Vikan - 24.01.1994, Blaðsíða 47
kvæmlega hvað þú vilt og ferð eftir því. Víðsýni þín vex og þú
átt auðvelt með að koma auga á góð tækifæri. Gerðu hug-
myndirnar ekki að leyndarmálum því að heppilegra er að deila
þeim með öðrum og fá viðbrögð frá þeim. Aflaðu þér þekking-
ar og upplýsinga. Þannig víkkar sjóndeildarhringur þinn enn
l'rekar og þú getur valið það og hafnað því sem þú vilt.
Þér gæti hætt til að vilja vera út af fyrir þig á stundum en
varasamt er að einangra sig um of. Ein sterkasta hvöt þín þetta
árið er að efla sjálfsímynd þína og sýna hvað í þér býr. Um leið
eykst þörf þín fyrir frelsi og sjálfstæði.
í fljótu bragði virðast frelsi og sjálfstæði líkir eiginleikar cn í
þínu tilfelli gætu þeir togast á. Þú vilt frelsi til að sinna vinum
þínum en sjálfstæði til að vera út af fyrir þig. Reyndu að sam-
ræma þetta tvennt og þá verða þér flestir vegir færir, sérstak-
lega í lok ársins og langt fram á árið 1995.
SÉRSTÖK SKILABOÐ:
FÆDD(UR) 23. ÁGÚST TIL 2. SEPTEMBER:
Tilhneiging til að segja of mikið í ársbyrjun gæti komið þér í
koll, sérslaklega ef þú ert að lofa upp í ermina á þér. Það, sem
gert cr, skiptir meira rnáli en það sem sagt er. Arið á eftir að
þroska persónuleika þinn og hugmyndir. Þú kemst langt á
þrautseigjunni.
FÆDD(UR) 3. TIL 13. SEPTEMBER:
Samskiptamálin gætu átt sínar streitustundir í sumar, sérstak-
lega ef þér finnst þú ekki fá það sem þér ber. Stattu á þínu cn
reyndu að komast hjá átökum. Haustið er góður tími til að
endurskipuleggja og í árslok mun þér takast að koma sundur-
leilustu hugmyndum í framkvæmd.
FÆDD(UR) 14. TIL 22. SEPTEMBER:
Persónulegur kraftur þrengir markmið þín, enda eru áhugamál
þín að breytast. Þrautseigjan kemur þér langt ef þú ferð ekki út
í öfgar. Þá er áríðandi að einblína ekki á eina leið, heldur taka
marga möguleika með í reikninginn. Óvenjuleg iðja getur boð-
ið upp á glæsilega mögulcika.
VIKAN 45