Vikan - 28.11.1991, Side 92
TEXTl OG LJÓSMYNDIR: ÞORSTEINN ERLINGSSON
Nágrannakonurnar. F.v. Hrefna Guðmundsdóttir, Helga Eyjólfsdóttir, Auður Björg Sigurjónsdóttir og Sigurbjörg samankomnar á heimili
þeirrar síðastnefndu í góðri stemmningu við að undirbúa jólin fyrir heimili sin, vini og vandamenn, með gerð fallegra muna úr bútasaumi.
BÚTASAUMUR ER
BRÁÐSMITANDI
Fallegir hlutir geta skreytt
ótrúlega mikiö híbýli
manna og ekki er minni
ánægja af þeim ef maður hef-
ur gert þá sjálfur. Þaö eru ótelj-
andi möguleikar á að skreyta
heimilið fyrir jólin. Vikan heim-
sótti nokkrar hressar konur
sem koma saman fyrir jólin til
að vinna að því sameiginlega
hugðarefni sínu að skreyta
heimili sitt fallegum hlutum
gerðum úr bútasaumi, ásamt
því að lauma nokkrum slíkum
í jólapakkana.
Að þessu sinni komu þær
saman f Keilufelli í Breiðholti,
á heimili Sigurbjargar Júlíus-
dóttur bókavarðar og fjöl-
skyldu hennar, þeirra Þorgeirs
Elíassonar framkvæmdastjóra
og dótturinnar Þórunnar, tólf
ára. Þau eiga þrjú önnur börn
en þau eru flogin úr hreiðrinu.
Sigurbjörg starfar á bóka-
safninu í Menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi. „Á bókasafn-
inu vinna eingöngu konur og
eru þær um fjórtán talsins,"
segir Sigurbjörg. „Það má
segja að bútasaumsáhuginn
hafi smitað út frá sér því að-
eins eru um tvö ár síðan ég
hóf störf þarna og nú stunda
líklega tólf þeirra hann af
kappi. Við saumum saman
reglulega og höfum tekið sal á
leigu þar sem við getum komið
saman og stundað þessa iðju
okkar yfir vetrarmánuðina.
Konurnar eru á öllum aldri.
Þetta byrjaði allt saman þann-
ig áð ég fór að miðla af þeirri
reynslu sem ég hef fengið í
þessu í gegnum árin. Sjálf
byrjaði ég fyrir tíu árum með
því að fara á námskeið hjá
vefnaðarvöruversluninni Virku
og einnig hjá Sigrúnu Guð-
mundsdóttur hannyrðakonu
sem meðal annars hefur sam-
ið bækur um saumaskap.
Þetta hefur þýtt það að við á
bókasafninu erum alltaf að
sauma í frístundum okkar og
nú saumum við saman fyrsta
laugardag í mánuði og jafnvel
eitt kvöld til viðbótar. Ég er
einnig með námskeið fyrir ein-
staklinga og svo einstaka
hópa en það er hvort tveggja í
mjög takmörkuðum mæli.“
NÁGRANNAKONUR
SAMEINAST
„Ég bý í mjög skemmtilegri
götu, Keilufellinu. Hún saman-
stendur af viðlagasjóðshúsum
sem byggð eru úr timbri og eru
þau mjög vinaleg," segir Sig-
urbjörg. „Samkomulagið er
sérstaklega gott hérna, mikil
samheldni og engin leiðindi
hafa komið upp í sambýlinu.
Ef svo er hlýtur það að hafa
farið framhjá mér.
Bútasaumurinn hefur herjað
hér í götunni, ef svo má að
orði komast. Nú er það svo að
við, nokkrar nágrannakonur,
komum saman fyrir jólin f
skemmtilegri stemmningu,
annaðhvort með jótaglögg og
piparkökur eða rauðvín og
osta og saumum saman. Eng-
in önnur en ég hafði lagt stund
á bútasaum áður og því var
þetta mjög skemmtileg
reynsla. Við höfum stundum
tekið fyrir einn hlut og saumar
hann síðan hver og ein eftir
sínum smekk. Sem dæmi
saumuðum við doppóttan kött
fyrir ein jólin. Þetta er virkilega
skemmtileg hefð og hefur allt-
af verið mjög glatt á hjalla hjá
okkur þessi kvöld."
í fáfræði sinni langaði
blaðamann að vita nákvæm-
lega hvað bútasaumur væri.
„Bútasaumur er upphaflega
amerfskt fyrirbæri," segir Sig-
urbjörg, „og að einhverju leyti
88 VIKAN 24. TBL. 1991