Vikan - 28.11.1991, Síða 59
Um þessar mundir er aö koma út hjá
bókaútgáfunni Hildi bók eftir Normu
Samúelsdóttur. Hún ber nafnið Fundinn
lykill. Sagan hér í opnunni er úr bókinni og
birt meö leyfi höfundar. Myndskreytingin á
síöunni hér viö hliðina er eftir Dóslu.
þekkti einu sinni. Svona kærasti. Var einu sinni góð
við, eins og væri hann blómið hennar, en hann vildi
ekki láta vökva sig eins og blóm og veran Bera sá
að hann var að kveikja sér í sígarettu. (Sígaretta
var sívalningur sem sumar verur settu upp í munn-
inn á sér, kveiktu í endanum með eldspýtu og kom
þá reykur út um munn verunnar eftir að hún
saug ...) Sumar verur vildu frekar svona sívalning
en vini sem nenntu ekki að reykja. - Svona létu nú
mannverurnar, alltaf að skipta sér hver af annarri.
Þessi vildi gera þetta, hin vildi gera hitt og verunni
okkar, henni Beru, fannst sá sem stóð á torginu
minna sig á pottablóm þar sem ekkert var nema
rætur en eiginlega engin mold. Moldin gaf næringu
og vítamín og súrefni til að geta hugsað eða vaxið
betur. Það var stundum erfiðara að rækta hreyfan-
legu verurnar en þær rótföstu. Þær voru alltaf á
fleygiferð og sögðu kannski nei þegar þær áttu aö
segja já og þegar þær áttu að segja já þá fóru þær
bara í stríð í staðinn.
Hreyfanlegu verurnar, þær sem sagt var að væru
gerðar eftir Guðs mynd (sþyrjið einhvern hvað Guð
sé), voru alltaf í stríði. Kannski var það af því þær
héldu alltaf að þær, hver og ein, vissu allt best. Þær
voru í stríði við hver aðra, stríði við náttúruöflin.
Vildu - og það var stundum ansi gott hjá þeim -
beisla hitt og þetta. Fossana til að fá rafmagn til að
sjóða matinn og sjá vel þegar veturinn er kolsvartur
á nóttunni, ekki bara nóttunni, stundum allan sólar-
hringinn. Sum stríð voru bara góð, til að beisla eitt-
hvað, rækta eitthvað.
Hreyfanlegu verurnar, kallaðir menn, voru í stjórn
landanna, og, æ, það var bara voöalegt ástand
sums staöar, eins og ómögulegt væri að ráða við
það ... eins og eitthvað óheillavænlegt, einhver öfl
sem voru myrk létu Ijóta hluti gerast. Litlar hreyfan-
legar verur, börn, dóu vegna hungurs og of mikils
þurrks í litlu líkömunum. Mannverur hafa líkama;
hreyfanlegt höfuð, búk, hendur og fætur sem geta
hlaupið. Ef hreyfanlegu verurnar fá ekki neinn mat
eða eitthvað að drekka deyja þær fljótlega, hreyfast
þá ekki meir og enda í moldinni í sérstökum garði,
kirkjugarði eða stórum safnhaug. ( striði voru
sprengjur sem voru látnar detta á hreyfanlegar og
rótfastar verur og þær dóu. - Auðvitað var hægt að
deyja svokölluðum eðlilegum dauðdaga, verða
gamall, gömul, gamalt tré, en það er önnur saga . . .
Nú var maímánuður, bráðum júní og veran okkar
gekk á lifandi jörðinni sinni, horfði á rótföstu verurn-
ar og sá að enn voru laufin krumpuð, eins og ný-
fædd mannsbörn. Sá að fæðing var í aðsigi, opnun
afla sem voru hlýrri og hlýrri með hverjum degin-
um ... Það var fallegt...
Þessi saga endar dálítið einkennilega. Þannig var
að dag einn byrjaði Bera allt í einu - hún hafði týnt
lykli, fór að leita og fann - að moka og moka og
moka holu. Svo þegar holan (þetta var mold) var
orðin nógu stór hoppaði hún niður í hana og fór svo
og safnaði henni saman með höndunum upp að
mitti, lét hana detta á sjálfa sig og þjappaði saman.
Nú var hún alls ekki mjög hreyfanleg vera. Bara
handleggir lausir og hún með lykilinn sinn í festinni
um hálsinn. Ekki er almennilega Ijóst höfundi þess-
arar sögu hvort Bera hélt hún gæti orðið tré eða
kartafla með rætur, en vinur hennar sem heitir
Demus kom þarna og kiþpti henni upp, hlæjandi.
Og var ekki lengi að því. Það sást svo síðast til
þeirra er þau gengu saman áleiðis heim og Demus
sagði; „Nú ætla ég sko aö baða þig, Bera!"
Endar svo þessi sumarsaga ... □
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
f^Ídólbadstoían
| Laugavegi
NÝJAR COSMOLUX RS PERUR
OPIÐ
Virka daga 08.00 - 22.00
Laugardaga 09:30-19.00 LAUGAVEGI 99
Sunnudaga 11:00 - 17:00 Símar 22580 og 24610
AFMÆLISTILBOÐ:
Andlitsbað, handsnyrting og fótsnyrting.
Aðeins kr. 4.500,-
Bjóðum frábæra jurtakúra fyrir bóluhúð,
eldri húð og háræðaslit.
Einnig Depigel eftir vax,
lýsir hár og dregur úr hárvexti.
SNYRTISTOFA ÁRBÆJAR
SÍMI 68 93 10
REYKJAVÍKURVEGI 64 ■ HAFNARFIROI ■ SÍMI 652620 • HEIMASÍMI 52030
Hreinsum allan venjulegan fatnaö með bestu vélum sem
fáanlegar eru í dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum
einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
ANDLITSBÖÐ,
HÚÐHREINSUN,
LITUN,
FÓTSNYRTING,
HANDSNYRTING
DAG- OG
KVÖLDSNYRTING
V AXMEÐFERÐ
Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík
sími: 39990
Elín Jónsdóttir, hárgreiöslumeistari,
Ásta K. Árnadóttir, Elva B. Ævarsdóttir,
Þórunn A. Gylfadóttir, Halla R. Ólafsdóttir.
24. TBL 1991 VIKAN 59