Vikan - 28.11.1991, Qupperneq 66
STJÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl
Margt viröist fara úr-
skeiðis aö ástæöulausu í des-
emberbyrjun. Slæmar fréttir,
sem þú reynir aö fá botn í, reyn-
ast ýktar þegar til kemur.
Reyndu að gera gott úr þessu
því aö þetta stendur allt til bóta.
j£> NAUTIÐ
20. apríl - 20. maí
Skyldur viö aðra gætu
tekið meira af tíma þínum en
áður svo aö þaö gefst lítill tími til
einkalífs. Haltu þínu striki þótt
þaö kosti einhverjar fórnir því
þaö sannar áreiöanleika þinn.
Fjármálin eru í lægð um þessar
mundir en þetta lagast.
TVÍBURARNIR
21. maí - 21. júní
Fólk getur virst ósann-
gjarnt í þinn garö í desember-
byrjun en ósanngirnin gæti veriö
þín megin. Reyndu því aö kom-
ast að samkomulagi og beint að
efninu. Þú gætir veriö á villigöt-
um svo að nú er kominn tími til
að þú athugir vel þinn gang.
KRABBINN
22. júní - 22. júlí
Haföu auga meö heils-
unni næstu tvær vikur. Reyndu
aö foröast streitu og spennu.
Tilfinningar þínar gætu haldiö
áfram aö fá mikla örvun og auka
á innilegt rómantískt samband.
Haföu hugfast að hamingjan og
gleðin koma fyrst og fremst inn-
an frá.
LJÓNIÐ
23. júlí - 23. ágúst
Ágengni þín er meö
mesta móti um þessar mundir
svo aö flestum finnst nóg um.
Hægðu á ferðinni, sérstaklega í
viðkvæmum málum. Þú gerðir
sjálfum þér og öörum greiða
með því að taka þér hlé og gera
þér svolítinn dagamun.
,æ>. MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Heimilið skiptir sköpum
fyrir þig og ýmsar breytingar eru
í aðsigi sem tengjast því. Ást-
vinir þínir viröast vera trekktir á
taugum og þaö gæti leitt til
smávegis árekstra. Einbeittu
þér aö eigin málum og farðu aö
undirbúöu jólin.
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Snatt og smáviðvik
veröa einkenni næstu vikna.
Fyrri hluti desember gæti fariö í
að afgreiöa smáatriöi. Þú vilt
líka hafa allt í röö og reglu. Hirtu
ekki um ónot en haltu þínu striki
þvi aö þú getur best dæmt í eig-
in málum.
SPORÐDREKINN
24. okt. - 21. nóv.
Nú er tími til að klippa á
úrelt samskipti, hvort sem um er
að ræða persónu eöa félags-
skap. Kveddu fortíðina og ein-
beittu þér að núinu. Eitthvaö
gamalt hefur þó þýöingu fyrir þig
um 8. des. og fær þig til aö sjá
margt í nýju Ijósi.
BOGMAÐURINN
22. nóv. - 21. des.
Desember hefst á þver-
sagnakenndri framvindu. Ann-
ars vegar viltu byrja á einhverju
nýju en hins vegar leyfa kring-
umstæöurnar þaö ekki. Óþolin-
mæöi flækir málið svo aö þér er
hollast að vega og meta mögu-
leikana. Vertu ekki of viss.
STEINGEITIN
22. des. - 19. janúar
Jákvæð framvinda
undanfariö viröist stöövast í
byrjun desember. Þetta er þó
aöeins tími til aö slaka á og líta
yfir unnin afrek og misheppnuö
verk. Þú verður í svolítilli lægö
fram aö 10. desember en eftir
þaö fer nánd jólanna aö hafa
sín áhrif.
VATNSBERINN
20. janúar -18. febrúar
Þaö fer að draga úr góö-
um samskiptamálum eftir 28.
nóvember. Persónulegurárang-
ur hefur fært þér meiri ábyrgð
en þú reiknaðir meö. Brostu og
taktu þessu. Smám saman
feröu að hafa gaman af því. Ein-
beittu þér aö nýjum kunningjum.
FISKARNIR
19. febrúar - 20. mars
Vinir þínir hindra þig
meira en aö hjálpa þér næstu
vikur en það er ekki þeim aö
kenna. Einbeittu þér aö eigin
málum og reyndu að sýna
skilning. Fjármálin eru ekki meö
besta móti og þú þarft aö spara
svolitið. Snúðu þér að vanrækt-
um verkefnum.
Tveir Hafnfirðingar, Tommi og
Lalli, voru stoltir af því hvað þeir
voru orðnir þekktar persónur í
Hafnarfjarðarbröndurum. Þeir
sátu heima í eldhúsi seint á laug-
ardagskvöldi og voru að metast
um hvað synir þeirra væru
heimskir en strákarnir sátu inni í
stofu og voru að spila lönguvit-
leysu. Þá kallaði Tommi á Halla
son sinn, rétti honum þúsundkall
og bað hann um að skreppa niður
í bæ og kaupa handa sér eínn
BMW. Strákurinn tók viö peningn-
um og fór meö hann út.
Lalli vildi sýna Tomma aö Lúlli
sonur sinn væri ekki síður vitlaus,
kallaði hann inn til sín og sagði:
„Skrepptu nú niður á krá, Lúlli
minn, og gáðu hvort ég er þar
ennþá því ég þarf að fara aö
koma mér heim í háttinn."
Lúlli hljóp út og náöi Halla von
bráðar.
„Þetta eru nú meiri vitleysing-
arnir, þessir feður okkar," sagöi
Halli. „Pabbi sendi mig niður í bæ
aö kaupa handa sér BMW. Hann
veit ekki einu sinni aö það er ekki
hægt aö kaupa BMW í Hafnarfirði
svona seint á laugardagskvöldi."
„Það er nú ekkert,'1 sagði Lúlli.
„Pabbi sendi mig niður á krá að
leita að sér - en það var sími við
hliðina á honum. Hann hefði al-
veg eins getað hringt sjálfur og
spurt hvort hann væri þarna.“
Hafnfirðingur fékk vinnu við
að fella tré í Hallormsstaðar-
skógi en honum gekk illa að
fella minnst þrjátíu tré á dag
eins og honum var uppálagt.
Þá sá hann vélsög auglýsta í
búðarglugga á Egilsstöðum.
„Þessi sög getur fellt allt að
sextíu tré á dag,“ stóð á skilti
undir verkfærinu og þar sem
Hafnfirðingurinn kunni vel að
lesa keypti hann þennan
kostagrip. En hvernig sem
hann hamaðist á vélinni tókst
honum ekki að fella nema
tuttugu og fimm tré á dag
með henni. Hann fór því með
hana í búðina til að láta at-
huga hana.
- Má ég sjá? sagði af-
greiðslumaðurinn og stakk
vélinni í samband.
- Hvaða hávaði er þetta?
spurði Hafnfirðingurinn.
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
uBæi rua umojj '3U3H Qbjs i 3U3HX Jnpuajs jecj
6o jsAejq jnjaq !j||>js e jo ‘jnxnq jege>(UisnQnj \ uu|ujo>| ja uujq ‘uujuueuj
ueuue e jbjuba e>(od>|eq ‘u|6auj bjjsuia jbiuba ajj ‘euujuj ja Q!l|!>is
66 VIKAN 24. TBL. 1991