Vikan


Vikan - 20.01.1995, Qupperneq 8

Vikan - 20.01.1995, Qupperneq 8
LÆKNAMIÐILL dagana. Hann er langt frá því aö vera dæmigerð skrif- stofutýpa enda kemur á dag- inn að hann hefur þreifað fyrir sér á ýmsum sviðum. Ævintýramaður? Ef til vill. Enda er ekki hægt að segja að hann sé með báða fætur á jörðinni þegar tekið er tillit til þess að hann er flestum stundum í sambandi við að- ila annars heims. Á sínum tíma rak hann sumarbúðir skáta, hann hefur unnið á Sólheimum í Grímsnesi, á barnageðdeild, Kleppsspít- ala, dönsku elliheimili, hjá tímaritinu Uppeldi og Lands- sambandi hjálparsveita skáta. Á síðasta ári starfaði hann við leikmyndagerð og stutt er síðan hann starfaði Guöjón segist sjá hina fimm fram- liðnu lækna mis- sterkt. „Þeir standa í hálfgerð- um píra- míta,“ segir hann. sem leikmyndahönnuður í mynd Þráins Bertelssonar, Einkalíf. Guðjón hefur leikið í nokkrum kvikmyndum í gegnum tíðina og má þar nefna Hrafninn flýgur, í skugga hrafnsins, Hvíta vík- inginn, Svo á jprðu sem á himni og Hin helgu vé. „í vet- ur lék ég tvö hlutverk í amer- ískri víkingamynd og ég starfaöi einnig við leikmuna- vörslu," segir Guðjón. „í öðru hlutverkinu var ég með hár- kollu, blóði drifinn og allt að því steindauður. Leikara- starfið er hobbý og í gegnum tíðina hef ég fengið að troða mér fram í smáhlutverkum." ER OFSATRÚARMAÐUR Guðjón er kristinn en hann aðhillist heimspeki hindúa op virðir trúarbrögð annarra. „Eg er náttúrlega ekki að bera mínar skoðanir á torg,“ segir hann. „Ég ræði mínar skoðanir aðeins við mína nánustu." Trúin er hon- um mikilvæg. „Ég hef verið trúmaður mikill og stundað andlegar íþróttir til margra ára. Ég er vígður „krýajógi" og hef stundað aðferðir og kenningar Indverj- ans Paramahansa Yogananda, sem flutt- ist til Bandaríkjanna og stofnaði þar kirkju sem heitir Self-Realization Fel- lowship eða „Kirkja allra trúar- bragða". Ég tengdist þessari reglu í gegnum vin minn, Gylfa Kristinsson, sem vann með mér á barnageðdeild- inni. Fyrir hans til- stilli fór ég til Bandaríkjanna þar sem ég var í klaustri í tæpt ár. Það var mjög sér- stök lífsreynsla sem væri holl hverjum manni. Ég tel aö dvölin í klaustrinu hafi auðveldað mér starf mitt sem læknamiðill. Strangt til tekið mundi ég flokka mig undir ofsa- trúarmann. Ég bið kvölds og morgna og reyni að ganga með Guði á hverj- um degi. Þessir andlegu hlutir eru ekki fram- kvæmanlegir nema með Guðs kærleik. Mér finnst óþægilegt þegar fólk þakkar mér því það er ekki mór að þakka." HEYRIR, SKYNJAR OG SÉR Fyrir þremur árum gerði Guðjón sér grein fyrir því að hann „sá“. Hann segist ekki vita hvernig aðrir upplifi það en þá áttaði hann sig á því að þannig hafði það lengi verið án þess að hann væri meðvitaður um það. „Menn „sjá“ á mjög misjafnan hátt," segir hann. „Sumir sjá form, aðrir sjá fullmótaðar verur, eða heyra, og svo eru þeir sem sjá í gegnum tilfinning- ar. Ég bæði heyri, skynja og sé. Ég sé alltaf eitthvað en stundum get ég bægt því frá mér; þetta er ekki þannig að ég þverfóti ekki fyrir fram- liðnum. Þetta er eins og að stilla á Bylgjuna þegar ég er í sambandi við læknana en fara svo yfir á Aðalstöð- ina þegar ég er í fríi. Þegar ég áttaði mig á því að ég „sæi“ hélt ég að ég væri að verða vitlaus. Ég hef náttúr- lega alltaf verið talinn svolítiö skrítinn en ég hef alltaf hangið réttum megin við strikið. Ég leitaði mér því hjálpar og gekk miðla á milli til að fá staðfestingu á því að ég væri í lagi og það sem ég sæi væri rétt. Ég vildi MÍGRENISJÚKLINGAR DUGLEGIR AD KOMA Orkuspírall gengur upp og niður líkamann og heldur hinni eiginlegu orku í jafn- vægi. í hryggnum eru sjö orkustöðvar, frá hvirfli niður í rófubein. Ára umlykur lík- amann og myndast hún líka fá skýringu á því hvers vegna ég væri svona. Ég hef einnig farið í meðferð hjá miðlum sem hafa tengt mig rétt. Á tímabili beitti ég orkunni á ská inn í mig. Þegar ég legg á fólk rennur orkuflæðið nið- ur höfuðið og hrygginn og út í hendurnar. Ég hafðí beitt mér of mikið hægra megin og var orðinn svolítið skakk- ur; ég fann það á mér líkam- lega. Ég varð að fara til mið- ils til að fá lækningu á því, sem þykir ekkert óeðlilegt." í misjöfnum þéttleika og litum eftir ástandi hvers og eins. Það sem gerist hjá mörgum er að undir álagi og í veikindum kemur óregla á ork- ustreymið þannig að á árurnar myndast göt og fólk lekur SKYNJAR VEIKINDI ANNARRA Síminn hringir og Guðjón fer fram. Hann kemur aftur eftir dálitla stund og tilkynnir að þetta hafi verið kona sem vilji koma í tíma. Guðjón sest aftur í stólinn. „Ég fer með bæn áður en ég byrja á hverjum og einum. Og það er fyrir mig sjálfan gert. Her- bergið sem ég vinn í er hlað- ið þannig að fólk sem kemur í viðtal verður fljótt mjög af- slappað. Það er vegna and- rúmsloftsins og hleðslunnar sem er í gangi.“ Flestir, sem koma til Guð- jóns í handaryfirlögn, koma í þrjú til fimm skipti en það fer eftir veikindum hvers og eins. Hver tími stendur yfir [ klukkutíma. Tuttugu mínútur fara í samræöur þar sem menn skrafa saman um síð- ustu daga og síöan leggst fólkið á bekk sem er í öðru herbergi. „Þegar fólk kemur til mín skynja ég líkamlega á sjálfum mér hvað að því er og ég heyri það með hjálp læknanna fimm. Þeir hjálpa mér í þessum skynjunum og stýra mér. Ég þarf að stilla mig og tengja við annað svið sem einfaldar mér að geta sjúkdómsgreint fólkið." stundum út sinni eigin orku. Það verður þreytt og sljótt og frarn koma ýms- ir kvillar. „Ég jafna út orku- flæðið, laga áruna, hleð fólk orku og legg síðan sérstak- lega á þá líkamshluta sem eru veilir,“ segir Guðjón. „Ég sé liti og skynja orku sem rennur í gegnum hendurnar á mér þegar ég meðhöndla fólk en það finnur fyrir þrýst- ingi eða miklum hita. Ég gæti talið upp mýmörg dæmi og ég væri ekki að þessu nema af því að fólk fær oft- ast nær bata. En mér finnst rangt að gorta af því sem ég hef gert og teija upp sérstök atvik. Ég held ég hafi fengist við allar tegundir sjúkdóma, alveg frá verk í tá upp í hausverk en það er mikið um smákvilla sem einfalt er að eiga við. Af einhverjum ástæðum hef ég átt við gríð- arlega mikið af mígrenisjúkl- ingum.“ Guðjón hefur einnig fengið beiðnir erlendis frá sem hann hefur sinnt og hann segir að tími og rúm sé ekki háð neinu í þessu sam- bandi. Hann bætir þó við að þægilegra sé að eiga við fólk sem kemur til hans. HARÐHENTUR LÆKNIR Guðjón sér framliðnu læknana fimm missterkt. „Þeir standa [ hálfgerðum píramíta þannig að ég sé þann fremsta mjög skýrt en hina sé ég ekki eins vel; það fer að vísu eftir því hvað ég er að gera. Ég veit nokkurn veginn allt um þann fremsta. Hann er breskur yfirlæknir sem var uppi um aldamótin. Hann er dæmigerður yfir- stéttar-Breti með yfirvara- skegg og gengur í Ijósbrún- um flauelisjakkafötum. Hann FRH. Á BLS. 32 8 VIKAN 1. TBL. 1995
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.