Vikan - 24.01.1994, Page 64
áberandi og þær gætu orðið á fólki í öðrum merkjum. Maki
þinn gæti þó tekið eftir því að þú ert smám saman að fjarlægj-
ast fólk. f versta falli byggirðu einskonar múr umhverfis þig og
einangrar þig því æ meir.
Þetta verður þó ekki stöðugt heldur kemur það og fer cins
og flóð og fjara og líklega ber mest á þessu í febrúar, snemma í
mars, seint í júní og júlí. í rauninni er þetta hluti af þroskaferli
þínum en gæti haft slærn áhrif á maka þinn. Ræðið því málin af
og til.
ÁSTAMÁL ÓBUNDINNA:
Hugsjónaleg afstaða þín til ástarinnar gæti þarfnast endurskoð-
unar þegar Satúrnus fer inn í merki þitt í ár og þú verður að
horfast æ meira í augu við raunveruleikann. Á sumum sviðum
þarf að beita málamiðlun á milli hugsjóna þinna og blákaldra
staðreynda. Samband, sem þegar hefur verið stofnað til, gæti
svo sem dafnað og skotið traustum rótum. En erfiðasti tími
þess verður þó líklega í febrúar og mars þegar þú dregur þig
svo mikið inn í eigin skel að sambandið gæti slitnað ef ekkert
er að gert.
Sértu hins vegar óbundin(n) má búast við að mörg smáævin-
týri verði á vegi þínum. Ágúst og september verða t.d. í meira
lagi rómantfskir og spennandi mánuðir. Þá áttu mjög auðvell
með að laða fólk að þér og þú gætir hiklaust stofnað til lang-
tímasambands. Óvissa þín og hik fyrri hluta ársins stafa aðal-
lega af því að þér er ekki fulljóst hvert ferðinni er heitið. Þetta
breytist síðsumars. í haustbyrjun eyksl sjálfstraust þitt og
bjartsýni.
Hvernig þú vinnur úr ástarævintýrum á árinu er þér í sjálfs-
vald sett en besti tíminn til að hefja traust, langvarandi sam-
band hefst þegar sumri fer að ljúka.
TÆKIFÆRI OG FREISTINGAR:
Jákvæðir og neikvæðir eiginleikar þínir koma vel í ljós árið
1994 vegna áhrifa frá Júpíter og Satúrnusi. Ef þér tekst að
virkja jákvæðu eiginleikana og halda þeim neikvæðu í skefjum
áttu stórkostlegt ár fyrir höndum. Umtalsverð útvíkkun hugar-
farsins verður lil þess að þekking þín vex og hugsunin skerpist.
62 VIKAN