30. Klukkan 16 verður einnig opn- uð myndlistarsýning á verkum úr Ijóðabók barnanna. Allar þessar sýningar verða opnaö- ar með fjölbreyttustu tónleik- um og í Gerðubergi kemur fram leikhópur frá Akureyri. I Norræna húsinu sýna ís- lenskir bókaútgefendur barna- bækur og í Árbæjarsafni verð- ur merkileg leikfangasýning. Henni lýkur þann dag klukkan 17 en um leið hefjast tónleikar á Púlsinum. Einnig verða tón- leikar og danssýning á Hótel Borg. Þetta er aðeins sýnishorn úr dagskrá fyrsta dagsins en það verður ekki minna um að vera hina dagana. Daginn eftir verður nýr salur á þriðju hæð Þjóðleikhússins vígður, börn- unum til heiðurs, og í Óper- unni verða heilmiklir tónleikar auk margra annarra atriða víða um borgina. Nefna má myndlistarsýningar í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg. Mánudaginn 22. apríl bæt- ast svo danssmiðja og rit- smiðja f hátíðahöldin ásamt listasmiðju með arkitektum í Ásmundarsal og kynningu á blindraletri í Borgarbókasafn- inu við Sólheima. Þennan dag verða úrslitin f alþingiskosn- ingunum orðin kunn allri þjóð- inni en öllum að óvörum skunda börn á þing, leggja undir sig Alþingishúsið og halda þar málþing æskunnar. Ef veður leyfir munu börn frá dagvistarstofnun Landspftal- ans svo troða upp á Landspít- alalóðinni. Ballettskóli Guð- bjargar Björnsdóttur sýnir listdans í opnu húsi og enn ein myndlistarsýning verður opnuð í SPRON í Breiðholti ásamt mörgum öðrum atrið- um, svo sem kammertónleik- um nemenda tónlistarskól- anna í Reykjavík en þeir verða haldnir í Norræna húsinu. Enn heldur spennan og fjöl- breytnin áfram þriðjudaginn 23. apríl. Þá verður opnuð myndlistarsýning í mennta- málaráðuneytinu, börn frá Kramhúsinu sýna leikspuna í Listasafni Einars Jónssonar og ungt fólk flytur tónverk í Listasafni Ásgríms Jónssonar. Þann dag slást Áskirkja, Myndlistaskólinn í Reykjavík, Félagsmiðstöðin Fjörgyn og Safnaðarheimili Seljahverfis í hópinn með tónleika, kynning- ar og gjörninga og tíu dans- skólar verða með opið hús. Á miðvikudag, 24. apríl, verða auk margra annarra atr- iða rokktónleikar á Lækjartorgi frá miðju síðdegi til miðnættis og svo kemur sjálfur sumar- dagurinn fyrsti. Þá verður glatt á hjalla um alla borg og ýmsir skólar opna upp á gátt með fjölbreyttustu sýningar. Þeirra á meðal eru Vesturbæjarskóli, Fellaskóli og Álftamýrarskóli ásamt félagsmiðstöðvunum Frostaskjóli, Árseli og Þrótt- heimum. Daginn eftir bætist Kaupstaður í Mjódd í hópinn með skemmtidagskrá leik- skólabarna og leikskólabörn leika auk þess og syngja í Grímu, Hjónagörðum við Suðurgötu. í Bústaðakirkju, Miðbæjarskólanum og Mela- skólanum verða tónleikar, skemmtidagskrá, þrautir, vor- hátíð, söngleikur og fleira föstudaginn 27. apríl og dag- inn eftir lýkur svo þessari fyrstu Listahátíð æskunnar með ýmsum uppákomum víðs vegar um borgina. Hér hefur aðeins verið stikl- að á stóru og ekkert minnst á kóra, upplestur, leirvinnslu og margt fleira, enda tæki það lík- lega helmingi meira pláss í blaðinu að segja frá öllu sem fyrirhugað er að verði í boði og öllum þeim hópum og lista- mönnum sem munu leggja fram efni og skemmtiatriði. Þetta verður hvort sem er allt aug- lýst rækilega. Eitt getum við þó fullyrt. Það verður mikið um dýrðir á Listahátíð æskunnar í ár. 64 VIKAN 8.TBL. 1991

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.