Vikan - 28.11.1991, Síða 10
YNDISLEGT AÐ GETA
GEFIÐ AF SÉR
Systkinin Sigurður, Kristín og Herdís Finn-
bogabörn sáu á bak móður sinni, Sólveigu
Sigurðardóttur, í júní síðastliðnum. Þau og
faðir þeirra, Finnbogi Gíslason, eru á einu
máli um að starfsemi Heimahlynningar hafi
skipt sköpum fyrir Sólveigu síðustu vikurnar.
Sólveig var með krabbameinsæxli í
lunga og það færðist upp í heila svo
að í hennar tilviki var sjúkdómurinn
bráður. Eftir að heilaæxlið var fjar-
lægt hresstist hún mikið, þó geisla-
meðferðirnar tækju á. Heilaæxlið tók sig síðan
upp aftur og þessi tæplega 55 ára kona varð
ein þeirra er lotið hafa í lægra haldi fyrir þess-
um illvíga sjúkdómi.
„Þetta var afar sérstakur tími og við vorum
öll mjög ánægð með þjónustu Heimahlynning-
ar,“ segir Sigurður. „Þó maður vissi innst inni
að stutt væri eftir var þetta samt yndislegur
tími því við gátum gefið af okkur. Þjónustan
gaf mömmu mikið og starfsfólkið er allt svo Ijúft
að henni leið vel í návist þess. Þau eru öll eins
að því leyti að vera gefandi og veita alla þá
þjónustu og tima sem þau mögulega geta. Þau
gerðu henni og auðvitað okkur þetta stríð
miklu léttara. Vegna þessarar aðstöðu var okk-
ur gert kleift að vera með henni allan þann
tíma sem hún átti eftir. Hefði þessi þjónusta
ekki verið fyrir hendi hefðum við ekki getað
þetta. Þegar litið er til baka finnst mér þau ekki
síst hafa verið okkur aðstandendunum góður
bakhjarl enda er þetta alveg einstakt fólk. Þau
leiðbeindu okkur til dæmis með hvað væri fram
undan því vitanlega breytist margt þegar ást-
vinur kveður. Þannig sinna þau ekki aðeins
líkamanum heldur sálinni líka.
Nú líður til dæmis að þeim árstíma að við
verðum vör við fráfall hennar aftur, vegna jóla-
hátíðarinnar. Hún var einmitt svo mikið fyrir að
gera jólin hátíðleg. Hefðum við ekki getað gert
þetta svona væri söknuðurinn miklu sárari og
eftirsjáin vegna þess sem maður ekki gerði
miklu meiri. Ég held að það sé miklu auðveld-
ara að lifa með þessum missi af því að þau
gerðu okkur mögulegt að gefa af okkur. Ég
fékk að gera allt sem ég mögulega gat til að
hlúa að henni. Það má vera gott fólk sem gefur
sig í svona starf og ég myndi mæla með þess-
ari þjónustu við alla, sérstaklega sjúklingsins
vegna. Maður er bara hissa á að ekki skuli
vera varið meiri fjármunum í þetta starf, því
fyrir utan hvað það er miklu manneskjulegra er
það miklu ódýrara, ef hagsýnisþátturinn er líka
skoðaður."
„Mamma ætlaði sér að lifa og hún kvartaði
aldrei yfir sjúkdómnum. Innst inni vissi hún þó
hvað var að gerast. Vissulega skiptir það okkur
miklu máli að hafa verið þátttakendur, hafa
fengið að hjálpa henni, hjúkra, hugsa um hana
og vera meö henni allan tímann,“ segir Kristín.
„Það er miklu auðveldara fyrir aðstandendur
að sinna þeim sjúka þegar hann er heima. Líf-
ið gengur meira sinn vanagang og það er meiri
friður og ró í kringum aðhlynninguna en þegar
fólk er að skiptast á um að þeysast upp á spít-
ala í stutta heimsókn. Ég held að það hjálpi að-
standendum mjög mikið að fá aðstoð Heima-
hlynningar því hún er eins persónuleg og hún
getur verið. Ef þessi leið er framkvæmanleg
held ég að ekki sé spurning um að þetta sé
leiðin sem á að fara.“
ERU DAGLEGA í NÁVIST DAUÐANS
Frh. af bls. 9
ekki að taka þátt í vanlíðan. Við þekkjum ekki
einu sinni okkur sjálf - eðli okkar og þarfir. Allir
þurfa að upplifa dauða, skilnað og sorgir en
málið er hvernig við getum stutt hvert annað
þannig að við komumst í gegnum slíkt á heil-
brigðan hátt.“
ÞVERFAGLEG TEYMISVINNA
Heimahlynningin sinnir á milli fimmtán og tutt-
ugu manns á hverjum tíma. „Stærstur hluti
þeirra er eldra fólk því flestir sem fá krabba-
mein eru eldri borgarar," segir Bryndís. „Þó
erum við alltaf með ungt fólk inn á milli og svo
hefur þróunin orðið sú síðan í vor að leitað hef-
ur verið til okkar með að styðja fólk sem ennþá
er í lækningameðferð og það starf finnst mér
hafa fariö vaxandi."
„Hjúkrunarfræðin er mjög vítt svið,“ segir
Hrund, „en þegar okkar þekkingu þrýtur höfum
við svokallaða ráðgjafanefnd um líkn okkur til
halds og trausts." Starfsfólk Heimahlynningar
hittir ráðgjafanefndina hálfsmánaðarlega en
auk þess sitja hana geðlæknir, sálfræðingur,
félagsráðgjafi og sjúkrahúsprestur. Einnig hef-
ur teymið aðgang að næringarráðgjafa, svæf-
ingalækni og lyfjafræðingi. Á fundum ráðgjafa-
nefndarinnar fer fram þverfagleg teymisvinna
og kemur hver sérfræðingur með sitt innlegg.
Hospice-hugmyndafræðin byggir einmitt mikið
á teymisvinnu og þeirri staðreynd að enginn
einn aðili geti sinnt öllu heldur sé það samvinn-
an sem gildi.
„Það er auðvelt að sjá gildi þessa samstarfs
eftir að hafa verið inni á heimili hjá sjúklingi og
reynt að greina þar vandamál sem einhver
annar sér síðan allt annan flöt á og aðrar úr-
lausnir," segir Bryndís. „Hver stétt virðir hinar
og gerir sér grein fyrir því að þær eru allar
nauðsynlegar til að vinna þetta starf.“
„Eftir að ég hóf störf með þessum hópi er ég
orðinn miklu næmari á þætti sem mér voru
ekki Ijósir áður,“ segir Sigurður. „Sem dæmi
má taka alls kyns félagslega þætti. Við athug-
um hve mikinn þátt sálarangist á í einkennum
og reynum almennt að nálgast málin heildrænt.
Stundum er nefnilega hættulegt að horfa á
einstaka þætti sem hægt er að lagfæra, ef þeir
þýða það að einungis er verið að framlengja
dauðastríðið. Sígilt dæmi er að gefa sýklalyf
við lungnabólgu því lungnabólgan getur komið
sem hinn mjúki dauði, loksins, langþráður. Líf
mannsins heldur ekki áfram þó svo unninn sé
bugur á sýkingunni. Það framlengir aðeins
kvölina, dauöastríðið, en verður ekki mann-
eskjunni til góðs. Undantekningin á þessu er ef
sjúklingurinn vill sjálfur fá lyfin. Hann á rétt á
því að berjast á hvern þann hátt sem honum
hentar. Almennt hjálpar þessi heildarsýn okkur
þó að taka siðferðislega réttar ákvarðanir."
STÓRI BOÐSKAPURINN
„Þetta er mikilvægt starf og ég sé gjarnan að
það vaxi,“ segir Sigurður. „Það er mikil þörf
fyrir það og stóri boðskapurinn er að fólk fái
vitneskju um að ekki sé sjálfgefið að ástvinir
þess fari inn á sjúkrahús, séu þeir deyjandi,
nema þeir vilji það sjálfir. Ég sé gjarna að við
fáum aðstöðu á deild eða í heppilegu húsnæði
öðru, þar sem við getum sinnt einstæðingum
og þeim sem ekki geta veriö lengur heima af
einhverjum ástæðum. Þessi þjónusta, sem við
rekum hérna, er þar að auki miklu ódýrari en
að hafa sjúkling inni á sjúkrahúsi enda hafa
Tryggingastofnun og tryggingaráð stutt okkur
vel.
Rétt eins og fólk leggur að sér við börn sín
leggur það að sér við móður sína deyjandi, af
Frh. á bls. 12
1 0 VIKAN 24. TBL 1991