Vikan - 20.01.1995, Blaðsíða 27
Hún tók þessu öllu með jafn-
aðargeði. Ég held hún hafi
alveg áttað sig á því hvað
mér leið illa. Og hún dansaði
við mig á jólaballinu þannig
að ég kláraði kvótann."
MED HÁR EINS OG
DAVÍÐ ODDSSON
„Tinna var mjög sérkenni-
leg sem krakki að því leyti
að hún var með krullur eins
og lamb. Alveg frá upphafi.
Hún var með samskonar hár
og vinur minn, Davíð Odds-
son forsætisráðherra. Bróðir
minn er líka svona; hann var
með hár eins og Bob Dylan.
Ég held að á tímabili hafi
Tinna hatað krullurnar á sér.
Ég man eftir því að hún var
að reyna að teygja á þeim
og líma þær niður. Ætli hún
hafi þá ekki verið svona níu
ára og byrjuð að taka eftir
strákum. En það var von-
laust að slétta úr þeim.“
Hrafn segist eiga skýrar
minningar um litlu systur
sína. Hann segir að sem
krakki hefi hún verið með
óvenjulega sterk augu. Aug-
un í henni neistuðu. En hún
var alltaf frekar dul, feimin
og svolítið einræn. „Þrátt fyr-
ir alla þessa undarlegu
feimni átti hún það til að
dansa fyrir gesti þegar hún
feimnir. Það er eins og þeir
breytist í eitthvað allt annað
þegar þeir fara að leika. Það
er eins og þeir skipti um
ham. Upphaflega kom það
mér á óvart þegar hún fór í
Leiklistarskólann. Hún var
dul og hlédræg og hún er
ekki manneskja sem tranar
sér fram. Yfirleitt er hún á
frekar lágri nótu innan um
fólk. Ég held að það sé mjög
auðvelt að umgangast hana.“
Daniel Bergmann, sonur
sænska kvikmyndaleikstjór-
ans Ingmars Bergmann, var
aðstoðarleikstjóri myndar-
innar í skugga hrafnsins.
Honum fannst Tinna vera
mjög „mystisk" eða dularfull
og hann sagði að sig
dreymdi um að eignast konu
eins og Tinnu.
ÖRLÁT OG LAUS VID
GEÐVONSKU
Það hefur alltaf verið hlýtt
á milli systkinanna og um
litlu systur sína segir Hrafn
að hún sé mjög örlát mann-
eskja og laus við öfund og
geðvonsku sem er að drepa
sumt fólk. Hann segir að
Tinna hafi alla tíð átt auðvelt
með að laga sig að aðstæð-
um. Hann man þess vegna
ekki hvort hún hafi alltaf ver-
ið hlýðin sem krakki. „Hún er
af manni með tímanum. En
ég elskaði vandræði. Ég
elskaði yfirleitt einhverja
„aksjón" og að í gangi væri
einhver hasar og vitleysa.
ekki í skóla. Það var hins
vegar ég sem skrópaði og
féll. Ég held að reynsla for-
eldra minna af mér hafi verið
slík að þeim hafi ekki þótt
þeir þurfa að hafa neinar
áhyggjur af uppeldinu á
Tinnu. Þeir hafa kannski ver-
ið búnir að fá upp í háls. Ég
held að hún hafi markað
sjálfstæði sitt mjög snemma
í þessum systkinahópi. Hún
hefur kannski átt auðveldara
UNNLAUGSBÖRN
með það að því leyti að við
vorum búin að brjóta niður
mestu varnarveggina í upp-
eldinu."
FYRIRMYNDAR-
NEMANDI
Daniel
Berg-
mann
sagAi aö
Tinna
væri
mjög
„myst-
isk“ eða
dularfull.
HANN ER UMDEILDUR LEIKSTJORI. HUN ER EIN S.9ókgk»“
AF OKKAR BESTU LEIKKONUM. SEX ÁR
SKIUA Á MILLI ÞEIRRA... OG MARGT ANNAÐ TSLna°a%£"" e,lir
var svona fjögurra ára. Og
þegar hún sagði sögu lék
hún allar persónurnar sem
hún var að segja frá. Ég held
að hún hafi snemma haft
þennan eiginleika að eiga
mjög auðvelt með að bregða
sér í einhver gervi þecjar hún
var að segja sögu. Eg held
að stórleikarar séu oft mjög
manneskja sem fer með
löndum. Hún er ekkert að
gera vesen úr hlutunum
nema að hjá þvi verði ekki
komist. Ég geri yfirleitt vesen
úr hlutunum ef þess er nokk-
ur kostur,“ segir Hrafn og
hlær glettnislega. „Að því
leyti erum við mjög ólík. Að
visu er þetta farið að rjátlast
Tinna er alveg andstæðan
við það. Hún var til dæmis
aldrei í prakkarastrikum.
Hún var alltaf dálítil dama.
Hins vegar var ég voðalegur
ævintýramaður. Ég held ég
hafi ekki gert annað en að
efna til vandræða framan af
æskunni.
Tinna skrópaði til dæmis
stríðsárafólk sem vildi
hafa góðan „front“. „Og það
var náttúrlega gaman að
geta sagt að börnin væru á
undan í skóla. Þetta var
kapp eftir „status“. Ég held
að þetta hafi rjátlast af ís-
lendingum. Ég held að rokk-
ið og rólið hafi bjargað
þessu. Kynslóðin, sem aldrei
upplifði rokk og ról, er aðeins
1. TBL. 1995 VIKAN 27
BERNSKUMINNINGAR