Vikan - 20.01.1995, Blaðsíða 23
Nú sér fyrir endann á
Smugudeilunni og Norö-
menn viðurkenna meö sem-
ingi aö þeir geti ekki staðið á
veiöibanni ( Smugunni.
Erfiðleikar veröa í norsku
konungsfjölskyldunni, hugs-
anlega veröur um veikindi
að ræöa.
í mars sýnist völvunni aö
Finnar losi sig viö hægri
stjórnina sem landsmenn
telja bera sök á dýpstu
kreppu undanfarinna sex
áratuga. Skammtímavextir
hækka en hagvöxtur Finna
eykst um nokkur prósentu-
stig á árinu.
Alvarlegt flugslys verður í
Evrópu á árinu og enginn af
farþegum eöa áhöfn lifir þaö
af. Stór flugvélaverksmiðja
neyöist til aö taka tæknideild
sína til endurskoðunar í kjöl-
farið þar eð grunur um galla
er nú oröinn að vissu.
Hjá hollensku hirðinni er
stigvaxandi spenna og meö-
al landsmanna liggur viö
borgarastyrjöld langþreyttra
Hollendinga sem neita að
borga níðþungt félagsmála-
kerfi fyrir útlendinga frá öll-
um heimshornum. Kynþátta-
hatur fer vaxandi í Hollandi
vegna gremju innfæddra í
garö innflytjenda og stjórnar-
farslegra afglapa og tilheyr-
andi erfiöleika.
Völvan segir sig hafa
margdreymt fyrir öðru erfiöu
ári hjá bresku konungsfjöl-
skyldunni en tveir meðlimir
hennar falla frá á árinu, ann-
ar ungur, hinn gamall. Þar
klingja þó einnig kirkjuklukk-
ur til brúökaups.
Díana prinsessa af Wales
mun finna ástina á árinu.
1995 og ’97 veröa hennar ár
og ólík undanförnum árum
undir smásjá pressunnar.
Díana fær lögskilnaö frá
Karli Bretaprins fyrir árið
1997 og verður á faraldsfæti
meö syni sína. Díönu verður
þó settur stóllinn fyrir dyrnar
hvaö þaö varðar aö flytja
með prinsana til Bandaríkj-
anna.
Öllu verra er útlitið hjá
Karli erfðaprins. Hann er
berskjaldaöur fyrir áhrifum
afhjúpunar hneykslismála og
miklar breytingar og óróleiki
einkenna einkalíf hans út ár-
ið. Karl einangrast í lífi og
starfi; tilvonandi þegnar
hans telja hann uppstoppaö-
an, ómarktækan snobbara.
Silva, forsætisráðherra
Portúgals, þarf að fara mjög